Just a thought on a rainy Sunday!

3rd of November 2019

When I think about my friends I feel happy.

Friends are precious and they don´t disappear. They stay and become stronger if I nourish the connection. Its all up to me, so to speak.

Sometimes we loose connection for a while but then we connect again like there was no pause. That is what true friendship is all about.

I have a tendency to let people use me. I believe people are my friends and they might just be using my good will. That happens and then there is just one step to take. Close the connection. Leave the group or whatever it is you are part of. Life is too precious to waste it on people users.

If the family does not appreciate you and you don´t appreciate them, what do you do?

The same as with friends.

You ignore them.

There are many families that don´t get along and that is normal. In every family there are different individuals with different opinions and different lives.

If you are a parent the society often demands that you are a parent above anything else. Is that fair? No, I don´t think so. My mother was a wise woman. She said to me that when we grow up we take care of ourselves. We correct the mistakes that have been made in our upbringing, if there are some. We become independent and we take responsibility for our actions. We don´t have to blame the bad parents for our misfortunes.  We are our fortunes makers and no one can take that responsibility from us.

There are no perfect parents.

There are no bad parents.

There are just different people, and a parent is just a person with cons and pros.

Let us remember that if we don´t like our parents they are teaching us a precious lesson. A lesson we came to this world to learn. The parent did not chose you! You were the one who had the opportunity to make your chosen parents yours because you had a lesson to learn. Be grateful for your parents that took you in. They sacrificed a lot for you but you may have forgotten.

You may just remember the bad and difficult. Try to remember there were also many good times. Remember the love and forget the hate. If you can do that then your live with your children will be different. Simple but true.

If you don´t like your birth family make your own. Make friends and they will become your family.

In the end it is all up to you and me, it is up to us to take responsibility for every new day and make the most of it to make our lives better and leave those we don´t like alone.

I am happy with my live and my choices. I always did my best one day at a time. I am grateful for the lesson my parents gave me. I am grateful to them for making me arrive in this world. Gratitude is a good feeling. Gratitude and remembering the good and learning from the bad is the lesson of this earths teaching.

I tend to repeat my mistakes until I have learned the lesson I am supposed to learn.

I have my independence and am grateful for that every morning I wake up. No one can take that away from me if I don´t want it to be taken away.

Responsibility for my own happiness is an everyday task.

My happiness comes from inside me, it does not come from other people, neither family or friends.

I appreciate all my friends. They don´t let me down even though I sometimes have to let them down to stop me being used.

Life is good.

Hulda Björnsdóttir

Bara einfalt

3.nóvember 2019

Mig langar til að setja hér inn smá pistil um allt og ekki neitt. Eiginlega bara um hvernig það er að vera ég í dag.

69786692_1414606468691176_3578943724601737216_o

Það rignir í litla þorpinu mínu og í öllu litla landinu mínu þessa dagana. Stundum mikið og svo kemur smá hlé með skúrum. Þetta er frábært og allt ilmar öðruvísi. Ilmur vetrarins er kominn í litla landinu, rjúkandi strompar og viðurinn brennur og heldur hita í litlum og stórum eldhúsum og allt verður einhvernvegin svo ljúft þegar setið er og horft á glæðurnar. Þessar glæður eru velkomnar. Þær eru ekki skógareldar.

Þegar ég ók upp í Semide í morgun til þess að fara í fyrsta söngtímann minn í langan tíma var ég hamingjusöm. Ég er ægilega lofthrædd og vegurinn uppeftir er bæði brattur og snúinn. Núna þegar mikið af brunnum trjánum hefur verið fjarlægður sést niður í botn og hjartað í mér tók angistar kipp. Allt gekk þetta þó rétt eins og vanalega og upp komst ég.

Söngurinn er unaðslegur og bætir heilsuna. Ég er núna að syngja Porgio Amore, og á sú aría vel við dramatíkina í mér. Mig langar að reyna við Costa Diva næst, úps!!!!
Svo er ég að missa lægri nóturnar, og þarf að gera eitthvað mjög rótækt til þess að halda þeim við. Eilífðarverkefni en samt svo skemmtilegt og gott að undirbúa sig undir næstu líf þar sem ég verð, eins og ég hef oft sagt, fræg óperusöngkona!

Veturinn er kominn hjá okkur í Portúgal. Það verður kalt næstu 7 daga samkvæmt spá og ég er komin í vetrarkjól sem nær niður á kálfa og fleiri lög tilbúin til þess að klæða kroppinn þegar þarf

Á morgun er dagurinn þar sem fullt af reikningum verður greiddur. Nóvember er erfiðasti mánuðurinn hjá mér og stundum snúið að ná endum saman. Allt bjargast þetta þó og þegar nýja árið byrjar er hægt að fara að safna aftur og leggja fyrir til þess að greiða skattinn næsta ár. Það væri gott að hafa stöðugt gengi svo hægt væri að gera almennilegar áætlanir en líklega er eina raunhæfa áætlunin að áætla gengið nógu óhagstætt og þá er maður á grænni grein!

Í þessari viku fer ég aftur í líkamsræktina, eftir þó nokkuð langt hlé vegna veikinda. Ég er svo sem ekkert að ergja mig mikið yfir því að ganga ekki heil til skógar en ofboðslega væri samt gott að hafa ekki hjarta sem tikkar eins og því sýnist út um víðann völl og gerir ekki boð á undan sér þegar því dettur í hug að fara í fýlu!

Kæra fólk sem les þetta.

Mig langaði bara til þess að vera einu sinni venjuleg hérna á síðunni okkar og láta gamminn geysa um allt og ekkert, bara hvernig það er að vera ég í einn dag.
Með bestu kveðju frá litla landinu mínu þar sem klukkan er rúmlega fimm og allt að verða dimmt. Kominn vetrartími og þá loga kertaljós og lampar og allt verður svo fallegt aftur, bara aðeins öðruvísi en í sumar.

71884674_1442185012599988_2240843635580993536_oHulda Björnsdóttir

Nú er málshöfðun vegna þjófnaðar ríkisins á sparnaði okkar í Lífeyrissjóði að renna úr hlaði. – Fylgjumst með öll sem eitt !

