Hverjir eru landar mínir?

26. október 2021

Hverjir eru landar þínir?

Hverjir eru landar mínir? Það er spurningin sem ég ætla að velta fyrir mér hérna.

Í gær skrifaði ég um eitt og annað varðandi stjórnarmyndun á Íslandi.

Ég er ekki par hrifin af því hvernig það gengur en auðvitað kemur mér það ekkert við, eða er það?

Ég hef ekki kosningarétt á Íslandi, ég bý ekki á Íslandi og mun aldrei búa þar það sem eftir er af þessari jarðvist minni.

Ég vissi fyrir langa löngu að það væri ekki eftirsóknarvert að verða gamall á landinu og ég ákvað fyrir óralöngu að flytja um leið og mér væri það fært.

Ég yfirgaf Ísland og þar með hættu þeir sem þar búa að vera landar mínir.

Landar mínir eru í því landi sem ég bý í en ekki í landi sem ég hef yfirgefið.

Það eru margir sem búa erlendis og kalla altaf Ísland heim, jafnvel þó þeir hafi búið í áratugi erlendis.

Ég er þeirrar skoðunar að landið sem þú býrð í hverju sinni sé HEIM.

Ef ég væri ekki svo óheppin að hafa fæðst á Íslandi og unnið þar mestan hluta starfsævi minnar og greitt skatta og skyldur og áunnið mér með því réttindi til að fá eftirlaun sem ég hef safnað mér í 40 ár með atvinnuframlagi mínu á Íslandi, mundi ég ALDREI líta á eitt eða neitt sem væri að gerast þarna.

Ég á vini á Íslandi, ekki mjög marga, en þó nokkra sem ég met mikils. Ég þekki dálítið af fólki á Íslandi sem eru kunningjar og ég met líka.

Það eru öll tengsl mín við landið. Þetta fólk er ekki landar mínir, þetta fólk eru vinir mínir og kunningjar rétt eins og þeir sem búa í öðrum heimsálfum eða öðrum löndum. Landar mínir eru Portúgalar.

Ég hef skömm á því hvernig farið er með almúgann, þá sem eru í neðri stéttum þjóðfélagsins, á Íslandi. Ég hef skömm á því hvernig ríkasta prósentið makar krókinn endalaust.

Ég hef skömm á því hvernig kjósendur halda þessu liði gangandi og gefa þeim atkvæði sitt aftur og aftur og aftur og mér finnst að það fólk sé fífl og skammast mín ekkert fyrir að segja það.

Mér finnst það ömurlegt að vera bundinn á klafa við íslensk stjórnvöld og þeirra duttlunga og þurfa að reiða mig á að það verði ekki allt keyrt til andskotans og ég og fleiri missi eftirlaun mín og lífsviðurværi.

Ég hef aldrei unnið í landinu mínu, Portúgal, og á þar af leiðandi ekki rétt á neinum eftirlaunum héðan. Ég hins vegar vann í 40 ár á Íslandi og á rétt á eftirlaunum þaðan.

Hungurlúsin sem mér er skömmtuð er svo lítil að væri ég á Íslandi þá væri ég í hópi þeirra sem ekki eiga mat á diskinn sinn síðustu viku hvers einasta mánaðar.

Það má ekki tala um þetta að áliti sumra.

Það verður að tala um þetta að mínu áliti.

Öryrkjar og eldri borgarar sem flýja land, eins og ég gerði, til þess að draga fram lífið njóta alls ekki sömu kjara og þeir öryrkjar og eldri borgarar sem búa á Íslandi, en samt er auðveldara að komast af erlendis af hungurlúsinni.

Þeir sem nú munu rísa upp á afturfæturna og segja mér að halda kjafti og vera bara þakklát fyrir það sem ég þó fæ geta haft sína skoðun í friði fyrir mér.

Ef ég væri ekki á klafanum, hengd upp á snæri hjá íslenskum stjórnvöldum mundi ég ALDREI NOKKURN TÍMAN SKRIFA EITT EINASTA ORÐ UM LANDIÐ.

Ég drepst eftir nokkur ár, það er óumflýjanlegt, en þangað til held ég áfram að rífa kjaft ef mér sýnist og ég verð aldrei landi þeirra sem búa á Íslandi eða eru fæddir þar. Mínir landar eru Portúgalar.

Mér er slétt sama hverja þú telur vera landa þína og troddu ekki upp á mig löndum sem ég kæri mig ekki um.

Vinir mínir á Íslandi skilja mig og þeir sem ekki gera það  eru líklega ekki vinir mínir.

Móðgist einhver þá er það þeirra vandamál en ekki mitt.

Þeir sem fá frá mér jólabréf eru sannir vinir mínir og þeim fækkar með árunum eins og gengur.

Hulda Björnsdóttir

Kvíðatímabil hinna fátæku hefst!

25. október 2021

Nú er ég búin að fara yfir Facebook hinna nýju þingmanna fyrir flokk sem ætlar að berjast fyrir bættum kjörum hinna lægstu í þjóðfélaginu og ég finn ekki stafkrók um málið!

Það er rétt að taka það fram að þetta eru bækur þeirra sem frægastir eru og ég er ekki að tala um þann eina sem hefur staðið í baráttunni síðan 2012 að minnsta kosti.

Mér finnst alveg ótrúlegt að svona kallar skuli vera kosnir til þess að taka afdrifaríkar ákvarðanir um hag þjóðarinnar um ókomna framtíð.

