45% skerðing launa þingmanna – Uppkast
- nóvember 2019
UPPKAST
Ég er að velta fyrir mér framkomu þingheims sem stýrir því hvernig fjármunum þjóðarbúsins er varið. Þetta er uppkast og vafalaust einhverjar villur sem leiðrétta má. Ég þigg allar góðar ábendingar og held áfram að þróa þetta plagg.
Ég ætlaði að skerða laun þingmannsins um 45% eins og gert er við eftirlaunin mín!
Hvernig kemur það svo út?
Eftir að hafa skoðað laun Klaustursfrúarinnar þá er ég eiginlega á báðum áttum með hvernig ég get hugsanlega verið svo andstyggileg að skerða gullið um 45% og ætla að láta það bíða aðeins.
Ég ætla að leyfa mér að hvetja þá sem hafa tölvur til að fara inn á vef alþingis og skoða einstaka þingmenn. Það kemur ýmislegt fróðlegt í ljós.
Ráðherrar hafa lækkað verulega í launum samkvæmt vefnum eftir að þeir urðu ráðherrar.
Hver eru svo laun frúarinnar fyrir árið 2019 á mánuði? Þar er ég að tala um fastar mánaðargreiðslur sem hún þarf að greiða skatt af:
Svo laun Klaustursfrúarinnar eru á mánuði svona:
Laun (þingfararkaup)1.101.194 kr.
Fastur starfskostnaður per mán er kr 40.000
Fastur ferðakostnaður í kjördæmi er 30.000
Frúin er ekki formaður nefndar eða þingflokks og hefur þar af leiðandi ekki nema þetta í föst mánaðarlaun. Þar með er ekki sagt að hún lepji dauðann úr skel því eitt og annað fellur til fyrir hina háttsettu !!!!!!
Þingkona Miðflokksins hefur til dæmis fengið þetta greitt í ferðakostnað innanlands það sem af er árinu 2019:
| Ferðir á eigin bifreið | 47.740 | ||
| Ferðir með bílaleigubíl | 525.764 | ||
| Flugferðir og fjargjöld innan lands | 1.130.166 | ||
| Gisti- og fæðiskostnaður innan lands | 82.822 | ||
| Eldsneyti | |||
| Ferðakostnaður innan lands samtals | 1.786.492 |
Svo hefur frúin auðvitað ferðast erlendis
| Þær tölur koma síðar í skjalinu |
Skattfrjálsar greiðslur það sem af er árinu 2019 til Miðflokksdömunnar eru
1.786.492 + 983.455 = 2.769.947 + 59.083 = 2.829,030
Já, ekki mátti gleyma síma og netkostnaði en hann hefur verið á árinu samtals krónur 59.083 og bætti ég honum við hér fyrir ofan.
Samtölur þessa eina þingmanns fyrir það sem er af árinu 2019 í skattfrjálsar tekjur eru 2.829.030
Tekjur mínar í fyrra fyrir allt árið voru rétt rúmlega 3 milljónir. Frúin, þessi miðflokkspía fær í skattfrjálsar tekjur meira árið 2019 en ég fékk fyrir allt árið í skattskyldar tekjur. Auðvitað er ég komin á eftirlaun og þarf svo sem ekkert að vera að ybba mig.
Svo fékk frúin 80 þúsund fyrir nýjum síma í fyrra. Auðvitað!
Hér kemur bil sem hægt er hugsa sér að ég sitji og hugleiði framhaldið en fyrir neðan heldur svo málið áfram!
Hver eru svo laun frúarinnar fyrir árið 2019 á mánuði? Þar er ég að tala um fastar mánaðargreiðslur sem hún þarf að greiða skatt af:
jú
Laun (þingfararkaup)1.101.194 kr.
Nú skulum við setjast niður og reikna þingfararkaupið sem hún fær greitt ef við skerðum hana eins og eldri borgarar þurfa að sætta sig við alla mánuði ársins.
45% skerðing af 1.101.194 krónum er 495.554
Launaseðillinn sem ég vil að frúin fái er svona:
Laun krónur 1.101.194
Mínus 4% lífeyrissjóður kr. 44.048
Staðgreiðsluskyld laun kr. 1.057.146 (vegna þess að framlag í Lífeyrissjóð er skattfrjálst þar til farið er að taka út lífeyrinn)
Staðgreiðsla : 402.605 mínus persónuafsláttur 56.447 = 346.158
Útborguð laun ef ekki er skert: 710.988
ÚTBORGUÐ LAUN MEÐ 45% SKERÐINGU eru krónur 1.101.194 mínus 495.554 = 215.434 krónur á mánuði hjá frú Klaustursdömu,
en auðvitað fær frúin fullt af fíniríi sem er ekki skattskylt þannig að hún fengi líklega aðeins meira en þessar rúmar tvöhundruð þúsundkrónur.
Hér að neðan eru allar greiðslur sundurliðaðar eftir mánuðum:
Laun (þingfararkaup) 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 1.101.194
Febrúar 1.101.194
Mars 1.101.194
Apríl 1.101.194
Maí 1.101.194
Júní 1.101.194
Júlí 1.101.194
Ágúst 1.101.194
September 1.101.194
Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 134.041
Febrúar 187.657
Mars 187.657
Apríl 187.657
Maí 187.657
Júní 187.657
Júlí 187.657
Ágúst 187.657
September 187.657
Fastur ferðakostnaður í kjördæmi 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 30.000
Febrúar 30.000
Mars 30.000
Apríl 30.000
Maí 30.000
Júní 30.000
Júlí 30.000
Ágúst 30.000
September 30.000
Fastur starfskostnaður 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 40.000
Febrúar 40.000
Mars 40.000
Apríl 40.000
Maí 40.000
Júní 40.000
Júlí 40.000
Ágúst 40.000
September 40.000
Ferðir á eigin bifreið 2019
Mánuður Upphæð
Ágúst 47.740
Ferðir með bílaleigubíl 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 68.778
Febrúar 69.216
Mars 68.972
Apríl 69.087
Maí 69.396
Júní 69.615
Júlí 56.100
September 54.600
Flugferðir og fjargjöld innan lands 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 227.937
Febrúar 42.840
Mars 85.275
Apríl 240.338
Maí 128.942
Júní 69.426
Ágúst 146.121
September 189.287
Gisti- og fæðiskostnaður innan lands 2019
Mánuður Upphæð
Febrúar 62.609
September 20.213
Flugferðir utan lands 2019
Mánuður Upphæð
Apríl 37.035
Júní 281.440
Ágúst 76.905
Gisti- og fæðiskostnaður utan lands 2019
Mánuður Upphæð
Apríl 88.241
Dagpeningar 2019
Mánuður Upphæð
Apríl 84.565
Júní 313.339
Ágúst 101.930
Síma- og netkostnaður 2019
Mánuður Upphæð
Janúar 6.060
Febrúar 6.000
Mars 6.000
Apríl 6.000
Maí 6.022
Júní 11.001
Júlí 6.000
Ágúst 6.000
September 6.000
Ekki má gleyma því að frúin fær jólabónus í desember sem er líklega í kringum 180 þúsund eða rúmlega það!