31.október 2019
Góðan daginn
Síðasti dagur mánaðarins og þeir sem fá greitt úr Lífeyrissjóðum fá væntanlega inn á reikninga sína í dag.
Á morgun er 1. nóvember og þá greiðir TR út.
Allt er þetta rétt eins og venjulega en það sem er svo ömurlegt við þetta allt saman er að margir hafa ekki átt fyrir mat síðustu viku og enn fleiri ekki fyrir mat þessa viku.
Venjulega er ég með allt mitt á hreinu og þarf ekki að svelta síðustu dagana og er það eins núna um þessi mánaðamót.
Ég er heppin.
Ég bý erlendis þar sem eftirlaunin endast betur en á hinu fokdýra Íslandi.
Þeir sem búa á Íslandi og eru svo óheppnir að tilheyra venjulegu eldri borgurunum og öryrkjunum eiga ekki sjö dagana sæla síðustu viku mánaðarins. Þeir sem leigja húsnæði eru líklega allra verst staddir. Mér sýnist húsaleiga vera að kæfa venjulega fólkið.
Núna er að hefjast málarekstur vegna þjófnaðar ríkisins á sparnaði okkar sem höfum unnið á Íslandi og greitt í lífeyrissjóði alla okkar starfsæfi.
Ærandi þögn um málið er áberandi frá þeim sem eru í atkvæðasmölun fyrir næstu kosningar.
Það þykir ekki merkilegt að 3 manneskjur, Finnur Birgissson, Wilhelm Wessmann og Ingibjörg hafa látið hendur standa fram úr ermum og tekist að fá Gráa Herinn til þess að vera með í málssókninni.
Mér þykir þetta merkilegt.
Ég hef fylgst með Finni og Wilhelm síðustu 2 árin og séð hvernig þeir hafa jafnt og þétt þokað málinu áfram og svo gekk Ingibjörg til liðs við þá.
Þessi þrjú eiga heiður skilið. Þau sættu sig ekki við endalast innantómt bla bla bla um að eitthvað þyrfti að gera. Þau stóðu upp og framkvæmdu.
Framkvæmdirnar eru einmitt það sem eldri borgarar þurfa á að halda. Fallegar hugvekjur um hina minnstu bræður og FÓLKIÐ OKKAR skila engu, nákvæmlega engu.
Nú er komið að okkur að fylgjast grannt með málarekstrinum og styðja við málið ef leitað verður eftir því. Þetta er mál sem tekur tíma og verður rándýrt.
Þremeningarnir hafa gengið svo frá öllu að ekkert annað en fullkomlega löglegt er í boði.
Söfnunarsjóðurinn hefur verið stofnaður og þinglýstur. Lögmenn hafa tekið málið að sér. Allt hefur verið gulltryggt svo að ekki verði hægt að hengja einn eða neinn fyrir að ekki hafi verið staðið rétt að málum.
Ég hlakka til að fylgjast með. Ég hlakka til að sjá upplitið á ráðamönnum þjóðarinnar til margra áratuga þegar endanleg niðurstaða birtist.
Ef það væri manndómur í íslensku réttarkerfi þyrfti þetta mál ekki að fara fyrir Mannréttindadómstól. Ef það væri réttlæti í íslenska kerfinu mundi Landsréttur dæma málshöfðendum í vil.
Hvað gerist vitum við ekki en þetta er komið af stað og snjóboltinn mun ekki bráðna á leiðinni. Hann kemst alla leið niður fjallið og við munum fagna sigri að lokum.
 
Hulda Björnsdóttir

Ég er ekki hinn minnsti bróðir – samt er ég á sultarlaunum eftirlauna – hver berst fyrir bættum kjörum okkar?

28.október 2019

Það er næstum alveg sama hvað Trump gerir, hann segir alltaf að það hefði átt að gera það í tíð fyrri forseta. Nú er búið að drepa enn einn hryðjuverkagúrúinn og Trump ræður sér ekki fyrir gleði og rausar út í eitt um eigið ágæti. Myndir hafa verið birtar þar sem kallinn situr ábúðarmikill fyrir borðsendanum með merkjapríddu liði til beggja hliða.

Mér datt þetta í hug þegar ég sá grein eftir formann stærsta félags eldri borgara áðan. Hann talar þar um ævisögu sína, maðurinn auðvitað frægur og ekkert minna en ævisaga getur tekið á því einstaka máli. Svo talar hann um fólk sem hafi dáið. Sumir líklega vegna aldurs og aðrir vegna sjúkdóma. Auðvitað deyr fólk og er rétt að geta þess. Það létust til dæmis 3 ungmenni, vinir, í nótt hér í litla landinu mínu. Þau fórust í bílslysi. Svo lést 14 ára drengur í traktorsslysi í dag. Það deyr fólk á hverjum einasta degi hér í landinu mínu í umferðarslysum og er vissulega haft orð á því og birt í blöðum. Þetta er hræðilegt ástand og í gær varð ég vitni af “næstum því” slysi þar sem ungur maður keyrði eins og vitfyrringur inn á litið hringtorg og bíllinn lyftist á aðra hliðina en sem betur fer rétti hann sig af, það er bíllinn, og ekki varð slys.

Hvað koma slys í útlöndum við grein formanns stærsta félags eldri borgara á Íslandi?

Jú, þetta er partur af lífinu og á rétt á að um sé fjallað. Hins vegar sé ég ekki hvers vegna maðurinn, sem hefur nú nýlega fagnað 80 ára afmæli sínu, notar ekki vettvang “Lifðu núna” til þess að heyja baráttu fyrir kjörum eldri borgara. Hann minnist aðeins á hina minnstu bræður! Og baráttu fyrir bættum kjörum þeirra.

Mér er verulega misboðið þegar formaðurinn kallar mig hinn minnsta bróður og gerir lítið úr mér og mínu ævistarfi. Ég hef að vísu ekki orðið fræg fyrir að sparka í tuðru á fótboltavelli eða að skipta um stjórnmálaflokka en ég hef unnið samviskusamlega og fylgt lögum og reglum landsins og greitt skatta og skyldur og sparað í Lífeyrissjóð til efri áranna og ætti að hafa það sæmilegt ásamt öðrum á mínum aldri þegar starfsævinni er lokið.