Má ég biðja um aldurstakmark á þingmönnum, takk fyrir!

Núna sitja kata og co að sumbli ætlaði ég að segja en það er ekki það sem ég meina, ekki í eiginlegri merkingu.

Sumblið er ekki drykkja, það er valda pot og sú síbrosandi brosir enn breiðar núna og virðist enn hamingjusamari en áður.

Ég spyr eins og sú sem ekki veit:

Eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að hafa Íslendinga mikið og lengi að fíflum?

Kosning virðist vera ólögleg, eða talning atkvæða, í allavega einu kjördæmi og mér finnst skína út úr þessu öllu saman að ÞETTA HAFA LÍKLEGA VERIÐ SVONA LENGI og engin ástæða til þess að gera veður út af smámunum bara af því að upp komst um máið!

Klausturdóninn og guðsmaðurinn sitja á þingi og munu áfram véla um ágæti þeirra eigin hagsmuna.

Í einum flokki veit ég um afskaplega mikinn baráttumann fyrir bættum kjörum þeirra sem minna mega sín og var honum snyrtilega hafnað en annar sem er að vísu FRÆGUR flaug inn.

Minn smekkur er auðvitað ekki til þess að hrópa húrra fyrir en voðalega finnst mér aumt að sjá hverjir komust inn á þing núna, ég get bara ekki gert að því að vera svona illa innréttuð.

Auðvitað á ég ekkert að vera að skipta mér af því sem mér kemur ekkert við og forsetinn er búinn að segja  að þetta sé allt í fína lagi, það er stjórnarmyndunarviðræður eins og þær fara fram núna og hann kemur í mynd með kötu brosandi út að eyrum eftir fund rétt eins og alla aðra daga.

Hver stjórnar landinu núna?

Hver er ábyrgur núna?

Er það kannski seðlabankastjórinn og hans lið sem heldur skútunni gangandi?

Gengið hefur ekki breyst mikið til batnaðar, ef þá bara nokkuð!

Afkoma fátækra hefur ekki batnað.

Ætli hamborgara gaur lagi þetta eitthvað?

Ég veit ekkert um það því ég hef ekki séð stafkrók frá bolamanninum um málefni t.d. eldri borgara og öryrkja, en hann er jú í flokki sem berst fyrir þeim hópum, svona innan gæsalappa.

Ég nenni ekki að segja hvað mér finnst um myndbandið sem gaurinn setti í loftið þar sem hann hneigir sig og beygir og þakkar fyrir traustið.

Er fólk fífl?

Vinkona mín segir það oft.

Kannski eru íbúar á þessari eyju undir einhvers konar álfa áhrifum og gera bara það sem þeir er sagt að gera jafnvel þó það sé AÐ SVELTA SÍÐUSTU VIKU MÁNAÐARINS.

Það er kominn nóvember næstum því, og jóla útstillingar út um allt, um allan heim meira að segja.

Nú hefst kvíðatímabil hinna fátæku.

Kvíðatímabilið er harkalegra núna en nokkru sinni fyrr á landi sem hleður undir ríkisliðið og gefur ekkert fyrir þá sem byggðu upp landið undir rassinn á þeim sem nú setjast á bekki og stjórna sukkinu næstu 4 árin.

Til hamingju íslenskir kjósendur. Þið fenguð og fáið það sem þið vilduð og líklega það sem þið eigið skilið.

KATA, bb og framsóknar maddaman hlæja að ykkur.

Hulda Björnsdóttir

Guð hvað þetta er allt dásamlegt

17.10.2021

Ég set sáralítið inn á Facebook þessa dagana en spurði í morgun hvað ellilífeyrir ætti að hækka mikið um áramótin.

Ég held svei mér þá að fólki finnist þetta hlægileg spurning en mér finnst hún harla eðlileg.

Eftirlaun hafa verið sama talan frá áramótum og mér finnst tími til kominn að einhver hækkun fáist.

Ég nenni ekki að fletta því upp en mér finnst ég hafa séð einhvers staðar að hækkun upp á 3,5 prósent sé væntanleg. Kannski er þetta bara óskhyggja hjá mér.

Þar sem stjórnarmyndunarviðræður standa yfir er ekki amalegt að hugsa til þess að framsókn eða grænir setji sjöllum stólinn fyrir dyrnar og heimti hækkun á launum til þeirra sem komnir eru á eftirlaun.

Var ekki eitthvað um loforð fyrir síðustu kosningar?

Ég viðurkenni fúslega að ég fylgdist ekki með af miklum móði og sá bara einn umræðuþátt, þennan með gardínuhönskunum!

“Fjárhæðir greiðslna TR hækka um 3,6% frá 1. janúar 2021. Bráðabirgðagreiðsluáætlun fyrir árið 2021 var birt á Mínum síðum þann 23.desember. Endanleg greiðsluáætlun mun liggja fyrir í janúar 2021.”

Mér finnst ótrúlegt að hækkunin verði minni árið 2022 eða hvað?

Ég ætlaði ekki að skrifa um hækkunina en hún er svona aukaafurð.

Það sem mér liggur á hjarta eru gamlir alþingismenn.

Mér finnst að menn sem komnir eru yfir 70 eigi EKKI AÐ VERA Á ALÞINGI.

Ég er ekkert að segja að 70 ára fólk sé gamalmenni. Ég er bara að segja að þetta fólk á ekki að sitja á Alþingi.