Er mér eitthvað sérstaklega illa við þessa frú?
Nei, eiginlega ekki, hún var að vísu partur af Klaustursævintýrinu en hérna er ég bara að tala um laun þingmanns sem ég valdi af handahófi og ekki er hægt að skamma mig fyrir að taka formann FF á beinið í þessari grein!
Það sem ég er að tala um er hvernig þingmenn mata krókinn og hvernig þeir kæmu út ef þeir þyrftu að sæta sömu skerðingum og við eldri borgarar og að ég tali nú ekki um öryrkjana og hvernig troðið er á þeim og þeirra kjörum alla daga.
Ráðherrar eru á listanum yfir laun þingmanna á vef alþingis en allar aukagreiðslur eru greiddar af ráðuneytunum og eru vel geymt leyndarmál.
Ég tek aftur fram að þetta er uppkast og ef einhver hefur áhuga á að skoða þetta dæmi og gera athugasemdir og leiðrétta þá er það vel þegið. Ég er að velta fyrir mér upplýsingum og reyna að komast að niðurstöðu. Það tekur tíma en ég vildi leyfa ykkur að fylgjast með framvindunni.
Hulda Björnsdóttir
Formaður FF er með tæplega 7föld laun eftirlaunafólksins sem á ekki inni í Lífeyrissjóði – Sanngjarnt ekki satt?
11.nóvember 2019
Ég ætla að leyfa mér að spúa því út úr mér að þingmenn ættu að skammast sín. Kjör þeirra eru hlægileg. Þeir komast undan því að greiða skatta af tekjum (hlunnindum) sem hinn almenni launþegi þarf að greiða af.
Þingmenn fá himinháa persónuuppbót ofan á ágætis laun í desember á meðan öryrkinn og eldri borgarinn þurfa að lepja dauðann úr skel. Þeir sem arga úr stól Alþingis um bætt kjör þeirra sem minnst hafa ættu að éta það sem úti frýs og sæta sömu skerðingum og sömu reglum um skattskyldu og fátæka fólkið.
Ég er svo ægilega fúl núna að ég þori varla að skrifa meira því eitthvað gæti læðst út úr puttunum á mér sem ég yrði svo sett í fangelsi fyrir því auðvitað má ekki hnika við aðlinum.
Fjandinn hafi það, ætlar fólk, hinn almenni Íslendingur, virkilega að láta hafa sig að fífli enn eina ferðina næst þegar kosið verður til Alþingis?
Ætlar almenningur að trúa lyginni og fallegu loforðunum og krókudílatárunum?
Ekki trúa pólitíkusum.
Þeir kunna held ég bara ekki að setja sannleikann á borðið.
Vitiði að frúin sem grét sig inn á þing er með 1.651.791 krónur á mánuði í föst laun fyrir utan allar sposlurnar?
Föstu launin þessarar ágætu frúar eru tæplega fimm föld mánaðarlaun mín og tæplega sjö föld laun þeirra sem eru á fullum eftirlaunum frá TR og engum greiðslum frá Lífeyrissjóði?
Í þessum samanburði er EKKI tekið tillit til allra auka auranna sem frúin fær! þeir aurar skipta nokkrum mánaðarlaunum öryrkjans!
Hvar býr svo þessi ágæti þingmaður og hvað borgar þingmaðurinn í húsaleigu á mánuði?
Auðvitað kemur mér þetta ekkert við og get bara haldið kj,,,i en ég er graut fúl og læt það eftir mér.
Hulda Björnsdóttir
Það eru að koma jól hjá sumum – Aðrir vilja ekki vita af þessum árstíma og fara í felur- Getur það verið?
10.nóvember 2019
Löggjafinn er vinur litla mannsins, Það fer ekki á milli mála!
Við sem komin erum á eftirlaunaaldur og höfum alla okkar hundstíð lagt fyrir til þess að geta lifað eins og venjulegt fólk þegar við hættum að vinna rekum okkur kyrfilega á og fáum að finna fyrir því að sparnaður samkvæmt lögum er ekki alveg það sem við bjuggumst við.
Þessi vinur litla mannsins, það er löggjafinn, sem situr á Alþingi og vélar þar um hvernig hægt sé að hjálpa aumingja útgerðinni sem er kannski enginn útgerð en hefur fengið á silfurfati úthlutað kvóta sem þeir svo græða á, bæði á tá og fingri, er EKKI vinur okkar venjulega fólksins.
Fjárlög næsta árs sanna kyrfilega fyrir hverja ríkisstjórn rauðlyppuðu konunnar vinnur.
Nú eru jól á næsta leyti.
Auglýsingar um allan heim um dásemd hátíðarinnar og dásemd kaupmanna og dílara dynja jafnt og þétt alla daga og kvöld.
Nú er að renna upp tími sjálfsmorða og uppgjafar hjá mörgum.
Nei, nei, nei, ekki tala um svoleiðis NÚNA, segja hinir háu herrar sem er nokk sama um meðferðarúrræði hins sótsvarta almúga. Hinir háu herrar skreppa út fyrir landssteinana eða bara á einkapláss þurfi þeir að þurrka sig eða eitthvað annað enn hallærislegra eins og til dæmis í hjartaaðgerð eða slíkt. Engum hinna háu herra dettur í hug að ómaka sig á því að skoða tölur um sjálfsvíg á þessum tíma svona rétt fyrir jóli. Nei nei alls ekki.
Ég er ekki á því að gefast upp sem betur fer en ætla að leyfa ykkur að sjá hvernig farið er með sparnaðinn minn eftir 40 ára starfsævi.
Mitt dæmi er nokkurn vegin svona núna:
Ég fæ 157 þúsund út úr Lífeyrissjóði, verðbólgan hefur hækkað greiðsluna um nokkur hundruð á árinu.
Ég borga skatta af þeirri upphæð (greiðslunni frá Líf) þar sem framlag mitt var ekki skattlagt þegar ég lagði það fyrir (reyndar er partur af framlagi mínu tvískattaður vegna þess að fyrir núverandi fyrirkomulag greiddum við staðgreiðslu af öllum launum og gátum ekki eins og gert núna dregið frá framlag í lífeyrissjóð og séreignasparnað)
Nú er ég komin á eftirlaunaaldur og á að fá greitt frá TR krónur 248.105 þúsund á mánuði
En
Þar sem ég hafði lagt fyrir í Lífeyrissjóð passar löggjafinn upp á að ég sé ekki of sæl
og segir mér að 25 þúsund krónur séu frjálsar og ég geti notað þær eins og ég vilji
En eftir það skuli ég gefa ríkinu 45% af sparnaðinum mínum því auðvitað megi löggjafinn ekki til þess hugsa að ég gæti ef til vill átt fyrir mat alla daga mánaðarins.