Það er ekki við miklu að búast með slíka forystu í baráttumálum okkar eldri borgara. Það er eiginlega rökrétt að ástandið sé eins og það er með þennann ágæta formann í stærsta félaginu og fráfarandi formann nú sem formann í Landssambandinu.

Ég verð þó að segja að Grái herinn, sem snéri við blaðinu nýlega og varð alvöru baráttuafl, er að standa sína plikt. Málssóknarsjóðurinn er að sjá dagsins ljós og Finnur, Wilhelm og Ingibjörg eru að lyfta grettistaki með starfi sínu. Sem betur fer er til fólk sem bullar ekki út í eitt í hugvekjuformi um hina minnstu bræður. Nei, það er sem betur til fólk sem brettir upp ermarnar og framkvæmir það sem getur skipt máli fyrir eldri borgara. Þannig fólk eru þessi þrjú og þeir sem starfa með þeim innan núverandi Gráa hers og er ég þakklát fyrir þau.

Ég vildi að ég gæti haft áhrif á að fá öflugann mann til forystu í stærsta félagi eldri borgara. Ég hef engin völd. Ég hef eiginlega ekkert með málið að gera annað en að ég nýti rétt minn til þess að taka við eftirlaunum frá Íslandi, réttindi sem ég hef verið að vinna mér inn alla starfsævina, mara áratugi.

Ef Kinverska alþýðuveldið hefði veitt mér varanlegt dvalarleyfi hefði ég búið í Kína núna og þá hefði íslenska ríkið sloppið við að greiða mér eftirlaun. Það er nefninlega ekki sama hvar þú býrð þegar þú ferð á 67 ára aldurinn og réttindi þín til eftirlauna rjúka út um gluggann ef þér dettur sú fyrra í hug að flytja til Asíu! Það má kannski segja að Kínversk stjórnvöld hafi gert mér greiða með því að gera mér eins erfitt fyrir og mögulegt var með að búa í landinu sem ég hafði valið mér. Stundum sér maður að mestu vonbrigðin eru líklega fyrir bestu eins og sakir standa.

Svo ég víki aftur að því jákvæða í þessum pistli mínum, framtaki Finns, Wilhelms og Ingibjargar, þá er ærandi þögn stjórnmálamanna, þeirra sem eru í andstöðunni, um þetta mál. Flokksformaður FF hefur blásið út af stolti yfir máli móður Ingu gegn TR og er hress með að það mál vannst og mismunar fólki eins og svo oft áður. Í upphafi var hrópað hátt á vegum FF um réttlætið fyrir alla. Núna er komið í ljós að sumir, móðir Ingu, er réttlátari en aðrir og hennar réttlæti er annað en okkar hinna.

Inga, formaður FF gæti hugsanlega sett dæmið svona upp miðað við það sem ég hef heyrt til hennar í fjölmiðlum um málið:

Hugsum okkur að Inga væri spurð í fjölmiðli hvernig stæði á því að móðir hennar fengi dráttarvexti en aðrir fjármagnstekjur (vexti) sem TR telur vera tekjur og koma til skerðinga á eftirlaunum? (ég fékk skerðingu vegna vaxtanna og þurfti að endurgreiða skuld sem varð til vegna útreiknaðra vaxta hjá mér sem voru hins vegar kallaðir dráttarvextir hjá móður Ingu)

Inga gæti til dæmis orðað þetta svona:

Móðir mín var notuð fyrir ykkur öll í svo nefndu prófmáli.  Lögmaður hennar gerði ítrustu kröfur fyrir hana sem sinn skjólstæðing þar á meðal kröfu um dráttarvexti.  Sú krafa gildir þó ekki fyrir alla heldur einungis aðila málsins.Þeir sem vilja sækja dráttarvextina þurfa að gera það sjálfir gegnum dómkerfið.  Tryggingastofnun hefur ekki með þetta að gera svona er bara gildandi réttur.”

Ofangreint svar hefði hæglega getað verið frá Ingu. Guðmundur Ingi sem er hinn baráttumaðurinn fyrir fátækt fólk á Alþingi orðaði þetta svona í umræðu sem ég átti við hann á Facebook:

Guðmundur Ingi Kristinsson Landsdomur visar í stjórnarskrá og hún er æðri en almannatryggingalogin. Því má kæra þetta til úrskurðarnefnd.

Hulda Bjornsdottir En Guðmundur, þarf þá hver og einn að kæra til úrskurðarnefndarinnar? Mér finnst þetta alveg ótrúlegt mál og lýsa einhverju annarlegu kerfi sem ríkir innan Tryggingastofnunar ríkisins.

Guðmundur Ingi Kristinsson Hulda Bjornsdottir já því miður og svona hefur fjórflokkunum tekist að brjóta á lífeyrislaunaþega hjá TR í áratugi.

Guðmundur Ingi Kristinsson Hulda Bjornsdottir mun pottþett halda áfram að benda á þetta í ræðustóli Alþingis.

Hefur Guðmundur Ingi talað um þetta ákveðna mál úr ræðustól Alþingis? Ég hef ekki séð það, en það getur verið að það hafi farið framhjá mér.

LÍFEYRISLAUNÞEGAR er nýtt orð sem þingmaðurinn dregur hér upp. Ekki veit ég hvaðan það er komið en er svo sem ekki verra en hvað annað.

Einhverjir eldri borgarar hafa skrifað athugasemdir hjá mér og sagst hafa fengið það sem þeim ber. Þeir hafa líklega ekki athugað nákvæmlega hvaða afleiðingar það sem þeir fengur greitt hefur fyrir framhaldið eða hversu miklar skaðabætur þeir fengu vegna málsins. Dráttarvextir eru samkvæmt ótal dómum Hæastaréttar landsins ekki vextir, þeir eru skaðabætur, en samkvæmt ummælum Ingu og Guðmundar eru þeir dómar tómt rugl sem enginn hlustar á !

