Fátækt á Íslandi – ráðherra segir hana ekki til !

6.desember 2019

Góðan daginn

Eins og svo oft áður þá eru mér ofarlega í huga þeir sem ekki eiga fyrir mat síðustu daga mánaðarins, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár.

Ég hef stundum talað um að þingmenn og þeir sem ráða þyrftu að prófa þetta ástand á eigin skinni til þess að skilja hvernig þetta fer með fólk andlega og svo fylgir líkamleg vanlíðan í kjölfarið.

Ég er svo heppin að fá að prófa þetta ástand núna í desember og hef ekki verið í þessum aðstæðum í mörg mörg ár.

Ég segi að ég sé svo heppin og enginn má miskilja mig og halda að mér finnist þetta ástand eðlilegt og gott. Nei, því fer fjarri. Mér finnst hins vegar gott að finna til eitthvað líkt og þeir sem ég skrifa svo oft um og argast yfir að stjórnvöld geri ekkert til þess að bæta kjör þessa hóps.

Ég á fyrir öllum reikningum og ég á nægan mat út mánuðinn.

Þannig að ég er ekki alveg í sömu aðstæðum og þeir sem ekki hafa til hnífs og skeiðar alltaf. Hins vegar eru ekki margar evrur í bankanum mínum og það má í raun ekkert fara úr skorðum. Ég má ekki þurfa til læknis, ég má ekki veita mér neitt extra þó það sé þessi mánuður þar sem allir sem vettlingi geta valdið fá kaupæði. Ég verð að velta fyrir mér hverri einustu evru þúsund sinnum til þess að fara ekki yfir á reikningnum mínum og lenda í kostnaðarsömum vanskilum.

Þetta ástand mitt er heimatilbúið.

Ég eyddi því sem átti að fara í skattinn, ekki öllu, bara helmingnum og skattinn verður maður að borga! Ég var búin að leggja fyrir og spara fyrir skattinum en einn góðan veðurdag missti ég stjórnina á lífinu þegar ég horfði niður á viðbjóðslegt illgresisbælið sem blasti við mér í hvert skipti sem ég leit niður í garðinn. Ég var búin að fá nóg. Ekkert hafði verið gert í 5 ár, ekkert og þetta ógeð blasti við mér á hverjum einasta morgni og glotti ógeðlsega framan í mig og hló af því að ég þyrði ekki að láta til skara skríða!

Nú sýp ég semsagt seyðið af ístöðuleysinu og er staurblönk í mesta eyðslumánuði ársins og er bara nokkuð ánægð með ástandið því það minnir mig vel á hvernig fólkinu sem ég skrifa um líður alltaf.

Mitt ástand breytist strax í janúar og þá verður aftur venjulegur mánuður og sparnaðurinn byrjar upp á nýtt fyrir skatti næsta árs og líklega verða ekki freistingar sem ég fell fyrir eins og þetta árið. Lærdómurinn er ágætur en ekki vildi ég þurfa að búa við ástandið aftur.

Við skulum muna að skilningur á aðstæðum fátæka fólksins er allt annað en reynsla sjálf.

Við getum skilið að fátæka fólkið þarf aðstoð, það þarf að bæta kjör þess svo það geti lifað með reisn og gengið beint í baki.

Við gætum hugsað um hvort ekki væri upplagt að prófa til dæmis að vera húsnæðislaus og búa í tjaldi, bíl eða bara úti á víðavangi yfir kaldasta tímann. Við gætum auðveldlega lagt þetta á okkur ef við vildum, eða er það ekki?

Ég hef ekki áhyggjur, ekki miklar, af ástandi sem ég bjó til sjálfviljug, og er nú að upplifa. Ég hef hins vegar verulegar áhyggjur af öryrkjunum, eldri borgurunum og fátæka fólkinu á Íslandi sem býr við svona aðstæður alla daga mánaðararins alltaf, ár eftir ár.

Ég er að reyna að vera ekki reið, ekki mjög reið, út í þá sem hafa völdin til þess að breyta ástandinu varanlega fyrir þessa hópa.

Þeir sem halda um stjórnartaumana búa auðvitað í kössum og sjá ekki út fyrir brúnirnar. Hjá kassabúunum er nú hátíðarmánuður. Þeir fara í ferðalög til útlanda og koma hlaðnir til baka með jólagjafir handa allri fjölskyldunni. Þeir baka kökur og fara í sjónvarpsviðtöl þar sem þeir segja okkur hinum sótsvarta almúga að allt sé svo dásamlegt á Íslandi. Þeir fara jafnvel til útlanda og segja frá dásemdinni og brosa breitt og beygla sig með æðstu ráðamönnum heimsins. ÞAÐ ER JÚ ALLT SVO YNDISLEGT HJÁ ÍSLENDINGUM OG ÞEIR SVO UNAÐSLEGT FORDÆMI! Eða er það? Útlendingarnir trúa þessu. Þeir tala um þetta litla ríki sem býr svo vel að sínum minnstu bræðrum, eins og sumir kalla okkur, og brosins verða enn breiðari.

Nú vil ég kippa kassabúum upp úr velsældinni og láta þá finna fyrir dásemdinni.

Auðvitað verður það ekki , en eitt er víst. Það er hægt að mæta í mótmæli og sýna samstöðu með þeim sem búa utan kassanna. Slíkt tækifæri er núna, á morgun, þann 7.desember 2019 klukkan 14.

Ég bý ekki á Íslandi en ætla að fylgjast með mótmælunum á netinu. Það eru alltaf einhverjir sem streyma life fyrir okkur sem ekki getum verið á staðnum.

Ég vona svo sannarlega að fólk muni eftir búsáhaldabyltingunni og hvernig hún var. Margir lögðu hönd á plóginn þar og nú er risin upp önnur kynslóð sem getur lært af þeirri fyrri.

Gangi ykkur vel, kæru forsprakkar.

Við erum að vakna.

Hulda Björnsdóttir

Ekki gleyma – andleg örorka er jafngild og líkamleg örorka!

2.desember 2019

Góðan daginn

Loksins hefur stytt upp hér í litla landinu mínu og vonandi fáum við nokkra daga þar sem sólin skín og allt verður miklu bjartara.

Mér varð hugsað til öryrkjanna minna í morgun. Þeir eru ekki í litla landinu mínu en búa ýmist á Íslandi,  Spáni eða Norðurlöndunum.  Líklega hafa fleiri bæst í hópinn núna með fjölgun vina á Facebókinni minni.

Stundum föllum við í þá gryfju að gleyma því að það eru ekki bara líkamlegir sjúkdómar sem valda örorku. Við megum ekki gleyma því að andleg líðan getur leitt til örorku og það er ástand sem hugsanlega væri hægt að bæta með því að búa almennilega að þeim sjúklingum.

Ég horfði á viðtal í gær þar sem rætt var við foreldra drengs sem hafði látist úr hjartaslagi, held ég, vegna ofneyslu vímuefna.  Þetta var átakanlegt viðtal og ég velti því fyrir mér á eftir hvernig foreldrarnir tækluðu ástandið og dáðist að hugrekki þeirra að koma fram og ræða málið á svo opinskáan hátt!

Það er hryllilegt að missa barn og ekki hægt að komast yfir það en lífið heldur áfram og einhvern vegin nær fólk að lifa af með söknuðinn, sársaukann og sektarkenndina.

Öryrkjarinir mínir sem þjást af andlegum sjúkdómum segja oft að þeim sé hafnað og ekki sé talað um þá. Líklega er það rétt. Því miður eru enn fordómar gagnvart þeim sem finna ekki fjölina sína andlega og talað um aumingjaskap og að þeir eigi nú að hafa sig upp úr volæðinu! Almáttugur!