Mér finnst út í hött þegar gamlir kallar geta tekið upp á því að bjóða sig fram fyrir flokka sem eiga ekki mikla möguleika á stórmennum í framboð en geta skreytt sig með nokkrum frægum nöfnum og þjóðin kýs svo gamalmennin án þess að hugsa sig 2svar um.

Einn frægur 72 ára er kominn á þing

Annar frægur 68 ára kominn inn á þing

Fleiri frægir gamlir menn eru komnir á þing.

Geta þessir gömlu menn tekið fullan þátt í störfum þingsins? Hafa þeir hreinlega líkamlegt þol í langar fundasetur stundum fram á rauða nótt?

Svo komast menn inn á þing með svikum eins og guðsmaðurinn.

Ég held að það sé kominn tími til að setja aldurstakmörk á hverjir geta gefið kost á sér til Alþingis og líklega væri gott að hafa reglur um hvenær má skipta um flokka og yfirgefa kjósendur sem hafa greitt atkvæði þeim flokki sem kom viðkomandi inn á þingið.

Það er svo frábært að sjá hverjir njóta vinsælda meðal kjósenda.

Ef þið hafið verið rokkarar eða pulsusalar þá gæti verið gott að gefa kost á ykkur til Alþingis. Ég er næstum fullviss að kjósendur mundu glaðir taka ykkur að sér og gefa ykkur umboð til þess að gambla með þjóðartekjurnar í að minnsta kosti fjögur ár.

Ég tala nú ekki um þá sem hafa verið guðsmenn. Þeir eiga greiðan aðgang að hinu háa alþingi.

Ég er svo einföld að halda að sannir barátumenn ættu frekar að vera utan vallar og láta Alþingi í friði.

Ég er líka svo einföld að halda að allir litlu flokkarnir séu meira og minna valdapot sem gæti alveg eins mallað og lifað góðu lífi innan þeirra flokka sem nú þegar eru til og eru stærri en fimmeyringur.

FF komst inn með hóp fólks núna af því að þau höfðu peninga frá skattgreiðendum til þess að reka kosningabaráttu sem nýi flokkurinn sem Gunnar Smári fer fyrir hafði ekki. Nú fær sá flokkur fjármagn og getur að öllu óbreyttu komið einhverjum inn á þing eftir 4 ár og það er fínt.

Austur peninga í stjórnmálaflokka er óskiljanlegur og austur peninga í formenn flokka á Alþingi er líka alveg óskiljanlegt sukk.

Til hvers eru gamlingjar að koma sér á Alþingi?

Eru þeir að sækjast eftir betri eftirlaunum?

Ég veit auðvitað ekkert um þetta allt saman. Ég er bara venjulegur borgari sem er komin á þann aldur að þurfa að spá í hvenig ég og mínir líkir fara að því að ná endum saman í óðaverðbólgu á landi þar sem skattsvik og svínarí eru í hávegum höfð

Það er malað undir elítuna og nú standa 3 flokkar að mér skilst í því að raða niður stólum og gæluverkefnum fyrir sig og sína. Vonandi gengur þeim vel og guðsmaðurinn blessar svo samkomuna alla að lokum á stórum fundi í höllinni.

Guð hvað þetta er eitthvað dásamlegt allt saman.

Hulda Bjornsdottir

Sorgardagur runninn upp á Íslandi

26. september 2021

Mín skoðun!

Mikill sorgardagur í sögu Íslands runninn upp.

Mér sýnist á þeim tölum sem ég hef séð að áframhaldandi afturhald stjórni landinu og flóttafólki frá einu ríkasta landi heims til Spánar haldi áfram að fjölga.

Hvað á fólk sem á ekki fyrir brýnustu nauðsynjum að gera?

Af hverju kýs fólk svona?

Ég veit það ekki en ég held að margir séu hræddir við breytingar og haldi að allt fari til fjandans ef ný öfl komist til valda.

Niðurstöðurnar koma mér ekki á óvart.

Ég ætla ekki að tala um einstaka flokka núna.

Mér finnst þetta vera eins og ein fyllibyttu fjölskylda þar sem meðvirknin er ríkjandi og enginn þorir að gera neitt, og þeir sem eitthvað þora að gera eru kaffærðir um leið.

Þjóð sem leyfir auðvaldinu að kúga sig ár eftir ár og áratug eftir áratug er einkennilegt samsafn af fólki sem vill áfram búa í sama kassanum ár eftir ár.

Það getur ekki verið að skipting styrkja til stjórnmálaflokka af almannafé upp á hundruði milljóna sé eðlileg.

Þeir sem ríkastir eru fá mest!

Þeir sem eru nýir fá EKKI NEITT!

Það væri líklega verðugt verkefni þeirra flokka sem eru á Alþingi eftir þessar kosningar að breyta þessu fyrirkomulagi og hætta að styrkja stjórnmála flokka í kosningabaráttu, eða að minnsta kosti sjá til þess að ALLIR fái jafnt.

Stærsti flokkurinn fær mest!

Þeir ríku fá mest!

Er þetta náttúrulögmál á Íslandi eða hvað?

Er ekki hægt að breyta þessu svo allir sitji að minnsta kosti við sama borð fjárhagslega?

Nú fara næstu dagar líklega í það að rakka niður þá sem voru í forystu fyrir flokkana sem töpuðu eða fengu minna fylgi en búist var við. Það er bara þannig.

Þegar ég sá hvernig komið var í morgun þegar ég vaknaði þá hvarflaði að mér hvort þeir sem eru landflótta á Spáni til dæmis hafi allir haft kosningarétt og hafi nýtt sér hann.