Já, baráttan er ekki alveg einlit. Sumir eru jafnari en aðrir. Sumir eru betur settir og nýta sér ýtrustu þjónustu hvernig svo sem þeir fara að því. Það kemur mér auðvitað ekkert við hvar alþingismenn búa eða hvað þeir borga í húsaleigu. Það kemur mér auðvitað heldur ekkert við að farið sé í mál við TR og blásið út að þar sem flokkurinn eigi svo mikla peninga ætli hann að kosta málið úr eigin sjóðum. Það kemur mér auðvitað ekkert við að málið drógst vegna þess að sótt var um gjafsókn og hún fékkst.

Það kemur mér auðvitað ekkert við og ég á ekkert að vera að spyrja svona spurninga en ætla samt að gera það:

HVAÐ BORGAÐI FLOKKUR FÓLKSINS MIKIÐ FYRIR MÁLSSÓKNINA GEGN TR VEGNA JANÚAR OG FEBRÚAR 2017? HVAÐ FÓRU MARGAR KRÓNUR AF SJÓÐUM FLOKKSINS Í ÞESSA MÁLSSÓKN?

Flokkurinn fékk dágóðan styrk árið 2017 tæpar 10 milljónir minnir mig og væri fróðlegt að vita hvað margar milljónir hann notaði í þetta mál sem var á endanum ekki eins fyrir alla jafnvel þó um prófmál væri að ræða.

Nú rísa væntanlega upp stuðningsmenn FF og húðskamma mig. Það er allt í lagi. Ég get tekið því. Það verður fróðlegt að sjá tölurnar, þó ég búist ekki við því að þær fáist birtar. Líklega hefur FF komist inn á þing meðal annars vegna þessa máls og skrúðsins í kringum það.

Eru allir búnir að gleyma því að stór fundur var haldinn í Háskólabíói og þar átti ákveðinn lögmaður að tala um málssóknina gegn TR en hætt var við þá ræðu vegna annars vandræðamáls lögmannsins?  Það þótti ekki vænlegt til árangurs að lögmaðurinn talaði á fundinum, semsagt ekki vænlegt til atkvæðaveiða!

Ætti Flokkur Fólksins, sem segist vera fyrir alla og fyrir réttlæti handa þeim sem eru órétti beittir, ekki að vera hreinlega að ærast af gleði yfir því að nú skuli vera að skella á málssókn vegna einhvers hróplegasta ranglætis Íslandssögunnar gagnvart þeim sem hafa safnað í Lífeyrisjsóði samkvæmt lögum og reglum?

Þögnin er ærandi

Hulda Björnsdóttir

Ég vil fá jólabónus frá Lífeyrissjóði VR

24.október 2019

Eins og ég hef stundum sagt þá eru til þingmenn sem mér þykja skörungar og ég gæti hugsanlega treyst. Hins vegar, þegar ég skoða málið þá snýst mér hugur. Eitt dæmi er Helga Vala Helgadóttir sem ég hef trú á að vilji vel og hún rífur sig þegar henni þykir viðeigandi. Hið sorglega er að hennar rödd er ekki nægileg. Hún verður eins og aðrir stjórnmálamenn að beygja sig undir flokksagann. Hvað getur hún þá gert? Jú, með því að koma sér vel inn í t.d. velferðarkerfið sem er skrímsli út af fyrir sig, þá getur hún frætt samflokksmenn sína. Ég hef trú á henni en hið sorglega er að ég hef ekki sömu trú á öllum þingflokknum. Annað er svo að flokkur Helgu kemst ekki einn í stjórn og þá byrja hrossakaupin.

Við getum talað endalaust um hvernig skerðingar eiga að vera en á meðan kerfið er slíkt skrímsli sem það er núna þá skiptir engu máli hvað verður gert við skerðingarnar.

Tryggingastofnun er ríki í ríkinu og þar er eitthvað valdaapparat sem ég skil ekki en þyrfti líklega að skoða smávegis.

Við getum líka endalaust talað um hvað hinir og þessir gerðu í fortíðinni og eytt orku í að sannfæra okkur um að þetta sé nú allt Jóhönnu og Steingrími að kenna.

Jóhanna er löngu farin úr stjórninni og það þýðir ekkert að berja á henni.

Steingrímur er hjá Vinstri grænum og ber ábyrgð á því sem nú er gert.

Þetta er ekkert flókið.

Snúið ykkur að nútíðinni.

Hættið að moka undir spillinguna.

Opnið augun og sjáið fólkið sem sveltur.

Fólkið sem kýs sama sukkið í kosningum eftir kosningum á líklega ekki betra skilið. Hinir, sem eru að reyna að breyta einhverju hverfa í skugga peningavaldsins.

Bylting er líklega það eina sem dugar, eða þá bara að leggja upp laupana og gefast upp.

Svo er auðvitað hægt að leggjast í víking og fara til Spánar. Þar er jú að verða til Íslendingabyggð með eigin samkomusal og alles!

Til þess að eitthvað breytist þurfum við almennilega forystu í Landssambandi eldri borgara.

Öryrkjar eru held ég með góða forystu enda láta þeir í sér heyra.

Jólin eru bráðum.

Allir vinnandi menn og konur fá jólabónus, óskertann.

Eftirlaunafólk í Lífeyrisjsóði VR fær ekki jólabónus. Það er orðið gamalt og á ekki skilið að fá svoleiðis.

Jólabónus hjá TR skerðist vegna TEKNA frá lífeyrissjóðum og mundi sjálfsagt skerðast enn meira ef Líf VR gerðist svo mannlegur að greiða “aumingja gamla fólkinu” þessa bónusa!

Ég hef aldrei skilið þetta kerfi hjá Lífeyrissjóði VR þar sem jólabónus og orlofsgreiðslur eru ekki fyrir þá sem eru komnir á eftirlaun.

Það er auðvitað ekki þannig að Lífeyrissjóðurinn sé eitthvað verri en aðrir.

Hvað ætli starfsfólk og stjórnendur VR og Lífeyrissjóðsins fái í orlofs og jólabónusa?

Æi, auðvitað er þetta bara öfund og illgirni í mér að vera að hafa orð á þessu.