Löggjafinn ákvað að ég og aðrir sem komnir eru á eftirlaun þurfi ekki 45% af því sem ég og aðrir spöruðu lögum samkvæmt og rífur af mér ( og öllum þeim sem fórum eftir lögunum) án þess að blikna, þessi 45 prósent og notar til þess að niðurgreiða það sem mér ber frá TR.
Þannig að útkoman mín er svona:
188.705 á mánuði frá TR
Frádreginn skattur 69.708 mínus persónuafsláttur 56.447 samtals skattur kr.13.261 vegna greiðslu frá TR.
Samtals greitt frá TR eftir skatt kr. 175.444
Síðan koma 157.000 krónur frá Líf VR og þar af borga ég fullan skatt sem er krónur 57.996 þannig að eftir skatt eru tekjur mínar frá LÍF VR kr.99.004
Fyrir skatta lítur dæmið út þannig: greiðsla frá TR 199.705 og greiðsla frá líf VR 157.000
Samtals eru þessar tekjur fyrir skatt 345.705
Síðan er dreginn frá skattur 71.257 og eftir standa 274.448
Skýring:
(Hvernig er skerðingin reiknuð út hjá mér?
Eftir 25.000 frítekjumark eru tekjur frá Líf reiknaðar 132.000
og 45% af þeirri upphæð er 59.400 sem er dregin frá 248.105
svo út fæ ég frá TR krónur 188.705 þúsund.
157.000 mínus 25.000 = 132.000
45% af 132.000 = 59.400
248.105 mínus 59.400 = 188.705 )
Auðvitað eru margir með minni tekjur en þetta á mánuði og er mér það vel ljóst. Ég tek mitt dæmi af því að það er persónulegra en að vera að tala um Jón eða Gunnu úti í bæ.
Ég verð hins vegar að segja að byggi ég á Íslandi gæti ég ekki lifað af þessum 274.448 krónum mannsæmandi lífi. Ég gæti hugsanlega átt fyrir mat ef ég væri heppin með húsaleigu. Ég gæti örugglega ekki farið til tannlæknis eða keypt mér gleraugu reglulega. Ég gæti líklega átt fyrir lækniskostnaði ef ég væri ekki því lasnari og ég kæmist ábyggilega ekki í venjulega líkamsrækt því hún væri of dýr fyrir mig. Gæti ég átt bíl og rekið hann? Ég bara veit það ekki en finnst það frekar ótrúlegt en auðvitað er hægt að ferðast með strætó ef maður hefur heilsu til þess í hvaða veðri sem er.
Svo koma jólin. Ætli það væri mikið um veisluhöld hjá mér um hátíðina? Hefði ég ráð á því að bjóða fólki í mat eða gæti ég keypt jólagjafir handa þeim sem mig langaði að gefa gjafir?
Líklega ekki.
Gæti ég fengið mér góðan mat, betri mat en alla hina daga ársins, bara fyrir jól? Ég er ekki viss um það.
Þyrfti ég að fara til hjálparstofnana og leita eftir aðstoð um hátíðina? Ja, það væri ekki ólíklegt. Mundi ég hins vegar gera það? Gæti ég hugsað mér niðurlæginguna í því að standa í biðröð fyrir utan og bíða eftir því að mér yrði hleypt inn og kannski þyrfti ég að svara óþægilegum spurningum ef verið væri að ganga úr skugga um að ég ætti nú örugglega rétt á aðstoð?
Mundi ég kannski frekar halda mig heima og reyna að gleyma því að það eru jól og allir EIGA að vera svo glaðir?
Getur verið að örvænting þeirra sem hafa enn minna en mitt dæmi sýnir, sé svo yfirþyrmandi að þeir sjái enga leið út og gefist upp og takið lífið í sínar hendur og ljúki því? Ég held að það sé þannig hjá mörgum. Við tölum bara ekki um það. Við viljum ekki sjá það sem er óþægilegt og getur komið við samvisku okkar sem þjóðfélags. Sumir drekka meira um jól en aðra daga. Hvað þeir eru að drekka er svo annað mál. Sumir brugga heima og aðrir drekka dropa. Sigga svarta var hún kölluð fallega konan sem tapaði fyrir bakkusi vegna aðstæðna sem hún réð ekkert við. Það var fyrir mörgum áratugum. Hefur ástandið batnað á landi hinna ríku? Nei, það hefur ekki batnað, hins vegar hafa margir eldri borgarar og öryrkjar flúið á vit annarra landa þar sem ódýrara er að lifa og kannski hægt að horfa til morgundagsins án þess að maginn gargi af hungri.
Jólin eru tími saknaðar hjá mörgum útlögum en við því er ekkert að gera. Þeir gera eins vel og þeir geta til þess að komast af og sumum tekst það en öðrum ekki.
Gleymum því ekki að mjög margir lifa til efri ára og verða kannski gamlir. Margir þeir sem nú maka eigin krók gætu orðið fyrir óhappi eða slysi eða átt nákominn ættingja sem þeir þyrftu að taka að sér. Það er enginn óhultur en margir virðast halda að þeirra líf sé eilíft og gefa lítið fyrir náungann sem passar ekki inn í formið sem kakan er bökuð í.
Alþingismenn!
konur eru líka menn og því ávarpa ég þingheim svona:
Þið hafið valdið. Þið getið gert landið búanlegt fyrir ALLA ef þið einfaldlega viljið. Ef þið gerið ekkert í málinu annað en að blaðra endalaust um allt og ekki neitt þá eigið þið ekki skilið að sitja í þessu gamla virðulega húsi. Árangur ykkar er ekki launatengdur. Árangur ykkar speglast í því hve margir hinna fátæku lifa af þessi jól og hve margir gefast upp og hverfa til betra lífs á öðrum hnöttum hvar svo sem þeir hnettir eru. Einn góðann veðurdag kemur að uppgjörinu og guð hjálpi þeim sem nú stjórna í boði græðgi og mannfyrirlitningar.
Það er sárara en tárum taki að horfa upp á poppúlista ætla að flækja flókið kerfi enn meira og halda að það sé hægt að slá sér upp á loforðum og upphrópunum sem standast ekki skoðun. Þeir sem eru að argast í verkalíðsforystunni fyrir að vera á móti flækjunni sem nú er gargað um ættu að skammast sín og horfa á hvað þeir eru að gera og skoða málið frá öllum hliðum.
Hulda Björnsdóttir
Ekki er ég að amast við launagreiðslum þingmanna án þess að skoða ráðherrann sem brosti út um rauðar varir sínar að fátækt fólk gæti ekki beðið lengur! Það var reyndar árið 2017 fyrir bjarnafaðmlagið!
Afritað af vef Alþingis, opinberar tölur og allir geta séð hvernig þetta er.
Frúin er ráðherra og þar af leiðandi koma aukasposlurnar ekki fram hér, Þær eru greiddar af ráðuneytum og ekki smuga að komast að því hverjar þær eru, hvernig sem hamast er fæst ekkert upp um þær tölur en ef einhver veit þá er bara að koma með þær, er það ekki?