Það getur vel verið að margir þeirra sem eru öryrkjar vegna þunglyndis og annarra andlegra sjúkdóma gætu náð sér að einhverju leiti ef þeir þyrftu ekki endalaust að vera með áhyggjur af því hvernig þeir komist af fjárhagslega næsta mánuðinn eða jafnvel bara næstu vikuna.

Ég er þeirrar skoðunar að aðbúnaður öryrkja, fjárhagslega, sé slíkur að hann stuðli að andlegri örvæntingu. Ég held því fram að væri heilbrigðiskerfið í stakk búið til þess að hjálpa þessum einstaklingum þá mundi þeim fækka. Ég held því líka fram að þyrftu öryrkjarnir ekki að lepja dauðann úr skel alla daga gæti þeim liðið betur og þeir gætu komist aftur út í þjóðfélagið og fundið tilgang með lífinu sínu.

Ég fékk að skoða launaseðla tveggja öryrkjanna minna. Þau eru hjón og hafa stuðning af hvort öðru og komast held ég  sæmilega af andlega.

Launaseðlarnir eru fyrir desember og þar sést heildarafkoman yfir árið.

Hann hefur álíka laun fyrir allt árið og formaður stjórnmálaflokks sem situr á alþingi  í stjórnarandstöðu (ég ætla ekkert að nefna neitt nafn) hefur fyrir einn mánuð!

Hann hefur starfað við undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar og fært björg í bú og byggt upp með framlagi sínu, þjóðfélag þar sem allir ættu að geta haft það sæmilegt. Vegna þess að hann hefur sparað í lífeyrissjóð alla sína starfsæfi er hann látinn niðurgreiða það sem hann fær frá TR. Þessi vinur minn getur ekki farið út á vinnumarkaðinn. Hann hefur ekki líkamlega heilsu í það, það er ekki smuga. Ég hugsa oft um það hvað þessi hjón eru þó heppin að hafa hvort annað og geta stutt hvort annað andlega. Væru þau ein, hvort í sínu lagi, gætu þau hæglega fallið í þunglyndi og örvæntingu og jafnvel orðið andlegir öryrkjar í viðbót við líkamlega heilsu sem er í rúst.

Hún hefur minni árslaun en forsætisráðherra Íslands hefur á mánuði!

Hún hefur ekki minnstu möguleika á því að koma sér út á vinnumarkaðinn vegna líkamlegrar örorku. Hún varð fyrir slysi sem svifti hana venjulegu lífi. Hann varð líka fyrir slysi og á einni stundu gjörbreyttist líf hans.

Við vitum aldrei hver verður næstur. Það getur verið þú eða einhver sem er þér nákominn, annað hvort ættingi eða vinur. Hörmungarnar gera ekki boð á undan sér, þær skella bara á og manngreinarálit er ekki til á þeim bæ.

Aftur að launum þessara vina minna. Þegar ég skoða launaseðlana þeirra sé ég glöggt hve kerfi það sem saumað hefur verið fyrir öryrkja er mikil ófreskja. Það er í raun og veru óskiljanlegt og ekki að furða að velkist fyrir fulltrúum TR að útskýra það fyrir viðskiptavinunum.

Í morgun hvatti ég facebook vini mína sem fá greitt frá TR til þess að senda launaseðla sína til alþingismanna, einkum og sér í lagi til stjórnarherranna. Það er held ég holt fyrir þá sem búa í kössum velmegunar að sjá svart á hvítu þennan seðil. Þið getið fundið öll netföng allra þingmanna á vef alþingis og ef þið eruð facebook vinir mínir þá eru netföngin bæði á síðunni minni og á “milli lífs og dauða”.

Ég hvet ykkur til þess að gera þetta.

Það er engin sem þarf að skammast sín annar en þeir sem setja lögin.

Munið að langvarandi líkamleg vanlíðan getur leitt til andlegrar örorku og þegar þangað er komið er nauðsynlegt að hafa björgunarhringi úti þar sem hægt er að fá hjálp við að ná sér upp, en til þess þarf stjórnvaldið að veita fé í heilsugæslu og forvarnir. Þetta er mál sem varðar okkur öll á hvaða aldri sem við erum.

Hulda Björnsdóttir

I was convinced that now I was going blind – there was no doubt about it!

1st of December 2019

Good afternoon

Some days ago I thought I was dying or something even worse happening to me.

7 days ago or thereabout I changed my contact lenses. I wear those 3 weeks and then I change. I have a routine, always the same, first the left one goes out and then the right one. Into the eyes the same, first the left one and then the right one, and by the way I use the left eye to see faraway and the right one to read. My brain is a genius and I have been doing this for many years, decades I think.

Well.

7 days ago it was time, now I took one out and then the other.

Then the left one went in!

Something really strange was going on!

I could not see anything, everything was in a haze!

I took the left one out and tried the right one. Yess! That was fine!

Decided to try another one in the left eye, but nothing changed, the blur was even worse.

What is happening? I thought

Am I having a stroke? Is there blood clutching my brane? WHAT IS GOING ON!

I was terrified. I’m not afraid of dying but in my wildest imagination I saw my work on my computer, my needle work, my reading, all gone, thrown out of the window, simply because something terrible was happening to me!

I sat down. Thought about the situation and decided to wait until the next day and see if anything changed.

At the moment I could see fairly clearly without my left contact lens and perhaps, just perhaps my sight was changing, but how could this happen so quickly was the big question.

I waited some days and then I went to Condeixa to my friend, but he and his wife have a shop where they sells glasses and contacts and take care of people like me with a strange eyesight!

I told my friend what was going on! We decided it might be a perfect solution that next day, Saturday, his wife would come and have a look and see if I was going blind or whatever, and if something could be done. He told me I could come at 10 in the morning and there was no way that I could sleep late, he also told me.

A bit before 10 I arrived. Driving was ok, I saw everything even though it was raining like hell.

I told my friend, the wife, what had been going on for a week and with tears in my eyes I asked if I was going blind!

She said, NO!

This is normal, she told me

In came a Portuguese woman and my friend told me that the lady had similar problems.

Really?

Yes!

The Portuguese lady left and I sat in the chair. Now the truth would be relieved. My friend looked into my eyes. She stood in front of me. I froze. Now she is going to tell me I cannot see anything in the near future! I´m going blind like my mother and my aunt and many other people I know, oh oh oh, all this and much more through my mind at the speed of superman!

You are ok, you have got both the lenses in your eyes, the doctor (my friend) said

No, that cannot be, I replied, how can that be, I took it out several days ago!

It’s there she told me and looked again. It’s definitely there. Can you see it ? I asked

Yes I can, she told me.

Would you like to take it out, she asked, so we can figure out if your sight has changed and then we can decide about the new glasses!

I took it out, I looked at it in my hand and thought: How stupid can you be, trying to put a second contact lens into your eye and expect to see properly? Idiot!

You know, I need to have glasses with me all the time, while driving, because if the police make me stop they see in my driver’s license that I need either contact lenses or glasses, and they want to see the glasses!!!!!!  I am after all in Portugal and all my glasses are VERY old!

The eyesight has not changed, or at least not much. I am still near-sighted at the left and normal reading at the right. Strange brane in my body but that’s just normal for me.

YOU CAN NOT TELL YOUR HUSBAND THIS, I said to my friend, HE IS GOING TO KILL ME BY MOCKING ME FOR EVER!

My friend laughed.

We found glasses and I paid, few days later I will have my new glasses to show to the police if they decide to talk to the foreigner! During my almost 9 years I have been stopped twice so there is not too much to fear.