Það var reyndar þingmaður sem henti þessu aðeins í loftið í fyrirspurnartíma á hinu HÁÆRUVERÐUGA um daginn! Hann er að sjálfsögðu í stjórnarandstöðu og kemst líklega ekki aftur á þing næst þegar kosið verður enda tilheyrir hann ekki fína fólkinu!

Fína fólkinu er nokk sama um einhverja öryrkja og eftirlaunafólk! Svoleiðis hópar eru bara fyrir og dásamlegt að losna við þá sem flesta úr landi svo hægt sé að skera niður greiðslur til þeirra og nota peningana í annað og betra, svo sem til að greiða niður skuldir fyrir suma sem geta komist í ráðuneyti eftir ráðuneyti og stjórnað landinu, sjálfum sér og sínum til hagsbóta.

Viðbjóðslegar staðreyndir, en staðreyndir þó.

Hulda Björnsdóttir

Hver gæti verið góður formaður Landssambands eldri borgara? – Gefur einhver kost á sér?

12.október 2019

Hvaða kostum þarf formaður Landssambands eldri borgara að vera búinn?

Ég hef mikið velt þessu fyrir mér, lengi.

Þegar ég skelli fram hugmyndum eru þær oft búnar að veltast í huganum á mér fram og til baka í þó nokkuð langann tíma og mér finnst þær fullmótaðar þegar ég sturta þeim út í þjóðfélagið.

Hér er til dæmis ein, það er hvernig þarf formaður LEB að vera!

Ég hef fylgst með skrifum þeirra sem hafa látið sig málefni eldri borgara varða.

Ég hef hlustað á þetta fólk þegar tækifæri hefur gefist.

Ég hef hlustað á núverandi formann LEB allt frá því að ég byrjaði að skipta mér af málefnum eldri borgara, líklega í ein 3 eða 4 ár.

Ég hef fylgst með núverandi formanni LEB í stöðu formanns FEB í Reykjavík og nágrennis og ég hef fylgst með frúnni sem formanni fjölmenns verkalýðsfélags.

Ég veit fyrir mína parta, hvernig formaður LEB á EKKI að vera.

Ég hef talað við nokkra sem mér hafa fundist gætu uppfyllt kröfur sem gera þarf til formanns í LEB. Allir hafa verið uppteknir í öðru, í málum sem snerta þó eldri borgara, og hafa viljað einbeita sér að þeim málum og hafnað því að hugleiða formennsku í LEB. Gott og vel og ég sætti mig fullkomlega við rökin.

Nýjasta hugdetta mín um hæfann formann LEB er einstaklingur sem ég hef fylgst með þó nokkuð lengi. Ég hef ekki alltaf verið sammála því sem hann hefur verið að segja og finnst það eðlilegt. Hann hefur heldur ekki alltaf verið sammála mér og það finnst mér líka eðlilegt. Það er heilbrigt að vera ósammála stundum en geta jafnframt virt kosti viðkomandi.

Þegar ég skoða viðkomandi þá kemst ég að þessari niðurstöðu:

Hann er lífsreyndur og með reynslu sem gæti hafa verið snúin oft og tíðum.

Hann er rökfastur og lætur ekki vaða ofan í sig.

Hann er vanur að koma fram og sú reynsla mundi nýtast vel í formannsstarfi LEB.

Það er ekki fyrir hvern sem er að standa upp í hárinu á stjórnmálamönnum sem halda fram hverju bullinu á fætur öðru, en þessi einstaklingur gæti hæglega gert það og mundi að öllum líkindum standa á sínu.

Hann er á réttum aldri, alveg að komast á eftirlaunaaldurinn og hefur þar af leiðandi annað sjónarhorn en þeir sem hafa verið fastir í kassanum um langt skeið og orðnir samdauna aðgerðarleysinu.

Hann er tilbúinn til að skoða mál og kynna sér þau og jafnvel breyta umfjöllun sinni samkvæmt nýjum upplýsingum.

Ég gæti talið fleira upp en læt þetta duga í dag.

Ég hvet fólk til þess að hugsa um hvernig 2 síðustu formenn LEB hafa reynst.

Haukur Ingibergsson, grjótharður framsóknarmaður, var nú ekki alveg að skilja um hvað málefni eldri borgara fjölluðu.

Þórunn H. gagnrýndi Hauk miskunnarlaust og settist í hásæti hans með góðum stuðningi FEB i Reykjavík sýndist mér.

Þórunn hefur setið í nefnd eftir nefn, hún hefur verið þáttakandi í skýrslugerð eftir skýrslugerð um aðstæður eldri borgara. Hvað hefur svo komið út úr öllum þessum nefndarsetum og skýrslugerðum? Hver og einn getur spurt sig að því.

Ég gæti skrifað langann lista en það hlægilegasta af öllu sem frúin hefur látið út úr er þegar hún vildi að allir eldri borgara notuðu IPADINN til að gera sér lífið auðveldara!

Sú athugasemd frúarinnar toppaði allt annað sem frá henni hefur komið, finnst mér.

Ég hef á tilfinningunni að formannsembætti í Landssambandinu gæti hugsanlega fallið í þá gryfju að ganga í erfðir og þá væri illt í efni.

Ég held að það sé ekki vænlegt til árangurs að hafa pólitíkus í þessu embætti. Ég held að þeir séu svo litaðir af kassaleiknum að þeir gætu ekki barist fyrir breyttum áherslum.

Hvað getum við, eldri borgarar gert?

Við getum sameinast um góðann baráttumann.

Látið nú hugmyndaflug ykkar á flug og komið með tillögur.

Ég veit hvern ég mundi vilja í embættið en veit ekki hvort hann hefði áhuga og það verður að koma í ljós.

Kannski mun einhver svara þessari grein minni og bjóða sig fram í embættið, það væri nú ekki amalegt.

Með helgarkveðju

Hulda Björnsdóttir

Við þurfum kjarkmikinn formann Landssambands eldri borgara – Formann sem þorir!

12.október 2019

Eitt og annað sem mér liggur á hjarta núna!

Ég ætla mér að hafa skoðun á fylgi Klaustursbræðra.