Ég hef ekki kosningarétt og hef ekki kært mig inn á kjörskrá en hefði getað gert það.

Getur verið að tugir þúsunda Íslendinga sem búa erlendis og hafa ekki nýtt sér möguleikann á því að kjósa í mikilvægum kosningum eins og þessum hefðu getað breytt einhverju?

Ég gæti trúað því að svo væri. Ég sá einhvers staðar tölur um þann fjölda sem hefur flúið til Spánar en man ekki töluna. Talan var há og núna er viðbúið að hún hækki enn næstu fjögur árin.

Kannski ættum við að sameinast og koma atkvæðum okkar til Íslands í mikilvægum kosningum eins og þessum í framtíðinni. Ég ætla alvarlega að hugsa það mál og gera eitthvað í því.

Um hádegið verða líklega þættir í útvarpi og sjónvarpi þar sem rætt verður við formenn flokka. Ég ætla að skoða þessa þætti. Það skiptir máli fyrir mig að vita hvað fólkið segir núna.

Voru einhverjar punt dúkkur sem tókst að hala inn atkvæði á kostnað þeirra sem hafa virkilega unnið vel síðustu fjögur árin, jafnvel þó í stjórnarandstöðu hafi verið?

Voru einhverjir sem höluðu inn atkvæði sem ALDREI hafa látið í sér heyra varðandi kjör eldri borgara og öryrkja og fátæks fólk en stukku inn í framboð á síðustu stundu? Nei, það getur auðvitað ekki verið. Allir sem setjast inn á þing gera það af einskærri manngæsku og umhyggju fyrir ÖLLUM, ekki bara fyrir hinum ríkustu!

Eða hvað?

Hulda Björnsdóttir

Bjartsýni er ágæt. Raunsæi er líka fínt!

24. september 2021

Skoðun mín eða mitt álit, sama hvort er.

Ég hef fengið skammir í hattinn fyrir að vera ekki himinlifandi jákvæð vegna bjartsýni formanns LEB.

Hver og einn má hafa sína skoðun fyrir mér.

Fólk má saka mig um svartsýni ef því sýnist svo og mér er slétt sama.

Mér er hins vegar ekki sama þegar verið er að vekja vonir hjá fátæku eftirlauna fólki.

Þegar formaður landssamtaka eldri borgara lýsir yfir hamingju sinni með málið þá kvikna öll viðvörunarljós hjá mér ásamt ærandi sírenuhljóðum.

Er það virkilega svo að formaðurinn haldi að risa mál eins og málsóknin vegna skerðinga verði afgreidd í Héraði og það verði lok málsins ef Herinn vinnur þar?

Virkilega?

Mín skoðun er sú, byggð á margra áratuga reynslu, að risamál eins og þetta verði að fara fyrir öllu dómsstig. Þetta er prófmál og hlýtur að fá fulla meðferð.

Segjum sem svo að ríkið tapi málinu, eru þá líkur á því að það sætti sig bara við það og horfi fram á að þurfa að borga milljarða í auknum útgjöldum? Mín skoðun er sú að ríkið hljóti að áfrýja.

Segjum sem svo að ríkið vinni málið, eru þá líkur á því að Málssóknarsjóður Gráa Hersins setjist bara niður og gefist upp? Nei, mín skoðun er sú að þá mundi málinu vera áfrýjað.

Það hefur frá upphafi verið talað um að þetta mál þyrfti að öllum líkindum að fara fyrir öll dómsstig á Íslandi og ef til vill til Mannréttindadómstólsins.

Það er mín skoðun að almenningur þurfi að gera sér grein fyrir því að langur vegur er frá því að málið sé unnið þó það vinnist kannski á fyrsta þrepinu.

Hafa þeir sem tala um að vinnist þetta mál muni allar skerðingar vegna tekna frá lífeyrissjóðum falla niður hugsað málið til enda?

Hafa þeir hinir sömu gert sér grein fyrir því að þeir sem eru með 18 milljónir á mánuði í tekjur mundu þá líka fá hungurlúsina frá TR?

Það hefur ekki farið hátt umræðan um að þegar þessum málarekstri lýkur og málið væri í höfn fyrir sækjendur hæfist samningaferli á milli ríkis og eldri borgara um hvernig ætti að framkvæma niðurfellingu skerðinganna!

Það þyrfti væntanlega að setja lög um hvernig framkvæmdin yrði til þess að hinir allra hæstu launuðu fengju ekki allt í einu tæpar 300 þúsund á mánuði til þess að leika sér með í viðbót við himinhá laun!

Það hefur verið hvíslað í umræðunni að þak þyrfti að vera á gjörningnum.

Þetta hefur bara verið hvísl og líklega ekki margir sem hafa séð þá umræðu.

Mín skoðun er sú að auðvitað þurfi að vera þak. Það er í fersku minni hvað kostaði að leiðrétta vitleysu TR árið 2017 og hverjir það voru sem græddu mest á þeim málaferlum móður Ingu Sæland.

Í þeim málaferlum vannst málið og fyrir 2 fyrstu mánuði ársins fengu ALLIR sem sótt höfðu um eftirlaun frá TR óskert þaðan, þeir sem voru með 150 þúsund frá Lífeyrissjóði jafnt og þeir sem vorum með milljón á sama tíma.  Það mál var ekki hugsað til enda og kostaði ríkið marga milljarða sem hefði verið hægt að nota á trúverðugri hátt fyrir hina lægstu. Ég er bara að vekja athygli á því að mál eru stundum, og oftar en ekki hugsuð til enda!