Thank God, I was not going to die, I was not going blind, I was just stupid and did not fulfil the task of taking out the old lens. Although, I have to admit that I was really worried and in a way convinced that my life was being destroyed in front of my eyes. Not being able to drive wherever I want to go. Being dependent on others for help, would plain and simply kill me.

78955029_1494626980689124_1172126395036336128_n

In the afternoon, when I got home I could not help laughing. Having a good laugh is perfect in a situation like this but imagine: Now I have to pick up my glasses when they are ready and who will be in store then? The doctor’s husband, the one that I told something was really wrong with my brain, and he will mock me forever!  No mercy there I can assure you! We are good friends and have been for many years and the last laugh we had was about me buying beer to give the snails in my garden after they start running from my flower pots and the disgusting garlic I am going to put in the pots to keep them away. That was then; next time will be me, the laughing stock.

Live is wonderful and mine is full of adventures all the time, no doubt about that, even my car was wet inside yesterday and the next task will be to take the car to his doctor and figure out why the endless rain found a way into my best friend ever!

Have a great day my friends and a good laugh with me. You deserve it and I will forgive you!

Hulda Björnsdóttir

1.desember 2019 – Við megum ekki gefast upp

1.desember 2019

Góðan daginn kæri lesandi

Nýr mánuður, sá síðasti á þessu ári og líklega mörgum léttir að sjá fram á bjartari daga á nýju ári, eða er það?

3,5 prósent hækkun greiðslna frá TR er í augum sumra, stjórnmálamanna, heill hellingur.

Hins vegar erum við sem fáum greitt frá TR, annað hvort öryrkjar eða eldri borgarar, ekkert sérlega hoppandi hamingjusöm með örlætið.

Ég veit ekki hvað mikið verður úr þessum prósentu títlum sem t.d. ég fæ úthlutað!

Í grjóthörðum peningum gerir það hvorki meira né minna en 6.500 krónur FYRIR SKATT.

Þetta gerist næsta ár, og líklega í janúar!

Núna, þetta árið, er ástandið víða svona;

Sárafátækt fólk á ekki fyrir mat, það á ekki fyrir hússkjóli og það þarf að leita á náðir hjálparstofnana til þess að deyja ekki!

Hvaða vitleysa er segir þetta í þér manneskja! segir einhver.

Nei, þetta er bláköld staðreynd á Íslandi þar sem milljarðar á milljarða ofan renna ljúft í vasa ættingja og vandamanna þeirra sem ráða hvert peningarnir fara! er svar mitt.

Þessa síðustu dafa hef ég heyrt í nokkrum öryrkjum sem eru yndislegir vinir mínir. Ástandið er ekki gott. Vonleysi og svartsýni eru ofan á. Uppgjöf er algeng og viðkvæðið “við getum engu breytt, ég er búin að gefast upp” kemur aftur og aftur hjá þessu dásamlega fólki.

Eldri borgararnir, vinri mínir, eru ekki par bjartsýnni. Skattarnir eru að drepa allt, segja sumir. Af hverju er þetta svona? spyrja aðrir. Hvað varð um sparnaðinn okkar? Hvað varð um framlag okkar til uppbyggingar þjóðfélags sem núna hefur gleymt okkur, eða vill ekki muna eftir okkur? Hvað eigum við að gera? Getum við gert eitthvað? segja þeir.

Svar mitt er ekki einfalt, eða kannski er það bara merki um einfeldni mína að mér finnst við ekki geta gefist upp. Við getum ekki látið troða á okkur endalaust.

Einn ágætur herramaður sagði að eina ráðið væri að ganga til liðs við Miðflokkinn og koma þessum málum í höfn þar!  Það er auðvitað fín hugmynd að ganga til liðs við eina flokkinn á Íslandi sem er tandurhreinn og EKKI ANGI AF SPILLINGU innanborðs! Eins og ég hef sagt áður þá er ég svo ljónheppin að þurfa ekki að velja þar sem kosningaréttur minn er útrunninn og ég ætla mér ekki að endurnýja hann.

Ég veit ekkert hvaða flokk fólk á að kjósa og mér kemur það eiginlega ekkert við.

Ég veit hins vegar að við getum ef við stöndum saman, brotið á bak aftur kúgunina, því það er auðvitað ekkert annað en kúgun að láta tugi manna og kvenna draga fram lífið á tekjum sem eru langt undir lágmarksframfærslu!

Sumir sem komnir eru á eftirlaun hafa það fínt og er það gott mál. Aðrir, og þeir eru líklega fleiri, eru á horriminni alla daga ársins og engin undantekning þó það séu jól eða aðrar hátíðir framundan.

Það er fyrir fólkið sem er á horriminni sem við þurfum að berjast. Við verðum að berja í borðið og segja hingað og ekki lengra. Við verðum að láta í okkur heyra. Við verðum að styðja þá sem eru að reyna. Við verðum að breyta þeirri aldagömlu venju að Íslendingar sætti sig bara við ástandið.

Fullveldisdagur er á Íslandi í dag.

Fullveldið kom ekki á silfurfati. Það þurfti að hafa fyrir því og sýna baráttuvilja, þrek og þor.

Hugsið ykkur, það eru sumir sem þora ekki annað en að kjósa flokka sem nú á tímum fyrirlíta þá sem eiga erfitt og vilja helst snúa baki við þessu fólki. Ég ætlaði ekki að trúa því þegar ég las þetta í meira en einu commenti hér á Facebókinni.

Við getum notað daginn í dag, 1. desember 2019, til þess að hugleiða hvað við getum gert til þess að ÖLLUM líði vel ALLTAF. Ég er ekki að tala um að fólk þurfi að lifa í vellystingum alla daga. Nei, ég er að tala um að ALLIR eigi alltaf mat, hafi alltaf skjól yfir höfuðið, geti alltaf farið til læknis þegar þarf og geti einstaka sinnum sótt listaviðburði ef fólki finnst það skemmtilegt.

Sumir halda jól og aðrir ekki.

Sumir halda jól af því að þeir elska jólin. Aðrir halda ekki jól af því þeir kvíða þeim og ýmsum ástæðum, meðal annars sárri fátækt. Enn aðrir halda ekki jól af því þeir velja að gera það ekki.

EIGA EKKI ALLIR AÐ HAFA VAL, FRJÁLST VAL?

Það er ekki frelsi að kvíða jólunum af því að peningarnir eru svo naumt skammtaðir að ekki tekst að hafa mat á borðinu þessa síðustu viku ársins! Það er heldur ekki frelsi að kvíða kuldanum yfir veturinn af því að ekkert skjól er til.

Þegar ég var að alast upp og þó nokkuð fram eftir ævinni voru utangarðsmenn þeir sem ekki áttu skjól og sváfu utandyra yfir veturinn og þegar ég gekk um túnið á Kjarvalsstöðum voru nokkrir útvaldir staðir þar fyrir útigangsfólkið. Mér varð alltaf hálfillt þegar ég sá þetta blessaða fólk svo arkandi um göturnar á morgnana á leið í apótekið eða í matvöurverslunina til þess að ná sér í brjóstbirtuna. Þetta var fyrir mörgum áratugum.

Núna er árið 2019 og 2020 rétt handan við hornið. Þeir sem sofa úti eru ekki útigangsmenn. Þeir eru bara venujulegt fólk sem hefur gefist upp á baráttunni við skrímslið sem velferðarkerfi íslensks þjóðfélags er í dag af því að græðgin hefur haslað sér völl og hrifsað til sín ALLT.