Það er mér alveg óskiljanlegt hvernig flokkur með slíka í forystu getur aukið fylgi sitt jafnt og þétt hjá íslendingum. Hvað er eiginlega að fólki, eða er þetta kannski bara flott og allt í fínum farveg. Innan bræðranna eru 2 sem sviku sig inn á flokk sem ætlaði að berjast fyrir bættum kjörum þeirra sem eru fátækir á ÍSLANDI. Ef skoðað er hvernig þessir 2 greiddu atkvæði á alþingi er ljóst að þeir voru á allt annari línu en stefna flokksins var. Ég ætla ekkert að halda uppi vörnum fyrir Flokk fólksins en það er öllu hægt að ofbjóða og líka mér.

Klaustursklíkan og talsmáti hennar var rétt eins og Trump þegar hann var að hæla sér af því að hann gæti farið upp á hverja sem er og gert hvað sem honum þóknaðist. Bandaríska þjóðin kaus hann og líklega verður hann aftur forseti næstu 4 árin.

Ég skil ekki hvernig íslensk þjóð getur látið hafa sig að fíflum aftur og aftur. Ekki nóg með að Sjallarnir séu kosnir endalaust þrátt fyrir spillingu, eiginhagsmuna smölun á fé þjóðarinnar og ekki má gleyma hjartnæmu bréfi Bjarna Ben frá árinu 2013 þar sem hann plataði eldri borgara með fagurgala hreint upp úr skónum án þess að blikna.

Ég hef þó ekki séð sorakjaft frá Bjarna Ben, bara hroka og lygi. Klausturbræður eru einstakir og ef þjóðin ætlar að veita þeim brautargengi í næstu kosningum þá er líklega best að hætta að reyna að koma fólki í skilning um að á Íslandi sé ömurleg fátækt og öllum til skammar sem ráða þar ríkjum.

Það kemst enginn, ENGINN, inn á Alþingi nema með atkvæði kjósenda.

Nú er í umræðunni að kjósa þurfi gamalt fólk inn á þing, jafnvel að stofna flokk eldri borgara!

Hvaða rugl er þetta eiginlega?

Heldur fólk að hægt sé að hafa flokk um eitt málefni í núverandi skipulagi á Íslandi?

Flokkur eldri borgara þarf að hafa skoðun og stefnu í utanríkismálum, í sjávarútvegsmálum, í varnarmálum, í samgöngumálum og áfram gæti ég talið upp en þetta nægir.

Það á ekki að stofna flokk eldri borgara. Það þarf að hafa fólk utan Alþingis til þess að berjast fyrir málefnum eldri borgara. Við erum með grútmáttlausa forystu hjá Landsambandi eldri borgara.

Við treystum meira og minna á forystu Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis af því að það er fjölmennasta félagið.Drottningin fór þaðan og yfir í Landssambandið og situr nú þar í hásæti sínu og bullar út í eitt rétt eins og hún hefur gert í áratugi.

Nei,

Nú er komið nóg.

Ég hef lengi velt því fyrir mér hver gæti verið góður formaður LEB.

Ég hef biðlað til nokkurra og fengið nei, vegna þess að viðkomandi voru að vinna að öðrum málum og vildu beita sér af öllum krafti þar.

VInkona mín ein spurði hvað við geætum gert.

Ég held að við getum gert eitt og annað. Við þurfum að fá manneskju í forsvar sem er inni í málunum, og er tilbúinn að standa með okkur.

Við þurfum að finna slíkan einstakling. Hann er til. Ég veit það eða réttara sagt ég er sannfærð um það.

Hugleiðið, þegar þið hlustið á fólk sem talar um málefni eldri borgara, hvort viðkomandi er að bulla út í loftið eða hvort viðkomandi er vel inni í málum.

Þetta er ekkert flókið.

Hulda Björnsdóttir

The winter is around the corner in my little land

10th of October

Good morning

71884674_1442185012599988_2240843635580993536_o

Just few words at the beginning of the day

It´s summer today and the next 2 days in my little land but then the winter arrives with cold and rain. It will be strange to go from 30 degrees down to 18 during 24 hours.

Although, this is fine because the fires will slow down or even dye when the rain arrives in all its glory and the smell of winter arrives.

This wonderful special smell that is everywhere when the wood is burning in the fireplaces from morning to night. Most of the people have their fireplaces in the kitchen and they sit there when the rest of the house is often freezing cold.

Some of my friends have told me that they go into their bedroom and there is a white cloud sailing from their mouth into the air. When that happens there is just one thing to do: Escape under the thick quilt and undress there. This is how it is for many of my fellow country men in my little land during the winter.

I was going to talk about when we compare prices between countries. We have to remember that the salary plays a part in the prices. In a country where salary is higher the prices are also higher. In countries where the salary is lower the prices are also lower. This makes sense.

Of course it is cheaper to live in a country with low salary. It does not change the fact for the Icelandic senior citizens that their pension in Iceland is too low and the government cheats them and confiscates part of their savings. This is unfortunately a fact !

It is also a fact that Icelandic senior citizens can have a better life financially  living in countries as for example Spain where everything is cheaper than in Iceland.

There are many who move to Spain when they are 67 or more. They don´t want to but they have to, just to make sure they have food on their plates every day and a house to live in. They do sacrifice a lot. They leave their families and friends behind. They are in a way just like refugees by choice.   

It is sad that the country which is one of the richest in the world does not have ambition to make sure that all its citizens can live with dignity.

People talk about the beauty of the country, they talk about the mountains and the waterfalls and the northern lights and everything is so amazing. Those people are tourists who visit and stay for few days. Those people have no idea about the real situation that so many in this beautiful country experience every day, every month and every year after they become 67 years old.

I left the country decades ago. I am never going back. I have found a new homeland where I love my people and my little land. I have made a new life for me where I am happy and content. Some might say that I am ungrateful and should not talk about what is the reality in the land where I was born.

The truth is sometimes hard to swallow.

If I did not get my pension from Iceland I would never even think about the country. I have earned my right during my working life in Iceland to get my pension from there.  I have also according to Icelandic law saved for my life after 67 and that is part of my pension.

I do fight for the poor and those in Iceland who are left behind. I do this by writing. Its my duty. I will continue fighting but to tell you the truth it is occasionally devastating. The government in Iceland is not for the ordinary ones. They are for the elite.