Fari nú svo ótrúlega að mál þremenninganna vinnist í héraði og ríkið samþykki niðurstöðuna þá væri það að sjálfsögðu gleðiefni og ég yrði fyrst manna til þess að gleðjast yfir því.

Mín skoðun er sú að langt ferli sé fyrir höndum.

Af hverju heldur fólk til dæmis að þurft hafi að setja upp sérstakan málsóknarsjóð til þess að standa straum af kostnaði við málaferlin ef þetta væri svona „pís of cake“ sem tæki kannski nokkra mánuði?

Af hverju heldur fólk að VR hafi gengið í ábyrgð og tryggt að fjárhagslegur kostnaður kæmi ekki til með drepa málið? Var það af því að þetta var bara smá mál?

Af hverju heldur fólk að það hafi ekki verið löngu búið að fara í þennan málarekstur vegna óréttlætis sem hefur verið rætt og vitað um í marga áratugi?

Mín skoðun er sú að formaður LEB og allir þeir sem mála núna vegginn rósrauðan séu að vekja vonir hjá hinum fátækustu og að það sé ljótur leikur.

Ég hef eiginlega ekki trú á því að ég muni örugglega sjá fyrir endanna á þessu máli á þeim árum sem ég á eftir ólifuð á þessu jarðríki.

Eftir að málið er til lykta leitt á öllum nauðsynlegum dómsstigum á eftir að setja lög um framkvæmdina.

Nú þegar er liðið meira en ár síðan farið var af stað. Dómur verður ekki kveðinn upp fyrr en eftir 2 mánuði sýndist mér. Þetta er bara skref eitt. Skref eitt verður ekki búið fyrr um áramót og árið 2022 tekur við með enn fleiri hindrunum hvernig svo sem málið fer.

Velkomin í hóp hinna bjartsýnu sem skamma mig fyrir svartsýnina.

Haldið áfram að argast í mér og skamma mig fyrir að syngja ekki lofsönginn.

Hafi ég rangt fyrir mér lofa ég því að éta hvert einasta orð ofan í mig á opinberum vettvangi. Þið getir allavega treyst því.

Hulda Björnsdóttir

Dómsmálaráðherra á atkvæða veiðum !

23. september 2021

KORTER Í KOSNINGAR OG LOFORÐ RENNA ÚT

Er ekki eitthvað einkennilegt að skyndilega á fimmtudegi komi á síðu Gráa Hersins tilkynning um að dómsmálaráðherra ætli að gefa málsóknarkostnað vegna málaferla á hendur ríkinu?

Er ekki einkennilegt að í þessu sama máli, sem hófst fyrir rétti í nóvember í fyrra, minnir mig, að allt í einu núna korteri fyrir kosningar skuli ráðherra loksins vakna og taka við sér?

Trúir fólk þessu virkilega?

„GJAFSÓKN ÞÝIÐR AÐ HLUTI ÞESS KOSTNAÐAR SEM TIL HEFUR FALLIÐ FÆST ENDURGREIDDUR ÞEGAR DÓMUR HEFUR VERIÐ KVEÐINN UPP, – ÞÓ EFTIR NÁNARI ÁKVÖRÐUN DÓMSINS.“

Ég sé ekki betur en í framangreindri setningu sé varnagli og undir dóminum komið hvort gjafsókn verður eða ekki. Ráðherra getur ekki lofað neinu. Hún hefur ekki valdið, valdið er hjá dóminum.

Skiptir máli hvort málið vinnst eða tapast?

Er þetta gjafsókn bara fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur?

Hvað verður ef málið tapast í héraði og verður áfrýjað?

Er ekki líklegt að ríkið muni áfrýja?

Ef Málssóknin tapast þá verður afrýjað áfram og ef Málssóknin vinnst þá hlýtur ríkið að áfrýja.

Þetta er ekkert einfalt og hefur held ég alltaf verið búist við því að málið þyrfti að fara í gegnum öll dómsstig á Íslandi og jafnvel til Mannréttindadómstóls.

Ég er ekki að draga úr þeim sem í þessu standa og eiga þau öll stuðning minn óskertann.

Það sem ég er að gera athugasemd við er að dómsmálaráðherra sem trúlega er að falla út af þingi er að veiða atkvæði og kjósendur gleypa hrátt, margir hverjir.

Dómsmálaráðherra og sjallamafían í ríkisstjórn er út smogin og kann að spila á auðtrúa almenning.

Dettur einhverjum í hug að ráðherra sé að láta sér detta í hug að standa við svona loforð út í bláinn?

Virkilega ????????????????

Hulda Björnsdóttir

Hvaðan koma skúffupeningarnir

22.september 2021

Skúffupeningar ráðherra

Hvað er nú það? Spyr einhver.

Jú, skúffupeningar eru fé sem almenningur leggur ráðherrum til svo að þeir geti sinnt gæluverkefnum sínum eins og til dæmis að styrkja bæjarfélög til hátíðahalda, bara svo eitt dæmi sé nefnt.

Peningar sem ráðherrar og aðrir þingmenn ásamt aðstoðarliði og bílstjórum fá eru okkar peningar, þínir og mínir.

Það er ekki þannig að peningar vaxi á trjánum og birtist allt í einu í ríkiskassanum.