Margir hafa flúið land. Það fólk getur sumt hvert dregið fram lífið á tekjum sem það hefur en lifir engu lúxsus lífi, en það lifir þó. Þeir sem flýja með ekkert á milli handanna eiga erfitt uppdráttar en það tekst að merja lífið fram og ná sér á strik með hjálp heimamanna og andlegum stuðningi. Samt sem áður er dökkur blettur á þessu öllu saman. Einhverjir sem eru veikir fyrir standast ekki freistingar ódýrra veiga og verða veikir, svo veikir að ættingjar þurfa að sækja þá og flytja aftur heim í landið sem vill þá ekki. Ég vissi ekki af þessu ástandi fyrr en nýlega og hrökk í kút. Þetta er samt, þegar ég hugsa um það, rökrétt og ég hef horft upp á svona ástand án þess að gera mér grein fyrir því hvað væri að gerast. Væri nú ekki manneskjulegara að búa svo að fólki á Íslandi að það þyrfti ekki að flýja, og gæti notið þess að vera í návist vina og fjölskyldu? Væri það ekki mannúð að búa svo að öryrkjum og eftirlaunafólki ásamt fátækasta fólkinu, að það gæti verið þar sem það helst kýs ef það land er Ísland? Mér finnst það vera sjálfsögð krafa og ætti ekki að velkjast fyrir neinum.

Ég verð þó aðeins bjartsýnni fyrir hönd vina minna þegar ég hugsa um kraftinn sem Finnur, Wilhelm og Ingibjörg sýndu. Þau hrintu af stað ferli sem endar nú í málssókn gegn ríkinu vegna stærsta þjófnaðar síðari tíma, þjófnaði þar sem ríkið hefur brotið afskiptalaust á þeim sem hafa greitt og sparað í lífeyrissjóði.  Það er ærandi þögn stjórnmálamanna um þetta mál og ekki að undara. ALLIR stjórnmálamenn síðari tíma hafa fylgt þeirri stefnu að stela sparnaðinum!

Ég ætla ekkert að tala um jólabónusa alþingismanna versus jólabónus þeirra sem fá greitt frá Tryggingastofnun ríkisins. Ég ætla heldur ekkert að tala um að verkalýðsfélög greiða eftirlaunafólki sínu ekki jólabónusa eða desemberuppbót sem bónusinn heitir á launamarkaði. Ég ætla ekki heldur að tala um að atvinnulausir fá hærri jólabónus, desemberuppbót, en öryrkjar og eldri borgarar. Nei, ég ætla ekkert að tala um þetta því gerði ég það risu upp öskureiðir lesendur og segðu mér að þetta væri allt í gúddí!

Ég get þó ekki setið á mér að segja frá því að jólabónus þeirra sem sitja á hinu háæruverðuga er hærri en tekjur mínar frá Tryggingastofnun ríkisins í desember! Sanngjarnt ekki satt?

Eða er ég kannski bara full af mannfyrirlitningu og öfundsýki eins og einn formaður lýsti mér?

Hulda Björnsdóttir

 

 

 

 

Kostnaður Almannatryggingakerfisins þegar notaðar eru nettó tölur er sannleikurinn – brúttó tölur segja hálfan sannleikann

28.nóvember 2019

Góðan daginn

Ég ætla aðeins að röfla yfir því hvernig alltaf er talað um brúttótölur þegar nefndur er kostnaður vegna greiðslna frá TR til eldri borgara og öryrkja.

Tugir milljarða eru greiddir á ári hverju í gegnum TR. Þær tölur sem þar birtast eru brúttótölur.

Fái ég greiddann ellilífeyri frá stofnuninn er dreginn af honum skattur, staðgreiðsla.

Staðgreiðslan sem er skattur rennur til baka í ríkissjóð.

Síðan nota ég stærstan part eftirlauna minna til þess að kaupa í matinn, borga rafmagn og húsaleigu ásamt fleiri nauðsynjm. Flest af því sem ég versla er með virðisaukaskatti.

Svona er þetta líklega hjá flestum sem fá greitt frá Tryggingastofnun og hér á eftir er uppgjör vegna október 2019 af vef Tryggingastofnunar:!

“Tæpir 13 milljarðar greiddir í október

  1. nóvember 2019

Greiðslur Tryggingastofnunar í október námu um 12,7 milljörðum króna, þar af um 2,5 milljarðar vegna staðgreiðslu skatta. Um er að ræða mánaðarlegar greiðslur vegna lífeyris og annarra greiðslna.

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í október er 67.955, þar af karlar 25.464 og konur 42.491.

Fjölmennasti hópur viðskiptavina TR sem fengu greiðslur í október eru ellilífeyrisþegar 34.779 en næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar 18.564. Greiðslur TR í október voru um 6,7 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, tæpir 4,6 milljarðar kr. vegna örorku og tæpur 1,4 milljarður kr. vegna annarra greiðslna.”

 

Samtals greiðslur 6,7 milljarðar + 4,6 milljarðar + 1,4 milljarður = 12,7 milljarðar brúttó

Af 12.7 milljörðunum voru greiddir skattar um 2,5 milljarðar þannig að niðurstaðan er 10, 2 milljarðar sem greiddir voru nettó til þeirra sem fengu greiðslur frá Tryggingastofnun.

Mér finnst þetta skipta máli.

Síðan á fólk eftir að nota þessa 10,2 milljarða til brýnustu nauðsynja því ekki fær ríkasta liðið greitt frá Tryggingastofnun. Nei, þeir sem fá greiðslur frá stofnuninni eru öryrkjar og eldri borgarar sem lepja dauðann úr skel mestan hluta ársins.

Fyrst er tekinn staðgreiðsla

Svo er tekinn skattur af nauðsynjunum í formi virðisaukaskatts og fleiri gjalda sem renna í ríkissjóð þannig að þegar upp er staðið eru útgjöldin langt frá því að vera brúttótalan.

Í venjulegu bókhaldi eru bæði debet og kredit tölur.

Í umræðunni um bókhald TR eru aldrei 2 dálkar. Nei það eru bara kredit tölurnar, tölurnar sem sýna hvað ægilega dýrt er að halda upp fólkinu sem hefur jú haldið þjóðfélaginu uppi í gegnum starfsævina og er nú komið í þá aðstöðu að eiga að fá greitt til baka!

Ég held að ALLIR sem skrifa um kostnaðarauka og núverandi kostnað Almannatryggingakerfisins tali ávalt um brúttó tölur.

Ef einhver hefur skrifað um nettó tölur þá þætti mér vænt um að sjá þau skrif.

Ég ætla að leyfa mér að leggja til að þeir sem eru að fjalla um greiðslur frá Tryggingastofnun skipti um gír og fari að tala um nettó tölur. Það eru konkret nettotölur gefnar upp á vef stofnunarinnar þar sem fram kemur hve mikið er greitt í mánuði og þar af séu skattar tiltekin upphæð.

Mér finnst þetta fremur einfalt og er sannfærð um að væri þetta gert mundi umræðan breytast.

Ég er reyndar hissa á því þeir flokkar sem eru í stjórnarandstöðu og tala um bætt kjör hinna lægst launuðu skulu ekki nota þessa aðferð!

Við erum vön því að stjórnin ljúgi til um eitt og annað og hækki til dæmis eftirlaun frá TR um rúm 60 þúsund við hátíðleg tækifæri í ræðu og riti. Við vitum að þessi ríkisstjórn sem nú situr er ríkisstjórn hinna ríku og til þess að hampa þeim skiptir sannleikurinn ekki ýkja miklu máli hjá stjórnarherrunum. Það er bara þannig.

Hitt er alvarlegra þegar forystumenn í stórum félögum eldri borgara falla í gryfjuna með ríkisstjórninni og annaðhvort vita ekki hvað eftirlaun eru há eða kæra sig ekki um að tala um hvað þau eru lág. Forysta eldri borgara, alls staðar á landinu, þarf að muna að eftirlaun eru ekki þrjúhundruð þúsund.