Then I ask myself, why do people in Iceland vote for the same again and again and again?

I don´t know why!

I just hope something will change and keeping the hope on top of everything makes the fight worth while, at least for the time being.

My thoughts for today are above. Strange how the thoughts wander.

I hope your day will be ok and send you my best wishes.

Hulda Björnsdóttir

 

 

 

 

 

Hafdís Hauksdóttir ber mig þungum sökum – Ég krefst svara

9.október 2019

Það er eitt og annað sem hefur verið kastað í mig eftir að ég hóf að skrifa um málefni eldri borgara, öryrkja og fátækra á Íslandi.

Sumt hefur verið sent í persónulegum skilaboðum og hef ég ekki verið að ómaka mig á því að svara skítnum.

Í gær fékk ég hins vegar alveg nóg og eftir blammeringar frá Hafdísi Hauksdóttur var ég half orðlaus.  Athugasemdir hennar eru svo út úr öllu samhengi að ég settist niður til þess að skoða prófíl þessarar manneskju.

Upplýsingar eru sáralitlar. Hún á 211 facebook vini og margir þeirra eru fyrirtæki. Hún býr í Reykjavík samkvæmt upplýsingum hennar. Það kemur ekki fram aldur eða fæðingarár. Semsagt, upplýsingar af mjög skornum skammti.

Mér finnst lágmark að þeir sem eru að commenta á viðkvæm mál, eins og málefni eldri borgara og öryrkja eru, sjái sóma sinn í því að hafa sæmilegar upplýsingar um sig.

Semsagt

Hafdís Hauksdóttir leggur mér lífsreglurnar:

“ Vertu bara á bótum erlendis ef þú hefur það betra þar!!!! “

Síðan kemur næsta comment frá Hafdísi við mínu commenti þar sem ég segi að þetta sem er hér á undan sé mjög einkennileg athugasemd:

“nei fólk á ekki að vera á bótum hér ef það býr erlendis er bara að vitna í eina setningu hjá þér og búið, það er ekki hægt að vera með lögheimili í einu landi og búa í öðru landi og halda áfram að kvarta yfir öllu hér á landi eins og ég er margsinnis búinn að lesa. Er samt engan veginn sjálf sátt við hlutina hér á landi!!!!!!  “

Það er þetta comment frá Hafdísi Hauksdóttur sem mér finnst í meira lagi athugavert.

Hún gefur hér í skyn að ég sé með lögheimili á Íslandi og búi í öðru landi!

Síðan gefur hún í skyn að hún hafi marglesið, líklega eftir mig, kvartanir yfir öllu á Íslandi.

Að lokum klykkir Hafdís Hauksdóttir út með því að segja að hún sé samt sjálf engan vegin sátt við kerfið á Íslandi, og notar óspart upphrópunarmerkið.

Ég spurði Hafdísi Hauksdóttur hver það væri sem byggi í öðru landi og væri með lögheimili á Íslandi? Hún hefur ekki svarað þeirri spurning þegar þetta er skrifað sem þú ert að lesa núna.

Ég spyr mig

Hvaðan hefur Hafdís Hauksdóttir þær upplýsingar að ég búi erlendis en sé með lögheimili á Íslandi?

Hafi hún þessar upplýsingar ætti hún að tilkynna það til Ríkisskattstjóra, Tryggingastofnunar ríkisins og Þjóðskrár, ef hún ætlar að vera samkvæm sjálfri sér.

Það er auðvelt að fletta mér upp í þjóðskrá og sjá hvar ég er skráð !

Á facebook síðu minni kemur fram hver er fæðingardagur minn, ég hef einfaldlega ekkert að fela, en gæti auðveldlega giskað á að frú Hafdís Hauksdóttir væri ekki alveg gegnsæ með upplýsingar sínar.

Ég veit ekkert hvað hún er gömul. Ég veit ekkert hvort hún er vinnandi eða ekki. Ég veit nákvæmlega ekkert um hana annað en að hún vænir mig um svindl á kerfi sem er lögleitt á Íslandi, kerfi sem ég fylgi í einu og öllu.

Ég hef ekki búið á Íslandi í mörg ár, hátt á annann áratug síðan ég flutti. Ég er ekki búin að vera 67 ára nema í 7 ár. Ég hef ekki þegið neinar bætur frá íslenska ríkinu. Ég fæ eftirlaun frá Lífeyrissjóði og frá Tryggingastofnun ríkisins.  Ég niðurgreiði það sem ég fæ frá TR með tekjum mínum frá Lífeyrissjóði þar sem TR skerðir eftirlaun þeirra um 45 prósent vegna tekna minna frá Lífeyrissjóði sem ég hef sparað í alla mína starfsæfi lögum samkvæmt og einnig hef ég greitt skatta og skyldur til íslenska ríkisins frá unga aldri.

Ég skora á Hafdísi Hauksdóttur að upplýsa mig og aðra sem fylgjast með skrifum mínum um eftirfarandi:

  1. Hvar er lögheimili mitt á Íslandi?
  2. Hvaða bætur þigg ég frá íslenska ríkinu?

Ég á fullan rétt á því að Hafdís Hauksdóttir upplýsi þessi 2 atriði án tafar og einnig fer ég fram á að hún sýni þann manndóm að kæra svik mín til Tryggingastofnunar, Ríkisskattstjóra og Þjóðskrár.

Geri hún það ekki þá eru ummæli hennar dauð og ómerk og hún ætti að sjá sóma sinn í því að biðja mig opinberlega afsökunar á áburðinum.