Ó nei, peningar sem notaðir eru í opinberum geira, eins og alþingi og allt sem því tilheyrir er, koma frá þér og mér og við leggjum þessa peninga til með því að greiða skatta og skyldur til þjóðfélagsins.

Vasarnir eru misdjúpir sem geyma þessa peninga fyrir sukkið og svínaríið sem við erum líklega mörg sammála um að margt sem fram fer í nafni þjóðarinnar sé.

Sumir vasar eru með göt og aðrir eru svo litlir að þeir geta ekki haft nema nokkrar krónur í sér.

Svo eru gildu vasarnir þar sem OKKAR FÉ er mokað ofaní.

Gildu vasarnir og þeir sem virðast gjörsamlega botnlausir tilheyra til dæmis fólki sem getur verið forsætisráðherra og fjármálaráðherra til skiptis í ríkisstjórn eftir ríkisstjórn.

Vasar svona fólks fyllast jafnóðum og eitthvað er tekið af auðnum, það gerist bara sjálfkrafa og engum dettur í hug að breyta þessu fyrirkomulagi.

Íslendingar eru svo hundhollir þrælahaldinu að þeir horfa bara stóreygir og brosandi á risann sem gnæfir yfir kelluna sem trónir á forsætisráðherra stallinum þessa stundina og vill endilega bara halda áfram á sömu braut enda allt svo ægilega gott í landinu þar sem hún liggur á jötunni.

Það gefur auðvitað enginn eftir svona flotta jötu, eða hvað?

Það hefur auðvitað enginn VENJULEGUR Íslendingur neitt með það að segja hvert skattapeningarnir fara, eða hvað?

Á hundruðum heimila situr fólk nú og reynir að finna út hvað sé hægt að borða þangað til næsta útborgun kemur þann fyrsta næsta mánaðar.

Þetta sama fólk hefur setið við eldhúsborðið í mörg ár og spáð og spekúlerað hvernig það eigi að lifa af mánuðinn.

Núna, já akkúrat núna eftir örfáa daga er valdið í höndum þessa soltna fólks.

NÚNA, EKKI Á MORGUN EÐA HINN, HELDUR NÁKVÆMLEGA NÚNA, er tækifæri til þess að breyta og henda risanum og hans fylgifiskum út úr ríkisstjórn.

NÚNA, er tækifæri til þess að gefa öðrum tækifæri til þess að snúa á drepsóttina og leggja áherslu á LÍF.

Hægt og sígandi eru núverandi stjórnvöld að murka lífið úr okkur, hinum verr stöddu.

Stjórnvöld eru harla glöð og vita að ekkert breytist þegar komið er inn í kjörklefann og fólk stendur þar með sinni samvisku.

ÞAÐ KÝS ÞAÐ SAMA OG ALLTAF AF ÞVÍ AÐ ÞAÐ ER SVO ÞÆGILEGT.

HIÐ ÓÞEKKTA GETUR VERIÐ HÆTTULEGT, OG ÞAÐ GETUR MEIRA AÐ SEGJA BÆTT LÍÐAN ÞRÆLANNA.

NEI, endilega breytið ekki. Talið bara við eldhúsborðið og fallið svo á kné í tilbeiðslu og lotningu fyrir þeim sem eru að drepa ykkur hægt og rólega.

Látið enn eitt tækifæri renna ykkur úr greipum vegna hugleysis og ótta við það óþekkta.

Það er auðvitað miklu betra að halda áfram í sama kassanum og þar veit fátæka fólkið sem kýs auðvaldið nákvæmlega hvað það hefur og hvaða máli skiptir svo sem að áhætta margborgar sig en hún krefst kjarks.

Skúffupeningarnir skila sér áreiðanlega ekki í vasa þeirra sem þurfa á þeim að halda.

Það er engin þörf á því að eyða slíkum fjársjóði í sauðsvartan almúgann.

Ert þú þessi sauðsvarti almúgi?

Ert þú svo mikill þræll í þér að þú ætlir að krossa við sama ástand um helgina?

Eða

Ert þú kannski einn af þeim sem hefur kjark og þor til þess að rísa upp og mótmæla því að vera drepinn hægum hungruðum sársaukafullum dauða?

Kannski ættir þú að setjast niður og hugleiða málið og stjórna svo puttunum þegar þú kemur í kjörklefann og kjósa ekki sama andskotans sukkið og svínaríið enn eina ferðina.

Hulda Björnsdóttir

Þegi þú !

21. september 2021

VERTU ÞAKKLÁT FYRIR BRAUÐMYLSNUNA SEM SEÐLABANKI OG RÍKISSTJÓRN RÉTTIR ÞÉR OG HALTU KJAFTI

Það er ekki kurteisinni fyrir að fara hjá þessum Íslendings ræfli sem flúði land fyrir mörgum árum til þess að drepast ekki úr hungri á eftirlaunum sem viðkomandi fengi eftir að hafa greitt skatta og skyldur af vinnu sinni frá unga aldri í meira en 40 ár og safnað lögum samkvæmt í sjóð lífeyris.

Fagurgali núverandi ríkisstjórnar og þeirra sem vilja brjálaðir komast í næstu stjórn flæðir nú eins og hafragrautur sem sýður upp úr potti og vellur um gólfið.

Allir vilja allt gera fyrir lýðinni.

Auðvitað trúir lýðurinn loforðunum og kýst glæpinn, sviknu loforðin, aftur. 

Hvað annað?