Ég hvet fólk til þess að fara inn á vef Alþingis og skoða ráðherrann. Hún hefur verið svo lengi á þingi að erfitt er að kópíera hingað en tölur fyrir árin fyrir bjarnafaðmlag eru líka áhugaverðar!
Katrín Jakobsdóttir
- Kjördæmi:Reykjavíkurkjördæmi norður
- Þingflokkur:Vinstrihreyfingin – grænt framboð
- Embætti:Forsætisráðherra
- Búseta:107 REYKJAVÍK
Fastar greiðslur
Fastar mánaðarlegar launagreiðslur |
|
| Laun forsætisráðherra að meðtöldu þingfararkaupi | 2.021.825 kr. |
Fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur |
|
| Fastur starfskostnaður | 40.000 kr. |
Yfirlit 2007–2019
Fjárhæðir breytilegra kostnaðargreiðslna (m.a. ferðakostnaður innan lands) miðast við hvenær reikningar eru bókaðir á skrifstofu Alþingis.
Ráðherrahluti launa, ferðakostnaður og símakostnaður ráðherra er greiddur af viðkomandi ráðuneyti og kemur ekki fram hér að neðan.
Hægt er að smella á upphæð hvers liðar til að sjá sundurliðun eftir mánuðum frá og með árinu 2018.
| Launagreiðslur | |||
| Laun (þingfararkaup) | 9.910.746 | 13.214.328 | 13.214.328 |
| Álag á þingfararkaup | 6.056.567 | ||
| Aðrar launagreiðslur | 181.887 | 181.887 | |
| Launagreiðslur samtals | 9.910.746 | 13.396.215 | 19.452.782 |
| Fastur ferðakostnaður í kjördæmi | 383.852 | ||
| Starfskostnaður | |||
| Endurgreiddur starfskostnaður | 39.990 | ||
| Fastur starfskostnaður | 360.000 | 480.000 | 490.646 |
| Starfskostnaður samtals | 360.000 | 480.000 | 530.636 |
| Ferðir með bílaleigubíl | 30.075 | ||
| Flugferðir og fjargjöld innan lands | 119.438 | ||
| Gisti- og fæðiskostnaður innan lands | 86.830 | ||
| Annað (jarðgöng, leigubílar o.fl.) | |||
| Ferðakostnaður innan lands samtals | 236.343 | ||
| Ferðakostnaður utan lands | |||
| Flugferðir utan lands | 202.309 | ||
| Gisti- og fæðiskostnaður utan lands | 49.392 | ||
| Dagpeningar | 221.220 | ||
| Annar ferðakostnaður utan lands | |||
| Ferðakostnaður utan lands samtals | 472.921 | ||
| Síma- og netkostnaður | |||
| Síma- og netkostnaður | 2.349 | 150.244 | |
| Símastyrkur | 80.000 | ||
| Síma- og netkostnaður samtals | 2.349 | 230.244 | |
Þátttaka í alþjóðastarfi 2009–2019
Skráning alþjóðastarfs hófst 2009
Svona er hægt að renna sér í gegnum kjör og sögu ALLRA ÞINGMANNA ef fólk nennir.
Ég er ekkert endilega að segja að það sé nauðsynlegt en það gleður hjartað að sjá hvernig þeir sem setja lög um fátækt á Íslandi hafa það sjálfir.
Hulda Björnsdóttir
Formaðurinn berst fyrir því að allir eldri borgarar geti slett sér út á vinnumarkaðinn og svo vill hún ólm að við förum að borga aftur skatt af eftirlaununum okkar frá Lífeyrissjóði! Kona fólksins lætur ekki að sér hæða!
Afritað af vef Alþingis, opinberar tölur sem allir geta skoðað!
Inga Sæland
- Kjördæmi:Reykjavíkurkjördæmi suður
- Þingflokkur:Flokkur fólksins
- Embætti:Varaformaður þingflokks
- Nefndaformennska:
Fjárlaganefnd– 2. varaformaður - Alþjóðanefndir:Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins
- Búseta:113 REYKJAVÍK
Fastar greiðslur
Fastar mánaðarlegar launagreiðslur |
|
| Laun (þingfararkaup) | 1.101.194 kr. |
| Formaður stjórnmálaflokks sem ekki er ráðherra | 550.597 kr. |
| Samtals launagreiðslur | 1.651.791 kr. |
Fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur |
|
| Fastur ferðakostnaður í kjördæmi | 30.000 kr. |
| Fastur starfskostnaður | 40.000 kr. |
Yfirlit 2017–2019
Fjárhæðir breytilegra kostnaðargreiðslna (m.a. ferðakostnaður innan lands) miðast við hvenær reikningar eru bókaðir á skrifstofu Alþingis.
Ráðherrahluti launa, ferðakostnaður og símakostnaður ráðherra er greiddur af viðkomandi ráðuneyti og kemur ekki fram hér að neðan.
Hægt er að smella á upphæð hvers liðar til að sjá sundurliðun eftir mánuðum frá og með árinu 2018.
| 2019 | 2018 | 2017 | |
| Launagreiðslur | |||
| Laun (þingfararkaup) | 9.910.746 | 13.214.328 | 2.304.028 |
| Álag á þingfararkaup | 4.955.373 | 6.607.164 | 1.101.194 |
| Aðrar launagreiðslur | 181.887 | 1.673 | |
| Launagreiðslur samtals | 14.866.119 | 20.003.379 | 3.406.895 |
| Fastar greiðslur | |||
| Fastur ferðakostnaður í kjördæmi | 270.000 | 360.000 | 62.769 |
| Starfskostnaður | |||
| Endurgreiddur starfskostnaður | 91.600 | ||
| Fastur starfskostnaður | 268.400 | 480.000 | 83.692 |
| Starfskostnaður samtals | 360.000 | 480.000 | 83.692 |
| Ferðakostnaður innan lands | |||
| Ferðir með bílaleigubíl | 50.926 | ||
| Flugferðir og fjargjöld innan lands | 26.900 | 43.040 | 500 |
| Gisti- og fæðiskostnaður innan lands | 243.516 | 14.300 | |
| Ferðakostnaður innan lands samtals | 270.416 | 108.266 | 500 |
| Ferðakostnaður utan lands | |||
| Flugferðir utan lands | 17.955 | 319.401 | |
| Gisti- og fæðiskostnaður utan lands | 106.425 | ||
| Dagpeningar | 216.801 | ||
| Ferðakostnaður utan lands samtals | 17.955 | 642.627 | |
| Síma- og netkostnaður | |||
| Síma- og netkostnaður | 133.282 | 199.808 | 15.527 |
| Símastyrkur | 80.000 | ||
| Síma- og netkostnaður samtals | 213.282 | 199.808 | 15.527 |
Þátttaka í alþjóðastarfi 2017–2019
| Dagsetning | Staður | Tilefni |
| 22.–24. október 2019 | Nuuk | Ársfundur Vestnorræna ráðsins |
| 4.– 6. september 2018 | Þórshöfn, Færeyjum | Ársfundur Vestnorræna ráðsins |
| 19. apríl 2018 | Jónshús, Kaupmannahöfn | Hátíð Jóns Sigurðssonar |
| 29.–31. janúar 2018 | Ilulissat, Grænland | Þemaráðstefna Vestnorræna ráðsins |
Nýjasta nýtt hjá frúnni er að nú skuli allir borga skatt af greiðslum í Lífeyrissjóð af því að sjóðirnir séu svo ríkir!