Ég mun hins vegar halda áfram að skrifa um bág kjör eldri borgara, öryrkja og fátæks fólks á Íslandi. Hafdís Hauksdóttir kemur ekki í veg fyrir baráttu mína fyrir bættum kjörum þessara hópa. Það er  sorglegt að til skuli vera fólk eins og Hafdís sem hefur líklega ekki kjark eða þor til þess að vinna með þeim sem eru að benda á hvernig íslenskt velferðarkerfi fer með suma þegna sína.  Haldi Hafdís Hauksdóttir að þeir tugir Íslendinga sem hafa flúið land til þess að komast af séu allir brotamenn þá get ég upplýst hana um að svo er ekki. Þetta fólk eru góðir og gegnir borgarar sem hafa þurft að yfirgefa fjölskyldu og vini á landinu sem þeir ólust upp í og gerast útlagar í framandi landi og löndum þar sem ólík tungumál eru töluð, ólík menning og venjur ríkja. Það er ekki auðvelt fyrir íslendinga að gerast flóttamenn en þeir sem það gera eiga engra kosta völ. Velferðarkerfi á Íslandi er ekki fyrir almenning. Það er sniðið fyrir hina vel stæðu og séð fyrir þeim í hvívetna. Það þarf ekki að berjast fyrir bættum kjörum 20 prósentanna sem fleyta rjómann af íslenskum ríkistekjum og sjá um að velferðarkerfið svelti. Það þarf hins vegar að berjast fyrir réttlæti fyrir tugina og hundruðin sem berjast í bökkum alla daga ársins.

Hulda Björnsdóttir

 

Ég er þreytt og eiginlega vonsvikin

  1. október 2019

Góðan daginn

Facebook minnir mig á að ég hafi ekki skrifað hér og vill að ég haldi mér við efnið!

Ég verð að viðurkenna að ég er þreytt og pínulítið vonlaus.

Eldri borgarar hafa nú fengið leiðréttingu vegna jan og feb 2017 ásamt rukkun um skatt vegna fjármagnstekna sem dráttarvextir hafa skyndilega breyst í.

Tryggingastofnun túlkar dóm móður Ingu í hag og hún fær dráttarvexti samkvæmt túlkun TR en aðrir frá vexti og borga þar með fjármagnstekjuskatt af góssinu.

Sumir eldri borgarar fá litlar upphæðir og aðrir geta fengið allt upp í tæpa hálfa milljón vegna skerðinga þessa 2 mánuði árið 2017.

Ég skrifaði um hvernig þetta færi og fékk ekki mikil viöbrögð.

Ég skrifaði um hvernig ég ætlaði að bregðast við óréttlætinu og fékk ekki mikil viðbrögð.

Ég skrifaði um að ég væri búin að kæra til Úrskurðarnefndar velferðarmála og fékk enn sáralítil viðbrögð.

Nú spyr ég sjálfa mig enn einu sinni hvort það sé ekki bara ágætt að hætta að skipta mér af málum eldri borgara og láta bara sem ég viti ekki hvernig farið er með þennann hóp þjóðfélagsins.

Þegar flokkar sem þykjast vera að berjast fyrir bættum kjörum þeirra sem hafa það viðbjóðslega skítt á forríku landinu láta ekki svo lítið að benda á óréttlætið sem er núna beitt í garð eldri borgara vegna jan og feb 2017 þá langar mig helst til að æla.

Hræsnin er með ólíkindum.

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki enn fórnað tíma í að hlusta á þátt RÚV um málefni eldri borgara en verð líklega að gera það fyrr en seinna. Hef þó séð eitt og annað skrifað um fyrirbærið og það skásta sem ég hef séð er frá Viðari þar sem hann talar um eftirlaun frá TR í réttum tölum og er ekki að pússa saman eftirlaunin og heimilisuppbótina sem er jú félagslegur styrkur rétt eins og t.d. húsaleigubætur og fleira sem þeir sem búa á Íslandi njóta.

Það er mikilvægt að ALLIR sem skrifa og tala um tölur eftirlauna frá TR viti að heimilisuppbót er félagslegur styrkur fyrir suma en alls ekki alla.

Það er líka mikilvægt að þeir sem tala um eftirlaun frá TR geri  sér grein fyrir, að þegar fólk flytur úr landi til þess að drepast ekki úr hungri þegar aldurinn er orðinn meira en 67 ára, þá fær það fólk ENGAR aukagreiðslur og enga afslætti. Strípaður ellilífeyrir, sem er svo skertur eins og enginn sé morgundagurinn, er það eina sem flóttafólkið, íslenska flóttafólkið fær.

Það eru ekki bara stjórnmálamenn og sú elíta sem býr í kössum.

Það er þó nokkuð af eldri borgurum, þessum sem kjósa sjálfstæðismafíuna aftur og aftur, sem láta ljós sitt skína á Facebook og dásama alla afslættina og unaðslegu kjörin sem eldri borgurum á Íslandi er boðið upp á, að ég tali nú ekki um dásemdina sem þeim sem flýja landið er úthlutað.

Það er ágætt að hamra á því hvað landið sé ægilega fagurt og náttúran einstök.

Við, eldri borgarar, þessir venjulegu, étum ekki fegurðina. Við sjóðum ekki í potti fjöll og norðurljós. Við þurfum mat til þess að nærast en ekki fjöll. Við getum heldur ekki skýlt okkur fyrir veðri og vindum með norðurljósum þegar við búum í tjöldum í skrúðgörðum hinnar dásamlegu höfuðborgar!

Nei, við þurfum að geta haft almennilegan mat, almennilegt húsaskjól, almennilega heilsugæslu, almennileg eftirlaun þegar við hættum að vinna og það er ekki hægt að henda okkur öllum út á guð og gaddinn bara til þess að fáir geti haft það eins og greifar og þurfi ekki að líta upp úr kössunum sem þeir hafa komið sér fyrir í.

Núverandi ríkisstjórn er mannfjandsamleg.

Komandi ríkisstjórn þykist vera mannúðar stjórn.

Já, ég segi þykist. Ég hef ENGA  trú  á liðinu sem argar um fátæka fólkið og gefur svo skít í óréttlætið sem ég minntist á í upphafi. Dráttarvextir fyrir móður Ingu, fjármagnstekjur fyrir hina. Það er réttlætið sem svo er réttlætt með þvi að segja að svona hafi fjórflokkurinn komið þessu fyrir!

Hah

Skammist ykkar niður í tær, þið sem ÞYKIST og sýnið svo hið rétta andlit þegar á reynir.

Við erum ekki fífl, við erum bara þreytt og flestir búnir að gefast upp á því að argast í vonlausum flottræflum sem skara að eigin köku og láta sem hinir séu ekki til.

Hulda Björnsdóttir