Það er dásamlegt að sjá hvernig Seðlabankinn hamast nú við að keyra gengið á harða kani upp á 160 krónurnar fyrir evruna.

Seðlabankinn ætti að fá sultarverðlaun aumingjanna og blóm í hnappagatið með.

Fyrir nokkrum dögum var gengi evru rétt rúmar 149 krónur en núna er það komið upp í 152,80 per evru.

Ég gerði áætlun fyrir 4 mánuðum og notaði gengi 152 fyrir evru í útreikningum mínum og þótti ég vera nokkuð örlát. Þessi áætlun var til loka ársins!

Ó nei, Seðlabankinn þolir ekki svona konur sem gera áætlanir til þess að passa upp á að borga alla reikninga á réttum tíma ásamt skatti og skyldum. Seðlabankinn HATAR svona fólk og gerir allt sem í hans valdi stendur, sem er mikið, til þess að keyra svona fólk í kaf, alveg sama hvort það býr á Íslandi eða í útlöndum.

Aðal málið er að kúludrottningar og gjaldþrotakóngar ásamt panamaprinsum fitni eins og púkinn á fjórþakinu.

Þrælarnir, kjósendur, hinn fátæki, rígheldur í vonina og kýs sama sukkið aftur. Það er nefnilega hugsanlega möguleiki að eitthvað gæti breyst ef sama fólkið færi ekki aftur með völd, og slíkt má ekki gerast, það má ekki neitt batna fyrir hina fátæku á Íslandi, það er náttúrulögmál sem almenningur heldur gangandi á fjögurra ára fresti í kjörklefanum.

Mikið lifandis skelfing er ég fegin að eiga ekki eftir að lifa mjög mörg ár í þessu guðsvolaða umhverfi þar sem sparnaður minn í lífeyrissjóð er étinn upp á hverjum einasta mánuði, fyrst með skerðingum og síðan með okurverði á gengi.

Ég er ekki einu sinni reið. Það tekur því ekki. Stjórnvöld eru ekki verð reiði minnar.

Stjórnvöld á Íslandi eru pakk, rotið pakk vildi ég gjarnan segja en geri auðvitað ekki þar sem ég gæti verið sett í fangelsi fyrir ljótt og ærumeiðandi orðbragð.

Kjósendur fatta ekki að það eru þeirra peningar sem borga fyrir sukkið og svínaríið og gjaldþrotin og kúlulánin.

Kjósendur fatta ekki að þeir hafa vald til að breyta. Nei, það er svo miklu þægilegra að setja bara krossinn við það sem alltaf hefur verið gert og yppa svo bara öxlum.

Til hamingju með framhaldið.

Fyrir alla muni ekki breyta neinu.

Í guðanna bænum haldið áfram sama ástandinu og losið ykkur við þessa sveltandi nokkra tugi þúsunda óþægilegrar áminningar um að eitt ríkasta land í heimi gefi skít í hina fátæku, sama á hvaða aldri þeir eru, og hrúgi undir rassinn á þeim allra ríkustu sem nú möndla með peningana fram og til baka í gengis darraðadansi.

Hulda Björnsdóttir

Why was she so hostile?

18th of September 2021

Good morning

There is always the first time for everything and yesterday was the first time for me

I went to the Camera Municipal here in Penela, where I have gone every month this last year and during my almost 11 years in Portugal, I have been there many times every year.

Always I have been treated with respect and everyone has been willing to help in any way needed.

Yesterday was a different day.

The day before I went to registry office and spoke to a very nice woman, who helped as much as she could be she wanted me to coma again and talk to the head of the department which I did yesterday.

The head person was really hostile in the beginning when I asked her if I could speak English. The matter I was going to ask about was legal and there is no way that I know the words in Portuguese!

She told me that I was in Portugal and I should speak Portuguese! Which is of course true and I do when I have normal conversation with my neighbours for example.

I felt like when I went to the health centre here the first time and they shouted at me because I had not learned the language after 3 months or something like that. The doctor and the nurse treated me like their enemy.

So, my errand to the Camera yesterday was to get all the information I needed to be able apply for getting married to a man that was and is not Portuguese. I know the system here and I know there is a lot of documents needed for everything and I completely accept that, but yesterday I was treated like shit.

It crossed my mind that I could be getting married to the idiot that lives in the apartment downstairs, he is Portuguese and he beats his women and abuses them in all way. Getting married to him would not be a problem for me in the eyes of the authorities here because he is Portuguese!

How mad is this?

The authorities want me to prove to them that I am getting married to a foreigner out of love and not just as a marriage of convenience.

How am I going to prove to Portuguese men and women in the court that I am in love and my future husband is in love and we love each other dearly?

This is the situation I am in now and I totally freaked out yesterday and went to my lawyer and told her I needed her help NOW!

She is calm and told me to relax. She gave me info about what we needed to do and she is going to help. I know I can trust her; she is my friend and has helped me with everything I have asked for during these almost 11 years.

My future husband told me everything would be ok. I am lucky to have him by my side in the future, but for now he is in another continent taking care of his paperwork so he can send it to Portugal.

All the papers have to be on paper, EVERYTHING, and everything has to be verified with apostille stamp. This is Portugal you know.

All this process yesterday reminded me of how wonderful the authorities I contacted in Iceland for my documentation, were. There I got all the information I needed and they are making all the documents in English. Everything has to be translated into Portuguese when the documents arrive and everything needs to be on paper.