Hulda Björnsdóttir
Svona er þetta hjá sumum og auðvitað á fólk að skoða hvernig kjörnir fulltrúar hafa það! – Svo skulum við skerða herrann um 45% svo hann búi við sömu kjör og þeir sem kusu hann –
Opinberar tölur sem ég afritaði af vef Alþingis!
Karl Gauti Hjaltason
- Kjördæmi:Suðurkjördæmi
- Þingflokkur:Miðflokkurinn
- Búseta:201 KÓPAVOGUR
Fastar greiðslur
Fastar mánaðarlegar launagreiðslur |
|
| Laun (þingfararkaup) | 1.101.194 kr. |
Fastar mánaðarlegar kostnaðargreiðslur |
|
| Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla | 134.041 kr. |
| Fastur ferðakostnaður í kjördæmi | 30.000 kr. |
| Fastur starfskostnaður | 40.000 kr. |
Yfirlit 2017–2019
Fjárhæðir breytilegra kostnaðargreiðslna (m.a. ferðakostnaður innan lands) miðast við hvenær reikningar eru bókaðir á skrifstofu Alþingis.
Ráðherrahluti launa, ferðakostnaður og símakostnaður ráðherra er greiddur af viðkomandi ráðuneyti og kemur ekki fram hér að neðan.
Hægt er að smella á upphæð hvers liðar til að sjá sundurliðun eftir mánuðum frá og með árinu 2018.
| 2019 | 2018 | 2017 | |
| Launagreiðslur | |||
| Laun (þingfararkaup) | 9.910.746 | 13.214.328 | 2.304.028 |
| Aðrar launagreiðslur | 181.887 | 1.673 | |
| Launagreiðslur samtals | 9.910.746 | 13.396.215 | 2.305.701 |
| Fastar greiðslur | |||
| Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla | 1.206.369 | 1.608.492 | 280.454 |
| Fastur ferðakostnaður í kjördæmi | 270.000 | 360.000 | 62.769 |
| Fastar greiðslur samtals | 1.476.369 | 1.968.492 | 343.223 |
| Starfskostnaður | |||
| Endurgreiddur starfskostnaður | 94.839 | 150.108 | 48.966 |
| Fastur starfskostnaður | 265.161 | 329.892 | 34.726 |
| Starfskostnaður samtals | 360.000 | 480.000 | 83.692 |
| Ferðakostnaður innan lands | |||
| Ferðir á eigin bifreið | 452.650 | 730.950 | 135.630 |
| Flugferðir og fjargjöld innan lands | 94.645 | 101.500 | 500 |
| Gisti- og fæðiskostnaður innan lands | 38.600 | ||
| Ferðakostnaður innan lands samtals | 547.295 | 871.050 | 136.130 |
| Síma- og netkostnaður | |||
| Síma- og netkostnaður | 79.056 | 63.284 | 16.806 |
Laun og starfskjör þingmanna sem berjast fyrir bættum kjörum eldri borgara og öryrkja!
Laun og starfskjör þingmanna
Álagsgreiðslur
Í lögum um þingfararkaup, nr. 88/1995, er kveðið á um að þingmenn sem gegna tilteknum embættum skuli fá fastar viðbótargreiðslur (álagsgreiðslur) sem reiknast sem prósenta af föstum launum. Þetta gildir um þá þingmenn sem gegna störfum varaforseta, formanna þingflokka og nefndarformanna, en þeir fá greitt 15% álag á föst laun. Jafnframt fær 1. varaformaður nefndar 10% álag á föst laun og 2. varaformaður fær 5% álag. Þá fær formaður flokks sem ekki er ráðherra greitt 50% álag á laun. Enginn, að undanskildum varaforsetum Alþingis, getur fengið nema eina álagsgreiðslu.
Laun og starfskjör þingmanna
Fastar ferðakostnaðargreiðslur í kjördæmi
Fastur ferðakostnaður í kjördæmi er ætlaður til að standa undir ferðakostnaði í næsta nágrenni heimilis eða starfsstöðvar auk dvalarkostnaðar á ferðalögum í kjördæminu. Með starfsstöð er átt við hvers konar aðstöðu sem þingmaður hefur í kjördæmi sínu, aðra en heimili.
Þingfararkostnaður
Frá 1. febrúar 2017
| Húsnæðis- og dvalarkostnaður | 134.041 kr. |
| Álag á húsnæðis- og dvalarkostnað | 53.616 kr. |
| Húsnæðis- og dvalarkostnaður vegna heimanaksturs | 44.680 kr. |
| Ferðakostnaður í kjördæmum | 30.000 kr. |
| Starfskostnaður | 40.000 kr. |
Lífeyrisréttindi
Frá 25. apríl 2009 fer um lífeyrisrétt alþingismanna eftir lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þeir alþingismenn, sem öðluðust eftirlaunarétt skv. lögum nr. 141/2003 fyrir þann tíma, halda þegar áunnum réttindum
Starfskjör þingmanna
Upplýsingar um starfskjör
Allar upplýsingar um starfskjör alþingismanna eru veittar á fjármálaskrifstofu.
Starfsfólk fjármálaskrifstofu hefur aðsetur í Kirkjustræti 8b (Blöndahlshúsi).
Þingfararkaup og þingfararkostnaður alþingismanna
Kveðið er á um laun og önnur kjör alþingismanna í lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, með síðari breytingum. Samkvæmt 15. grein laganna skal þingfararkaup taka breytingum 1. júlí ár hvert. Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júní hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa starfsmanna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár. Við launaafgreiðslu fyrir júlí uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð til samræmis við tölur Hagstofunnar.
Forsætisnefnd Alþingis ákveður aðrar greiðslur samkvæmt lögum þessum og setur nánari reglur um þær.
Ferðakostnaður innan lands
Auk fastrar greiðslu fyrir ferðakostnað í kjördæmi eiga þingmenn rétt á að fá endurgreiddan ferðakostnað milli heimilis og Alþingis á eigin bifreið, bílaleigubíl, eða með almenningsfarartækjum. Sérstakt ákvæði er um þingmenn sem búa utan Reykjavíkur og aka daglega til og frá vinnustað. Samanber reglur um þingfararkostnað og vinnureglur um ferðakostnað innanlands.