Þau rétt slefa yfir 248 þúsund árið 2019 og munu líklega hækka um 3,5 prósent á árinu 2020.

Ég get auðvitað ekkert ætlast til þess að fólki finnist þetta skynsamleg tillaga, þ.e. að tala um nettókostnað í stað brúttókostnaðar.

Það geta komið rök þar sem ekki sé hægt að reikna út nákvæmlega hve miklu fólk eyði í nauðsynjavörur og slíkt og þess vegna sé ekki gerlegt að tala um nettó tölu.

Hah

Staðgreiðsla skattanna er borðleggjandi.

Notið þá tölu og færið í debet dálkinn.

Auðvitað ætlast ég ekki til þess að ALLIR sem skrifa um málefni eldri borgara og öryrkja kunni muninn á debet og kredit.

Ef einhver velkjist í vafa þá er auðvelt að gúggla og koma ábygggilega skýringar þar um þetta fyrirbæri!

Ekki meiri hryllingsskrif um brúttó tölur, snúið ykkur við og notið nettó tölur. Þær segja nefninlega sannleikann en ljúga ekki.

Hulda Björnsdóttir

Öryrkinn fitnar ekki af desemberuppbótinni!

  1. nóvember 2019

Góðan daginn

Nú er allt á kafi í auglýsingum um svartan föstudag og svo eru að sjálfsögðu allar jólaauglýsingarnar sem lýsa því hve allt er dásamlegt ef aðeins er farið og keypt nógu mikið!

Ég er ekkert að argast út í það þó fólk fái kaupæði fyrir jólin. Sumir þurfa þess og það gefur lífi þeirra fyllingu sem kannski vantar annars staðar frá. Nei, fariði bara og verslið eins og þið mögulega getið og ekki gleyma svarta föstudeginum sem er akkúrat núna í þessari viku.

Í næstu viku fá þeir sem eru á launum frá ríkinu borgaða desemberuppbót.

Ég veit ekki hvað venjulegur ríkisstarfsmaður fær en ég veit hvað þingmenn fengu í fyrra og eru það rúm 180 þúsund krónur Í JÓLABÓNUS.

Björn sagði í fyrra held ég að það hafi verið, frekar en hitteðfyrra, að hann þyrfti ekki þennan jólabónus og hann vildi hann ekki. Hins vegar gat hann ekki með nokkru móti afþakkað hann eða sloppið við hann, kerfið bauð ekki upp á það.

Ég er ekkert að öfundast út í jólabónusa almennt en finnst þó að t.d. fólk með 6 föld laun öryrkjans ekki hafa neitt með auka sporslur að gera í desember. Einhver rís nú upp og segir mig öfundsjúka mannfyrirlitningar persónu og það er bara fínt. Sá eða sú sem það gerir hefur greinilega ekki alveg gert upp við sig í hvora löppina skuli stigið og ekki ætla ég að aðstoða við lappastigið.

Í fyrradag var ég hjá lækninum mínum á spítalanum og var meðal annars spurð um ákveðinn sjúkdóm hjá ættinni. Ég hafði ekki hugleitt það neitt en þarna rifjaðist upp fyrir mér hvernig bróðir minn, sjómaðurinn þjáðist af því sem spurt var um. Þetta leiddi til þess að ég fór enn eina ferðina að hugleiða afdrif uppáhalds stéttarinnar minnar, sjómannanna, og hvað verður um þá þegar þeir eldast eða verða veikir. Mér varð líka hugsað til fiskverakonunnar og hennar afdrifa.

Margt af þessu fólki, bæði sjómenn og fiskverakonurnar urðu að láta í minni pokann vegna álags á líkamann og í verstu tilfellum varð þetta dásamlega fólk öryrkjar.

Öryrkjar eru ekki aumingjar.

Öryrkjar eru í þeim hópi vegna veikinda, slysa eða galla á líkama sem þeir fæðast með. Þeir eru ekki bara fólk sem nennir ekki að vinna, langt í frá. Þeir eru í þessum hópi margir hverjir vegna ómanneskjulegs álags á líkamann. Sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfólk og fleiri sem annast veikt fólk reyna á líkamann til hins ýtrasta og að lokum gefst líkaminn upp og segir hingað og ekki lengra.

Einn góður vinur minn sem var sjómaður er nú öryrki. Hann aflaði fyrir þjóðabúið og vann eins og berserkur, rétt eins og þeir gerðu allir hér á árum áður og gera líklega enn í dag.

Einn góðan veðurdag slasaðist vinur minn alvarlega og er nú, mörgum árum seinna, öryrki. Þessi vinur minn vildi svo sannarlega geta unnið eitthvað en líkaminn segir nei. Það er ekki hægt að ofbjóða líkamanum endalaust, sem betur fer.

Þjóðfélagið endurgreiðir hetjum hafsins sem hafa þurft að sætta sig við orörk með því að greiða þeim örorkubætur og nú í desember fylgir jólabónus, svona rétt til þess að gleðja og sjá til þess að hægt sé að gera sér dagamun á hátíðinni.

Allir fá jólabónus sem eru á vinnumarkaðinum.

Alþingismenn fá jólabónus.

Þeir sem fá greitt frá TR fá jólabónus.

Af hverju er ég nú að andskotast út í þetta bónusa mál?

Jú, það vill svo einkennilega til að því hærri sem launin eru því hærri verður jólabónusinn!

Hefði ekki verið hægt að koma því þannig fyrir að allir fengju sama glaðninginn, að minnsta kosti þeir sem fá greitt eitthvað frá ríkinu?

Nei, það var ekki hægt.

Eins og venjulega er vel hugsað um þá sem eiginlega þurfa ekkert að láta hugsa sérstaklega um sig á þessum tíma og eru bara með nokkuð góð laun allan ársins hring.

Já, en það fá allir sama bónus!

Nei, ekki aldeilis.

Í fyrirtækjum er víða tekinn umsaminn bónusinn og hann hækkaður í samræmi við yfirborganir. Þeir sem fá hærri launin fá hærri bónus! Auðvitað!

Á Alþingi fá menn 180 þúsund rúmlega.

Árið 2018 var þetta svona en fyrir öryrkja og eldri borgara heitir þetta ekki jólabónus heldur desemberuppbót:

“Desemberuppbótin er 43.103 kr. miðað við fulla tekjutryggingu. Við bætast 14.569 kr. til þeirra sem fá greidda fulla heimilisuppbót.”

Þetta eru upphæðir hjá öryrkjum árið 2018 skv. Vef TR

Öryrkinn, sjómaðurinn, vinur minn fær auðvitað skertan jólabónus vegna þess að hann borgaði í lífeyrissjóð þegar hann var á sjónum og ekki hægt að ætlast til þess að slíkar greiðslur láti í friði almennan jólabónus frá stofnuninni. Hann býr ekki einn og fær þar af leiðandi ekki heimilisuppbót.

Núna eru að koma jól, núna er tími gleði og hátíðar hjá mörgum. Núna er hins vegar tími örvæntingar hjá mörgum öryrkjum. Þeir sjá ekki fram á hvernig þeir komast af það sem eftir er af mánuðinum og þeir fá ekki greitt frá TR fyrr en þann fyrsta. Nokkrir dagar eru langur tími þegar ekki er hægt að borða almennilegan mat eða fara til læknis ef fólk veikist skyndilega. Svartur afsláttar föstudagur er ekki inni í myndinni og ekki jólagjafir eða jólasteikur.

Sjómennirnir okkar, margir hverjir eru nákvæmlega í þessum sporum sem ég lýsi í málsgreininni á undan. Fiskverkakonurnar, sjúkraliðarnir, hjúkrunarfólkið, gangastúlkurnar og margar fleiri stéttir eru nákvæmlega á þessum stað núna og það eru að koma jól!