Something does not quite add up because when I asked for my tax proof for the Icelandic authorities, they asked for it on paper and the tax here told me they don´t make them on paper, only electronic! So somewhere the system is like this and in other cases it is like that!

Confusing!

Anyway, I am not freaked out now, but I am disappointed. I am used to be treated with dignity and respect at the camera here in Penela but yesterday I was not.

I wonder what has changed? Is it because I am getting married to a man that is not Portuguese or is it just the attitude of the person I was communicating with?

She told me that people all over the world came to Portugal to get married! Are they treated differently than a person who has lived here for almost 11 years and paid taxes all those years to the society?

I just wonder!

Eventually I will of course get all the papers and proof for the court that I am not getting married just for convenience, but simply because I and my future husband deeply love each other!

The attitude at the Camera yesterday made me really think seriously about when I build my wood house if I should not just leave Penela and build somewhere else! It is my dream to live in a wood house, warm during the winter, and beautiful with no mad neighbours but I have been thinking that the municipal where I know everything would be the right choice.

After yesterday I am not so sure, and at least I will look for a beautiful spot elsewhere in the near future.

Sometimes life is just full of surprises and change is sometimes really wonderful.

Hulda Bjornsdottir

Ég tek ekki þátt í vitleysunni

11.september 2021

Eins og þeir sem fylgjast með blogginu mínu vita hef ég ekki skrifað þó nokkuð lengi um kjör fátæka fóksins á Íslandi eða þeirra sem ég bar fyrir brjósti hér áður.

Þetta þýðir ekki að ég hugsi ekki um þessa hópa.

Ég hugsa um þá oft og lengi næstum alla daga og núna í kosninga loforða flauminum kannski enn meira.

Ég hef ekki trú á því að neitt breytist við þessar kosningar en ég get hins vegar haldið þeirri skoðun fyrir mig og látið vera að rífast og skammast.

Ég reyndi að eyða “Milli lífs og dauða” síðunni en það tókst ekki og nú er fólk að deila póstum sem ég skrifaði jafnvel fyrir 2 árum.

Það sýnir mér að ekkert hefur breyst til batnaðar á Íslandi fyrir þessa hópa.

Þetta er sorgleg staðreynd sem ég hef engin áhrif á jafnvel þó ég segi ekki orð.

Mínar áhyggjur snúast um gengið og hvernig það verður notað aftur og aftur og aftur og endalaust til þess að hygla ríka fólkinu.

Undanfarið hefur gengið á evru ekki farið upp fyrir 152 krónur en hún er á harðastökki þangað þessa dagana. Ég gerði áætlun fram að áramótum, fyrir 4 mánuði og reiknaði með 152 krónum sem ég þyrfti að borga fyrir góssið. Áætlunin heldur enn og vonandi gerir hún það þessa næstu mánuði og ég rígheld í vonina!

Hér í Portúgal er lífið aðeins að þokast í rétta átt en það gengur hægt, en þokast samt. Við erum ábyrg og tökum því sem að höndum ber en ósköp var gott að fá nokkur knús þessa síðustu daga. Það er aðeins að opnast fyrir að fólk þori að vera venjulegt en ég verð að viðurkenna að ég vel vandlega hverja ég faðma.

September er spítala mánuður hjá mér þó ég sé ekki að fara að leggjast inn. Þetta kemur bara þannig út að stefnumót við læknateymið er allt í september.

Í gær fór ég á stefnumót við hjartalækninn minn og það var óvenjulegt að þurfa ekki að bíða marga klukkutíma. Í gær var Covid ástand og þá gengur allt betur á spítalanum þar sem strangt eftirlit er með því að ekki séu of margir inni í einu. Við mætum 30 miútum fyrir skráðan tíma og það er engum hleypt inn fyrr. Í gær fékk ég miða með tímanum og var miðinn límdur á mig. Allir fengu svona miða!

Síðan komu stelpurnar aftur og tékkuðu tímann og ráku okkur inn með mjúkri hendi þegar röðin var komin að okkur. Svona fyrirkomulag er frábært, finnst mér. Ég beið í hálftíma eftir Dr. Pedro og það var óvenjulegt, svo ekki sé meira sagt.

Þetta er líklega það eina sem ég vil að haldist eftir að allar Covid hömlur eru dottnar uppfyrir.

Sumarið hefur verið óvenju kalt hérna í miðju landinu og óvenju fáir skógareldar. Það kom reyndar einn dagur þar sem enginn eldur var í öllu landinu næstum því allan daginn, ekki þó alveg.

Það verður spennandi að sjá hvernig október hagar sér og ekki síður áhugavert að horfa á veturinn. Verður hann kaldur eða volgur?

Lífið er alltaf skemmtilegt og núna eru sírlendingarnir uppi ábyggilega í sumarfríi því ég hef ekkert heyrt í kallinum í tæpar 3 vikur. Það er friður og ró því geggjaði gaurinn niðri er oftast ekki þar en kemur þó eina og eina nótt svona rétt til að minna á sig og hefur þá nokkuð hátt!

Næsta ár verður allt öðruvísi en þetta.

Allt mögulegt skemmtilegt sem þá gerist í lífi mínu sem tekur heljarstökk upp á við.

Ég er þakklát fyrir hvern dag og ég man eftir því að vera þakklát alltaf.

Hamingjan er ekki sjálfgefin en það er hægt að rækta hana eins og fallegt blóm og hún lifir þá góðu lífi og vex og dafnar.

Hulda Björnsdóttir