Húsnæðis- og dvalarkostnaður
Þingmaður fyrir kjördæmi utan Reykjavíkurkjördæma suður og norður og Suðvesturkjördæmis fær fasta upphæð mánaðarlega til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði í Reykjavík. Búi hann í Reykjavík eða nágrenni er fjárhæðin ætluð til að standa undir sams konar kostnaði í kjördæmi. Þá getur þingmaður, sem þarf að halda tvö heimili, sótt um 40% álag. Reglur um álagið er að finna í reglum um þingfararkostnað, sbr. 3. mgr. 2. gr. Sérreglur eru um greiðslur til þingmanna er búa utan Reykjavíkurkjördæma- suður og norður og Suðvesturkjördæmis og aka daglega milli Alþingis og heimilis, sbr. 3. mgr. 4. gr. reglna um þingfararkostnað.
Símkostnaður
Samkvæmt 9. gr. laga um þingfararkaup á alþingismaður rétt á að fá endurgreiddan símakostnað sem tengist þingstörfum hans.
Þingmaður getur fengið endurgreiddan kostnað við kaup á GSM-síma, allt að 80 þús. kr.
Ferðakostnaður erlendis
Almenna reglan er að ferðakostnaður er greiddur í samræmi við reglur um greiðslu ferðakostnaðar á vegum ríkisins sem ferðakostnaðarnefnd gefur út og birtar eru opinberlega. Alþingismenn eiga þó rétt á að fá greiddan gistikostnað (hótelherbergi) og 50% fullra dagpeninga til viðbótar. Þá er tekin staðgreiðsla skatta af hluta greiðslunnar samkvæmt ákvörðun ríkisskattstjóra.
Þingmaður skal greiða ferðir til og frá flugvöllum heima og erlendis af dagpeningum. Starfsfólk fjármálaskrifstofu gerir ferðareikning í lok ferðar.
Starfskostnaður
Samkvæmt 9. gr. laga um þingfararkaup eiga alþingismenn rétt á að fá endurgreiddan kostnað sem hlýst af starfi þeirra. Hámark slíkrar greiðslu er nú 480.000 kr. á ári.
Í 8. gr. reglna um þingfararkostnað eru nánari upplýsingar um starfskostnað og hvað fellur þar undir.
Fundir, ráðstefnur, námskeið o.fl. á eigin vegum
Þingmaður getur sótt fundi, ráðstefnur, námskeið o.fl. án þess að slíkt sé beinlínis á vegum Alþingis. Starfskostnaði er m.a. ætlað að standa undir slíkum útgjöldum.
Tryggingar
Allir alþingismenn eru slysatryggðir allan sólarhringinn. Um skilmála trygginga þessara gilda reglur nr. 30/1990 og nr. 31/1990. Um bótafjárhæðir fer samkvæmt sömu reglum og gilda um embættismenn samkvæmt reglum kjararáðs um starfskjör. Nánari upplýsingar eru veittar á fjármálaskrifstofu.
Styrktarsjóður alþingismanna
Alþingismenn skulu eiga rétt á hliðstæðri endurgreiðslu útgjalda og styrkja sem embættismenn njóta samkvæmt ákvörðun kjararáðs um almenn starfskjör embættismanna að því er varðar greiðslur úr fjölskyldu- og styrktarsjóði. Gögnum ber að skila á fjármálaskrifstofu.
Nánari upplýsingar um styrki og upphæðir er að finna á vefsíðu BHM
Starfskjör varaþingmanna
Sjá 12. grein laga um þingfararkaup.
Hvernig er greitt?
Mánaðarlegar greiðslur þingfararkaups og þingfararkostnaðar eru afgreiddar af fjármálaskrifstofu, Blöndahlshúsi. Þangað skal senda akstursyfirlit og alla reikninga varðandi útlagðan kostnað mánaðarlega. Skrifstofan tekur við greiðslubeiðnum og annast reikningagerð. Að jafnaði er ferðakostnaður innan lands, símakostnaður og annar tilfallandi kostnaður afgreiddur innan þriggja daga eftir að beiðni er lögð fram. Greiðsla er lögð á bankareikning þingmannsins.
Skattskylda
Að frátöldu þingfararkaupi og starfskostnaði eru allar greiðslur til þingmanna fyrir kostnaði sem hlýst af þingsetu undanskildar tekjuskatti. Ef útgjöld, sem tengjast starfskostnaði, eru studd reikningum koma þau til lækkunar á skattstofni.
Biðlaun
Alþingismaður, sem hefur setið á Alþingi eitt kjörtímabil eða lengur, á rétt á biðlaunum er hann hættir þingmennsku. Biðlaun eru jafnhá þingfararkaupi, sem frá 30. október 2016 eru 1.101.194 kr. á mánuði, og greiðast þau í þrjá mánuði en í sex mánuði eftir þingsetu í tvö kjörtímabil eða lengur. Taki þingmaður, sem fær biðlaun, við starfi meðan þeirra nýtur falla þau niður ef launin er starfinu fylgja eru jafnhá en ella skerðast biðlaunin sem laununum nemur.
Lífeyrisréttindi
Frá 25. apríl 2009 fer um lífeyrisrétt alþingismanna eftir lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Þeir alþingismenn, sem öðluðust eftirlaunarétt skv. lögum nr. 141/2003 fyrir þann tíma, halda þegar áunnum réttindum.
Ferðapantanir og afgreiðsla dagpeninga
Fjármálaskrifstofa annast ferðapantanir og umsóknir um ferðaheimildir og dagpeninga. Ferðaáætlun er ákveðin hverju sinni í samráði við alþjóðaritara með hliðsjón af dagskrá og hagkvæmni. Vilji þingmaður gera breytingar á ferðaáætlun sinni hefur hann samband við skrifstofuna. Hafi breyting samkvæmt persónulegum óskum kostnaðarauka í för með sér er hann borinn af þingmanni.
Dagpeningar eru lagðir inn á bankareikning þingmanns.
Að ferð lokinni afhendir þingmaður viðeigandi gögn, farseðil og hótelreikninga, svo að hægt sé að ljúka uppgjöri. Fjármálaskrifstofa annast uppgjör.
Ekki amalegt það!
Hulda Björnsdóttir
Ríkið lætur mig niðurgreiða eftirlaun frá TR, Í HVERJUM EINASTA MÁNUÐI, um krónur 59.500 og þessi tala er fyrir skatt svo ljóst er að ekki er mikið eftir af sparnaðinum mínum
8.nóvember 2019
Góðan daginn.
Sól og kuldi og snjór í fjöllum fyrir norðan hér í litla landinu mínu í dag.
Ég er að velta fyrir mér hvað Facebook er undursamlegt fyrirbæri. Ef mér líkar ekki það sem skrifað er um mig get ég gert eitt og annað.
Ef ég er til dæmis í grúppu og stjórnanda líkar ekki það sem ég hef deilt með grúppunni þá getur hann eða hún einfaldlega eytt skrifunum og ef vill getur stjórnandinn líka blokkað gemlinginn!