Ég veit ekkert hvort taka á jólabónus af þingheimi. Ég hef ekki ákveðið hvað mér finnst um töluna, ekki endanlega, en líklega finnst mér þessi bónus óþarfur til þeirra sem standa í þrasi á Alþingi stundum um allt og ekki neitt en láta vera að berja í borðið og sjá til þess að öryrkinn þurfi ekki að svelta síðustu viku mánaðarins.

Mér finnst líklega óþarfi að ráðherrar og stjórnarlið sem ekki tekur á viðbjóðslegri spillingu sem étur þjóðfélagið innan frá, séu að fá greidda jólauppbót, fyrir að viðhalda spillingunni fram í rauðann dauðann og láta sér fátt um finnast þó orðspor landsins sé nú orðinn slíkur að fólk skammast sín fyrir að láta vita að það séu Íslendingar!

Ég lýg ekki með stjórnvöldum. Ef ég er spurð þá segi ég frá því hvernig ástandið er og hvernig blóðtaka spillingar er að drepa almenninng, ekki bara á Íslandi, heldur teygir viðbjóðurinn sig til sárafátækra landa, líklega fleiri landa en nú er vitað um.

Að sjálfsögðu hafa svona skrif engin áhrif. Það les þau enginn sem hefur vald til þess að gera eitthvað í málinu. Það er svo sem allt í lagi. Það sem gerist er að öryrkjarnir, vinir mínir, sjá þó að ég stend með þeim í gegnum þykkt og þunnt og það skiptir mig máli.

Ég vildi svo sannarlega hafa völd til þess að breyta þessu en því miður er ég valdalaus, hef ekki einu sinni kosningarétt á landinu. Það er í raun ekki slæmt að hafa ekki kosningarétt. Ég get leyft mér að vera ánægð með fólk úr hinum ýmsu flokkum, fólk sem mér þykir standa við bakið á öryrkjunum, vinum mínum, og öllum þeim sem búa við fátækt. Það eru örfáir svoleiðis á Alþingi núna og ég fylgist með þeim og er þakklát þegar þau rísa upp og berja í borðið. Því miður eru þessir ágætu þingmenn í stjórnarandstöðu en það kemur dagur eftir þennann dag og von mín er að þegar þau setjast í stjórnarstólana berji þau áfram í borðið og breyti þjóðfélaginu til hins betra. Það þarf að taka kyrfilega til og henda út skemmdu eplunum sem eitra allt í kringum sig.

Hulda Björnsdóttir

Hver er ég? jú, ég er sú sem ver stjórnvöld þegar þau brjóta á eldri borgurum! EÐA ER ÞAÐ? hvar er vörnin sem ég beiti?

26.nóv.2019
Haft eftir Ingu Sæland:

“Móðir mín var notuð fyrir ykkur öll í svo nefndu prófmáli. Lögmaður hennar gerði ítrustu kröfur fyrir hana sem sinn skjólstæðing þar á meðal kröfu um dráttarvexti.
Sú krafa gildir þó ekki fyrir alla heldur einungis aðila málsins.
Þeir sem vilja sækja dráttarvextina þurfa að gera það sjálfir gegnum dómkerfið.
Tryggingastofnun hefur ekki með þetta að gera svona er bara gildandi réttur.”

Það sem er rangt í þessu máli frúarinnar er eftirfarandi meðal annars

Fyrst þarf að kvarta við Tryggingastofnun

Næst þarf að senda kæru til Úrskurðarnefndar velferðarmála

Þar næst, ef úrskurðarnefndin hafnar, þarf að senda kæru til félagsmálaráðuneytisins.

Hafni ráðuneytið kærunni þá eru dómstólar einir eftir!

Annað sem frúin hefur ekki gert sér grein fyrir og sem hún hefði átt að taka fyrir á Alþingi, er að þegar lög voru sett um Almannatryggingar sem tóku gildi árið 2017 hefur ábyggilega engum dottið í hug að taka þyrfti fram í lögum um Tryggingastofnun að stofnunin þyrfti að greiða dráttarvexti (sem eru skaðabætur) vegna dómsmáls sem stofnunin hefði tapað:

Þetta hefði frúin átt að skoða og líklega svona í framhjáhlaupi að leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um stofnunina þar sem gerður væri greinarmunur á vöxtum og dráttarvöxtum!

5.5 prósent vextir sem stofnuninn er gert að greiða eru vegna vangreiddrar tryggingabóta ef tekjuáætlun hefur verið of há!

5.5 prósentin koma málssókn og dómsniðurstöðu nákvæmlega ekkert við.

Síðan veit frúin greinilega ekki að þeir sem fá greidda dráttarvexti verða ekki fyrir tekjuskerðingu þvi þeir vextir eru ekki tekjur samkvæmt mörgum dómum Hæstaréttar, þeir eru skaðabætur.

Vextir eru hins vegar fjármagnstekjur og verða til þess að tekjur frá TR, t.d. eftirlaun, skerðast vegna aukinna tekna árið 2017 og þurfa þeir sem fengu greidda leiðréttinguna vegna jan og feb 2017 margir að greiða til baka vegna aukinna tekna vegna vaxtanna!

Ég geri mér grein fyrir að þetta muni vera of flókið fyrir frúnna og ætlast ekkert til þess að hún skilji hvað málið snýst um.

Eins og allir vita er frúin talsmaður hinna fátæku!

Ég er svo ósvífin að mér finnst lágmark að slíkir forsvarsmenn viti hvað þeir eru að tala um og blaðri ekki í hringi um allt og ekki neitt og máli sig sem heilaga Maríu. Þeir sem eru í nánasta hring frúarinnar eru ekki alveg Maríulegt fólk en það er auðvitað bara öfund mín og mannfyrirlitning sem telur svo vera.

Frúin segir mig verja lögbrot sem ríkið stundar á eldri borgurum, hún kallar okkur reyndar “öldruðum”, !

Já, það er líklega hennar skoðun og ekkert um það að segja af minni hálfu. Auðvitað væri ekki amalegt að frúin kæmi með dæmi þar sem ég ver lögbröt gagnvart “öldruðum”.

Ég verð svo að segja að lokum að skerðing sú sem vaxtatekjur málsins lögðu á mig eru mér tapaðir peningar og ég er ekkert sérlega ánægð með að tapa því litla sem ég hef innan handa sem eru líklega um það bil 6 sinnum lægri lun á mánuði en laun frúarinnar!

Mannfyrirlitning
öfund
og
varnaraðili fyrir stjórnvöld

Þetta er lýsing frú Flokksformanns á mér og henni verður flökur.

Mér verður ekki flökurt
Ég æli

Að öllum líkindum verða nokkrir sem taka mig í nefið fyrir að gagnrýna hennar hátign, þá einu sem eitthvað er að reyna að gera fyrir okkur á hinu háæruverðuga!

Það er allt í lagi að gagnrýna skoðun mína. Það sem er þó sorglegra er að allt er satt og rétt sem stendur í þessum skrifum mínum. Það er hægt að telja sér endalaust trú um að aðeins einn eða tveir séu að berjast fyrir bættum kjörum eldri borgara á hinu háæruverðuga. Ég er á annari skoðun og það eru einstaklingar aðrir en frúin sem hafa þessi máli í brennidepli. Þeir grenja ekki yfir þeim, þeir hafa hátt. Þeir skrifa ekki endalausar lofgreinar um sjálfa sig í blöð og tala í Sögu. Nei, þeir sem virkilega eru að pota málunum áfram eru að gera það án þess að upphefja sig. Ég ætla ekkert að nefna nöfn í þessum skrifum því þau eru til heiðurs frú Ingu Sælands sem gubbar yfir mannfyrirlitlingu minni. Meðvirknin er dásamlega falleg stundum en oftar er hún til trafala og alls ekki til bóta fyrir eldri borgara eða öryrkja og fátækt fólk yfirleitt.