Að biðja mig um að eyða því sem ég skrifa er líklega eins vonlaust og að halda vatni frá manni í eyðimörkinni.
Mér dettur ekki í hug að leggjast svo lágt að standa ekki með því sem ég hef látið fara frá mér. Hafi ég farið með rangfærslur leiðrétti ég þær venjulega og stundum bið ég meira að segja afsökunar á ruglinu í mér.
Ég fæ stundum vinabeiðnir á Facebook frá sama fólkinu aftur og aftur þó ég hafni þeim ítrekað.
Mér finnst einkennilegt að skammast út í skrif mín og á sama tíma leitast eftir vináttu minni! Þetta er eiginlega bara fyndið, finnst mér.
Semsagt, fyrir þá sem ekki vita: ef þið viljið ekki sjá það sem ég er að skrifa er einfaldast að blokka mig og þá er það mál afgreitt.
Ég blokka oft einstakinga sem eru að bögga mig og tek það ekki nærri mér, það er að segja blokkeringuna. Þetta eru bara mannréttindi og ekkert annað.
Þeir sem skrifa eða tala opinberlega geta alltaf átt von á gagnrýni sem þeim líkar ekki. Ég fæ minn skammt alveg óskertann og held samt áfram. Það hefur aldrei hvarflað að mér að biðja einhvern að fella niður skrif sín af því að mér líka þau ekki.
Er þetta ekki eitthvað sjálhverft fyrirbæri?
Jæja,
Það er ljóst að margir af yngri kynslóðinni gera sér ekki grein fyrir hvernig TR og Lífeyrissjóðir áttu og eiga að vinna saman. Þetta er eiginlega bara skiljanlegt og það sem mér finnst gott dæmi um hvernig skoðunin verður svolítið snúin er þetta sem ég sá skrifað í commenti við eitthvað sem ég var að fást við í gær:
Fyrsta commentið var svona:
“en þetta átti að vera lífeyrir minn samkvæmt lögum en lífeyrissjóðir viðbót við fulla framfærslu Tr. “
Og sá sem svarar segir þetta:
“þetta er akurat öfugt. Lífeyrsgreiðslur tr eru til að dekka það sem uppá vantar hja lifeyrissjoð og fyrir þa sem eiga ekki lifeyrissjoð. Þessvegna er folk alltaf beðið um að ath alltaf fyrst rett hja lifeyrissjoði aður en tr byrjar að borga.”
Ég fór að velta fyrir mér hvernig þessi misskilningur varð til.
Ég held að ástæðan gæti verið sú að fólk er beðið um að athuga fyrst réttindi hjá lífeyrissjóðum, þegar það sækir um hjá TR.
Ástæða þess að við erum beðin um að finna út réttindi okkar hjá Lífeyrissjóðum er að sjálfsögðu til þess að TR geti fundið út hvað hún getur haft af okkur með skerðingum og látið okkur niðurgreiða það sem við eigum að fá frá TR.
Þetta eru grunnupplýsingar fyrir stofnunina en eins og ungi maðurinn sýnir í sínu commenti þá er auðvelt að halda að þetta sé öðruvísi.
Þessi athugasemd og fleiri gera það að verkum að við sem þekkjum kerfið þurfum að vera dugleg að kynna hvernig það virkar. Það er ekki nóg að segja frá því einu sinni. Það þarf að hjakka í sporinu endalaust þar til breyting verður.
Fyrsta stoð átti að vera TR
Fyrsta stoð átti ekki að vera Lífeyrisjsóðs sparnaður.
Sparnaður í Lífeyrissjóð var hugsaður sem viðbót við fyrstu stoðina.
Á löngu ferli og í stjórn misvitra stjórnmálamanna hefur þessu verið snúið á hvolf og nú er séð til þess að þeir sem hafa sparað í lífeyrissjóði alla sína starfsæfi standa lítið betur að vígi en þeir sem einhverra hluta vegna hafa aldrei sparað neitt.
Í hverjum einasta mánuði stelur ríkið tugum þúsunda af sparnaði mínum og lætur mig niðurgreiða það sem kemur frá TR til mín.
Ég ætti að fá frá TR krónur 248.105 en fæ 188.605.
Mismunurinn er krónur 59.500 sem ríkið lætur mig niðurgreiða eftirlaun frá TR, Í HVERJUM EINASTA MÁNUÐI, og þessi tala er fyrir skatt svo ljóst er að ekki er mikið eftir en tekjur mínar eftir skatt eru samtals: 274.448
Hjá þeim sem ekki hefur greitt í Lífeyrissjóð eru tekjur eftir skatt krónur 212.902
Og það sem eftir stendur af greiðslu til mín frá Lífeyrissjóði sem upphaflega voru rétt rúmlega 157.000 eru krónur 61.546 eftir skatt.
Þá er líklega komið að því að fagna því að Grái herinn, Wilhelm og Finnur ásamt Ingibjörgu skuli vera að sigla af stað með lögsókn gegn ríkinu til þess að aflétta þessu hrikalega óréttlæti, og fagna ég því svo sannarlega.
Vonandi tekst þeim að vinna málið.
Hulda Björnsdóttir
Veit fólk yfirleitt hvað kerfi TR er ótrúlegt skrímsli og hvernig það teygir anga sína inn í önnur kerfi?
7.nóvember 2019
Pistil no.2
Gott kvöld
Þá er nú bleik burgðið þegar ég er sest aftur niður við tölvuna mína í ískulda í litla landinu mínu þar sem rignir endalaust eins og lög gera ráð fyrir í nóvember og ekkert nema gott um allt vatnið að segja sem englarnir dæla niður til okkar í Portúgal. Við þurfum svo sannarlega á því að halda, þ.e. vatninu.
Jæja,
Það sem gerðist er að ég hlustaði á Ingu og Ásmund þjarka á Alþingi.
Inga skammaði ráðherrann fyrir að fólk sem fékk leiðréttingu afturvirkt þurfti að borga til baka megnið af leiðréttingunni með því að húsnæðisbætur voru skertar!
Inga skammaði ráðherra fyrir að hafa ekki skoðað málið til enda.
Ráherra skammaði Ingu fyrir að skilja ekki að fleiri en ein lög komu við sögu!
Nú bregður svo einkennilega við að ég er dálítið sammála báðum.
Það sem þau hins vegar fatta ekki er að svona eru vinnubrögðin hjá þeim báðum.
Þau rjúka til og setja ný lög og reglugerðir án þess að skoða málið til enda og athuga hvaða afleiðingar leiðréttingin hefur á líf fólksins sem verið er að gleðja.
Ég efast stórlega um að Inga hafi alltaf skoðað endanlega útkomu þegar hún hefur hlaðið undir “poppúlismann” eins og kom vel fram í máli móður hennar gegn TR fyrir mánuðina jan og feb 2017 og dráttarvextina sem móðirin fékk en við hin fengum vexti sem skertu tekjur okkar og auk þess þurftum við að borga skatt af vöxtunum en móðirin ekki af dráttarvöxtunum.