Hulda Björnsdóttir

Eftirmáli:

  1. ég hef kvartað yfir mínu máli við TR
  2. TR benti mér á að kæra málið til úrskurðarnefndar velferðarmála
  3. ég hef kært málið til Úrskurðarnefndar velferðarmála og kærunni hefur verið hafnað en mér bent á að kæra áfram til félagsmálaráðuneytisins
  4. ég er að undirbúa kæruna til ráðuneytisins og sendi hana líklega á morgun, 27.nóv.2019
  5. líklega mun ég leita til umboðsmanns alþingis en hef þó ekki mótað þá hugsun til enda.
  6. kærufrestur er 3 mánuðir og sá tími að líða
  7. nokkrir hafa haft samband við mig vegna kærunnar en treysta sér ekki í mál fyrir sig. þetta er flókið kerfi og ekki mjög aðgengilegt.
  8. ég hafði samband við félagsmálaráðuneytið til þess að fá upplýsingar um hvaða gögn ég þyrfti að senda og hvert.
  9. þau svöru voru auðfengin. Senda allt sem málinu við kemur, meira en minna er betra, og senda á frn@frn.is
  10. hafi einhver áhuga þá getur viðkomandi gert það sama og ég en tíminn er að renna út, því miður.

Kæru vegna mismunar sem gerður er á vöxtum og dráttarvöxtum vegna máls jan og feb 2017 hjá eldri borgurum hafnað!

18.nóvember 2019

Kominn er úrskurður Úrskurðarnefndar velferðarmála um kærumál mitt varðandi vexti og dráttarvexti.

Kærunni er hafnað en bent á að ég geti talað við RSK og eins geti ég kært ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að greiða mér vexti í stað dráttarvaxta til Félagsmálaráðuneytisins sbr. 1.mgr. 26.gr stjórnsýlsulaga nr 37/1993

 

Reglur þær sem TR fer eftir eru eftirfarandi:

“Hafi Tryggingastofnun ríkisins … 1) vangreitt bótaþega bætur skal stofnunin greiða honum [eða dánarbúi hans] 2) það sem upp á vantar. Þegar bætur eru vangreiddar skal greiða bótaþega 5,5% ársvexti á þá bótafjárhæð sem vangreidd var og skulu þeir reiknast frá þeim degi sem skilyrði til bótanna eru uppfyllt, sbr. þó 53. gr. Sama á við þegar niðurstaða úrskurðarnefndar [velferðarmála, sbr. 13. gr.], 1) leiðir til þess að einstaklingur á rétt á bótum en hafði fengið synjun eða lægri bætur hjá Tryggingastofnun ríkisins …, 1) sbr. þó 53. gr. Ef bætur eru vangreiddar vegna skorts á upplýsingum, sbr. [41. gr.], 3) falla vextir niður.”

Hér að framan er tala ð um vangreiddar bætur.

Í máli mínu er um dómsmál að ræða þar sem sækjandi málsins: móðir Ingu Sæland formanns Flokks fólksins fer fram á að hún fái greiddar óskertar bætur frá TR fyrir mánuðina jan og feb 2017 þar sem lög voru um að ekki skyldu skertar greiðslur á þessum tíma. Lögunum var svo breytt afturvirkt og um það snerist málið og þess vegna var leiðrétt greiðsla hjá eftirlaunaþegum fyrir þessa 2 mánuði, þ.e. þeim sem höfðu orðið fyrir skerðingunum, sem sagt fordæmið virkt.

Móður Ingu eru dæmdar skaðabætur í formi dráttarvaxta.

Mér og öðrum eru greiddir vextir og þeir reiknaðir sem fjármagnstekjur og þar af leiðandi verða þeir til þess að greiðsla dráttarvaxta til mín skerðir tekjur mínar fyrir árið 2017 og þarf ég að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar bætur!

Mál móður Ingu var fordæmisgefandi.

Dráttarvextir sem móður Ingu voru dæmdir breyttust í vexti hjá öðrum eftirlaunaþegum þegar Tryggingastofnun ríkisins fjallaði um hvað hver ætti að fá greitt.

Þetta mál allt er hið undarlegasta.

Ég sé ekki hvers vegna ég ætti að tala við RSK en kæra til Félagsmaálráðuneytisins er rökrétt.

Auðveldast væri að lúffa fyrir þessu viðbjóðslega kerfi sem komið hefur verið á í landinu en ég ætla ekki að gera  það. Ég ætla að kæra til Félagsmálaráðuneytisins og láta reyna á hvar réttlæti er.

Hulda Björnsdóttir

 

Corruption in Iceland – Really ?

14. november 2019
Good morning my friends
Bom dia
Góðan daginn
Today I´m thinking about China and my years there.
This wonderful blanket kept me warm during the cold winters
Now I have of course different ones here in Portugal but they are made of cashmere and are warm and beautiful.

 

I often think about my time in China, my friends, my students and my neighbours and many more.
I had to leave because I was not willing to pay bribes!
Imagine, yesterday there was a discussion in Iceland about companies bribing and everyone was VÁ!
Bribing is common.
We just don´t want to see it and those who participate do not talk about it, of course!
Had I been willing to bribe some people in China I could still be there teaching just like a young person! There are foreign teachers in China almost eighty years old. Why? How? They do CONTRIBUTE to someone!
Well,
Bribes are of course corruption and they should not be the norm. They are unfortunately in many countries..
While we are disgusted, which I definitely am about the case that is in the public domain now in Iceland, I just want to remind you:
Bribes are common, they are around your corner, you just don´t know.
To the Icelandic people who read this I have a question: Do you think the companies that are doing well in China might be paying some extra CONTRIBUTIONS ?
So, what will happen in Iceland after the shouting and screaming yesterday about SAMHERJA? Will something be done, will someone have to resign and take responsibility?
I don´t think so.
There was a time, not that many years ago, that some people in high positions, even ministers, that participated in so called PANAMA corruption!
Where are those who took responsibility for that, which was corruption at its best? Did someone take responsibility? Anyone?  Oh, remind me please: Who is finance minister in Iceland these days? I’m just asking.
I hope you open your eyes if you live in Iceland. I hope you don´t just turn the other way and shrug your shoulders. Today and yesterday you are shouting and screaming. Please continue to shout and scream until those responsible for the disaster and the shame that has been once more brought to the beautiful island that could be clean and loving for everyone, both those who are elderly and those who are not able to take care of them selves for some reason or another.
I wish all my friends a good morning and a good day.
Wherever you live in the world, try to make this day MORE!
With lots of love and light I send you hugs and kisses around the globe and hope to see you one day, somewhere, healthy and happy.
Hulda Björnsdóttir

45% skerðing launa þingmanna – Uppkast

  1. nóvember 2019

UPPKAST

Ég er að velta fyrir mér framkomu þingheims sem stýrir því hvernig fjármunum þjóðarbúsins er varið. Þetta er uppkast og vafalaust einhverjar villur sem leiðrétta má. Ég þigg allar góðar ábendingar og held áfram að þróa þetta plagg.

Ég ætlaði að skerða laun  þingmannsins um 45% eins og gert er við eftirlaunin mín!

Hvernig kemur það svo út?

Eftir að hafa skoðað laun Klaustursfrúarinnar þá er ég eiginlega á báðum áttum með hvernig ég get hugsanlega verið svo andstyggileg að skerða gullið um 45% og ætla að láta það bíða aðeins.

Ég ætla að leyfa mér að hvetja þá sem hafa tölvur til að fara inn á vef alþingis og skoða einstaka þingmenn. Það kemur ýmislegt fróðlegt í ljós.

Ráðherrar hafa lækkað verulega í launum samkvæmt vefnum eftir að þeir urðu ráðherrar.

Hver eru svo laun frúarinnar fyrir árið 2019 á mánuði? Þar er ég að tala um fastar mánaðargreiðslur sem hún þarf að greiða skatt af:

Svo laun Klaustursfrúarinnar eru á mánuði svona:

Laun (þingfararkaup)1.101.194 kr.

 

Fastur starfskostnaður per mán er kr 40.000

Fastur ferðakostnaður í kjördæmi er 30.000

Frúin er ekki formaður nefndar eða þingflokks og hefur þar af leiðandi ekki nema þetta í föst mánaðarlaun. Þar með er ekki sagt að hún lepji dauðann úr skel því eitt og annað fellur til fyrir hina háttsettu !!!!!!

Þingkona Miðflokksins hefur til dæmis fengið þetta greitt í ferðakostnað innanlands það sem af er árinu 2019:

 

 Ferðir á eigin bifreið 47.740  
  Ferðir með bílaleigubíl 525.764  
  Flugferðir og fjargjöld innan lands 1.130.166    
  Gisti- og fæðiskostnaður innan lands 82.822  
  Eldsneyti  
Ferðakostnaður innan lands samtals 1.786.492

 

Svo hefur frúin auðvitað ferðast erlendis

Þær tölur koma síðar í skjalinu

Skattfrjálsar greiðslur það sem af er árinu 2019 til Miðflokksdömunnar eru

1.786.492 + 983.455 = 2.769.947 + 59.083 = 2.829,030

Já, ekki mátti gleyma síma og netkostnaði en hann hefur verið á árinu samtals krónur 59.083 og bætti ég honum við hér fyrir ofan.

Samtölur þessa eina þingmanns fyrir það sem er af árinu 2019 í skattfrjálsar tekjur eru 2.829.030

Tekjur mínar í fyrra fyrir allt árið voru rétt rúmlega 3 milljónir. Frúin, þessi miðflokkspía fær í skattfrjálsar tekjur meira árið 2019 en ég fékk fyrir allt árið í skattskyldar tekjur. Auðvitað er ég komin á eftirlaun og þarf svo sem ekkert að vera að ybba mig.

Svo fékk frúin 80 þúsund fyrir nýjum síma í fyrra. Auðvitað!

Hér kemur bil sem hægt er hugsa sér að ég sitji og hugleiði framhaldið en fyrir neðan heldur svo málið áfram!

Hver eru svo laun frúarinnar fyrir árið 2019 á mánuði? Þar er ég að tala um fastar mánaðargreiðslur sem hún þarf að greiða skatt af:

Laun (þingfararkaup)1.101.194 kr.

Nú skulum við setjast niður og reikna þingfararkaupið sem hún fær greitt ef við skerðum hana eins og eldri borgarar þurfa að sætta sig við alla mánuði ársins.

45% skerðing af 1.101.194 krónum er 495.554

Launaseðillinn sem ég vil að frúin fái er svona:

Laun krónur 1.101.194

Mínus 4% lífeyrissjóður kr. 44.048

Staðgreiðsluskyld laun kr. 1.057.146 (vegna þess að framlag í Lífeyrissjóð er skattfrjálst þar til farið er að taka út lífeyrinn)

Staðgreiðsla : 402.605 mínus persónuafsláttur 56.447 = 346.158

Útborguð laun ef ekki er skert: 710.988

ÚTBORGUÐ LAUN MEÐ 45% SKERÐINGU eru krónur 1.101.194 mínus 495.554 = 215.434 krónur á mánuði hjá frú Klaustursdömu,

 en auðvitað fær frúin fullt af fíniríi sem er ekki skattskylt þannig að hún fengi líklega aðeins meira en þessar rúmar tvöhundruð þúsundkrónur.

 

 

Hér að neðan eru allar greiðslur sundurliðaðar eftir mánuðum:

 Laun (þingfararkaup) 2019

Mánuður      Upphæð

Janúar           1.101.194

Febrúar        1.101.194

Mars  1.101.194

Apríl  1.101.194

Maí     1.101.194

Júní    1.101.194

Júlí      1.101.194

Ágúst 1.101.194

September   1.101.194

 

 

Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   134.041

Febrúar                187.657

Mars      187.657

Apríl       187.657

Maí        187.657

Júní        187.657

Júlí          187.657

Ágúst    187.657

September         187.657

 

Fastur ferðakostnaður í kjördæmi 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   30.000

Febrúar                30.000

Mars      30.000

Apríl       30.000

Maí        30.000

Júní        30.000

Júlí          30.000

Ágúst    30.000

September         30.000

 

Fastur starfskostnaður 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   40.000

Febrúar                40.000

Mars      40.000

Apríl       40.000

Maí        40.000

Júní        40.000

Júlí          40.000

Ágúst    40.000

September         40.000

 

Ferðir á eigin bifreið 2019

Mánuður             Upphæð

Ágúst    47.740

 

Ferðir með bílaleigubíl 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   68.778

Febrúar                69.216

Mars      68.972

Apríl       69.087

Maí        69.396

Júní        69.615

Júlí          56.100

September         54.600

 

Flugferðir og fjargjöld innan lands 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   227.937

Febrúar                42.840

Mars      85.275

Apríl       240.338

Maí        128.942

Júní        69.426

Ágúst    146.121

September         189.287

 

Gisti- og fæðiskostnaður innan lands 2019

Mánuður             Upphæð

Febrúar                62.609

September         20.213

Flugferðir utan lands 2019

Mánuður             Upphæð

Apríl       37.035

Júní        281.440

Ágúst    76.905

 

Gisti- og fæðiskostnaður utan lands 2019

Mánuður             Upphæð

Apríl       88.241

Dagpeningar 2019

Mánuður             Upphæð

Apríl       84.565

Júní        313.339

Ágúst    101.930

 

Síma- og netkostnaður 2019

Mánuður             Upphæð

Janúar   6.060

Febrúar                6.000

Mars      6.000

Apríl       6.000

Maí        6.022

Júní        11.001

Júlí          6.000

Ágúst    6.000

September         6.000

Ekki má gleyma því að frúin fær jólabónus í desember sem er líklega í kringum 180 þúsund eða rúmlega það!

Er mér eitthvað sérstaklega illa við þessa frú?

Nei, eiginlega ekki, hún var að vísu partur af Klaustursævintýrinu en hérna er ég bara að tala um laun þingmanns sem ég valdi af handahófi og ekki er hægt að skamma mig fyrir að taka formann FF á beinið í þessari grein!

Það sem ég er að tala um er hvernig þingmenn mata krókinn og hvernig þeir kæmu út ef þeir þyrftu að sæta sömu skerðingum og við eldri borgarar og að ég tali nú ekki um öryrkjana og hvernig troðið er á þeim og þeirra kjörum alla daga.

Ráðherrar eru á listanum yfir laun þingmanna á vef alþingis en allar aukagreiðslur eru greiddar af ráðuneytunum og eru vel geymt leyndarmál.

Ég tek aftur fram að þetta er uppkast og ef einhver hefur áhuga á að skoða þetta dæmi og gera athugasemdir og leiðrétta þá er það vel þegið. Ég er að velta fyrir mér upplýsingum og reyna að komast að niðurstöðu. Það tekur tíma en ég vildi leyfa ykkur að fylgjast með framvindunni.

Hulda Björnsdóttir