Inga hefur svarað spurningum um af hverju þetta sé svona (Það er að móðirin hafi fengið dráttarvexti en við hin vexti) með því að upplýsa okkur hinn auðtrúa almúga um að réttarkerfið sé bara svona og málið hafi verið rekið til hins ítrasta fyrir móðurina en ekki fyrir okkur hin.
Guðmundur Ingi er á sama máli og Inga og upplýsti mig um að þetta væri jú allt fjórflokknum að kenna og ef ég og hinir vildum fá leiðréttingu okkar mála þyrftum við að kæra til nefndar sem tekur marga mánuði í að dunda sér við yfirferð á ómerkilegum athugasemdum og kvörtunum og kemur svo með svar þegar kærufrestur er liðinn og ef svo vildi til að málið ynnist þá er fresturinn fyrir aðra útrunninn. Pottþétt að ekki kemur skriða fólks sem vill fá réttlæti! Ég kærði málið til nefndarinnar, það er frekar flókið ferli, og nú bíð ég eftir niðurstöðu sem fæst líklega snemma á næsta ári!
Ásmundur sagði í þjarkinu við Ingu, sem ég hlustaði á, að verið væri að endurskoða lögin um almannatryggingar!
Ásmundur, það tók 10 ár að endurskoða lögin og nokkrum dögum fyrir samþykkt þeirra um áramótin 2016-2017 tók Bjarni sig til og breytti skerðingarákvæðum!
Ég er eiginlega enn eina ferðina komin á þá skoðun að þingheimur, ráðherrar, ríkisstjórn, ráðuneytisstjórar og allir hinir sem véla með líf fólks og kjör á vegum hins opinbera þurfi virkilega að fá LANGT frí og best væri að senda allt liðið til Kína og finna afskekkt hérað þar fyrir hópinn. Þar gæti hópurinn hugsað sitt mál og kannski hreinlega lært eitthvað af sárafátækum bændum Kínaveldis!
Ráða mætti svo einn hæfann fyrirtækjastjórnenda frá útlöndum til þess að stýra 350 þúsund manna fyrirtækinu og sá færi létt með það.
Ásmundur og Inga geta þráttað endalaust úr ræðupúlti hins æruskerta þings þjóðarinnar. Þau eru bæði jafn saklaus af því að skoða mál sem þau leggja fram til enda og finna út hvar og hvernig málið hefur áhrif og hvort það er þess virðið að leggja það fyrir þingheim sem er upptekinn í símaleikjum og er nokk sama um einhverja öryrkja og eftirlaunafólk, það er að segja þetta venjulega eftirlaunafólk, því ekki þarf að hafa áhyggjur af elítunni og þeim sem eiga mest allan auð landsins. Það fólk hefur séð um sig.
Sorgin gæti kvatt dyra og sagt mér að svona pistill hafi nákvæmlega ekkert að segja. Landinn er með gullfiskamynni og kýs sama sukkið aftur og aftur og aftur og lætur ljúga sig fullann með gráti og ekki síður með hárauðum varalit á vörum sem brosa blítt eða þá kökugerðameistara sem skreytir kökur af stakri natni, og sér um að hans lið njóti kökunnar og kannski væru til molar sem dyttu á gólfið sem væri hægt að sópa upp fyrir hinn sauðsvarta.
Inga getur hætt að garga á Ásmund.
Ásmundur getur hætt að hvessa sig við Ingu.
Þau eru nefninlega siglandi á nákvæmlega sömu skútunni með sama stýrimanninn og sömu gildin þannig að það er ekkert nema tímasóun að vera að rífa sig úr brúna stólnum þar sem maðurinn situr fyrir aftan og lemur í bjöllu þegar honum er nóg boðið málæðið.
Ef einhver eldri borgari sér sig knúinn til þess að segja mér að hann eða makinn hafi fengið það sem þeim ber vegna málarekstursins fyrir jan og feb 2017 þá bið ég viðkomandi að spara sér ómakið. Það er ekki rétt að allir hafi fengið það sem þeim bar. Margir hæstaréttardómar eru til um að dráttarvextir séu skaðabætur en ekki vextir. Skaðabætur sem móðir Ingu fékk vegna jan og feb breyttust ekki í vexti hjá hinum. Allir áttu að fá dráttarvexti, skaðabætur, því allir voru hlunnfarnir í jan og feb 2017 og TR var dæmd til þess að leiðrétta skerðinguna. Þeir sem hafa fengið vexti vegna málsins hafa líka fengið skerðingu vegna tekna fyrir árið 2017. Þetta er ekkert flókið. Það er hægt að skoða þetta allt á “mínum síðum” hvers og eins hjá TR. Það er að segja þeir sem líta einhverntíman á þessar síður geta séð þetta. Auðvitað er stór hópur sem hefur ekki hugmynd um hvernig á nota fyrirbærið og á því græðir ríkið ekkert lítið.
Hvað ætli það séu margir sem vita hvers vegna nákvæmlega þeir eru látnir endurgreiða ofgreiddar tekjur frá TR?
Hvað ætli það séu margir sem ómaka sig á þvi að ganga eftir svörum frá TR?
Hvað ætli það séu margir sem gerðu athugasemdir við dráttarvexti versus vexti hjá TR vegna jan og feb 2017?
Hvað ætli það séu margir sem vita nákvæmlega hvernig tekjuáætlun er búin til hjá TR fyrir komandi ár?
Hvað ætli það séu margir sem breyta eða hafa einhverntíman breytt tekjuáætlun hjá TR?
Hvað ætli það séu margir sem vita hvað gerist ef þeir breyta tekjuáætlun hjá TR í júní?
Ég ætla ekkert að svara þessum spurningum. Ég hef breytt tekjuáætlun og veit hvað gerist. Ég veit líka hvernig tekjuáætlun er búin til hjá stofnuninni. Ég veit meira að segja að þeir sem frá greitt frá TR eru tékkaðir á hverju ári og keyrðir saman við þjóðskrá til þess að athuga hvort þeir séu komnir til himna. Ég veit líka af hverju við sem erum með heimilisfesti erlendis þurfum að senda lífsvottorð á hverju ári. Ég gæti talið upp allt mögulegt fleira sem ég veit um kerfið en ætla að láta þetta duga. Þið hélduð að kerfi TR væri skrímsli. Þið hafið ekki hugmynd um hversu voðalegt skrímsli það er og þið fattið líklega ekki að þingheimur er ekki í stakk búinn til þess að laga og einfalda viðbjóðinn. Það er ekki hægt að leika sér í síma leikjum og skoða ófreskjuna á sama tíma.
Líklega væri besta tillaga mín í kvöld að banna alla síma í þingsalnum!¨
Það væri ekki amalegt að þingheimur þyrfti að hlusta að allt bullið sem rennur í gegnum hátalarana!
Hulda Björnsdóttir
