Fordómar og illska

25. október 2026

bara smá hugleiðing í tilefni dagsins

Að vera sett í kassa

Það fer ótrúlega í taugarnar á mér þegar ég er sett í kassa bara af því hvað ég hef lifað mörg ár.

Af hverju þarf ég endilega að fara í klúbba fyrir gamalt fólk?

Hvað er það sem lætur fólk sem ég hélt að væru vinir mínir segja mér að þar tilheyri ég og það sé svo áhugvert?

Ég skoðaði nokkra facebook klúbba og þar sýnist mér málið vera að dansa og ralla!

Það er auðvitað gott og blessað en ég hef ekki áhuga á því að dilla mér með einhverjum eldgömlum kalli eða kellingu

Auðvitað eru þetta fordómar hjá mér, ég viðurkenni það

Ég hef áhuga á samræðum, bókum, tónlist og þvílíku og þarf ekki að dilla mér með því!

Það er þetta kassamál sem truflar mig

Allir vinir mínir hafa alltaf verið yngri en ég og það hefur haldið mér andlega ungri. Auðvitað hrörnar líkaminn með árunum og verður ekki eins sprækur og fyrr en það er hægt að halda sér í góðri heilsu fram eftir öllu ef maður hreyfir sig, og þá á ég ekki við bara dillerí, heldur almennilega hreyfingu til að styrkja vöðvana og beinin

Mér hefur dottið í hug að fara að skoða kaffistofur og sjá hvort ég finn að þar passi ég inn í!

Flestir yngri eru að vinna að deginum. Samkomur eru haldnar seint á kvöldin og í bili hef ég ekki heylsu til þess að fara seint að sofa!

Ég finn eitthvað út úr þessu en í kassa fer ég ekki.

Þegar ég hætti að geta skrifað og lesið og lært er lífið búið.

Fordómar gegn fólki sem hefur lifað lengi eru að tröllríða öllu núna alls staðar.

Fólk er mikið hætt að tala saman, það skrifar saman, í smá skilaboðum sem segja í raun ekki neitt.

Margar rannsóknir eru til um hvað þessi þróun er hræðileg. Það er hægt að snúa henni við ef vilji er fyrir hendi en til þess þarf átak.

Átak til þess að breyta þessu skjá horfi og í raun og veru afskiptaleysi.

Breystingin byrjar hjá hverjum og einum

Hugsið ykkur, það er ekki nóg að eiga milljón facebook vini ef þið talið aldrei saman á mannamáli, það er töluðu máli.

Það er eitthvað sem gerist þegar fólk talar saman augliti til auglitis sem aldrei verður með tómum skrifum.

Í gamla daga voru skrifuð bréf og eru mörg þeirra algjör fjársjóður. Þessi bréf voru innihaldsrík og falleg.

Núna finnst mér hættulegt að vera of mikið á samfélagsmiðlum því grimmdin og hatrið er svo gengdarlaust.

Fólk skrifar það sem það mundi aldrei segja augliti til auglitis, fordómar vaxa dag frá degi og allt verður ómenskara.

Ég hlustaði um daginn á viðtal við frábæra konu sem býr á Íslandi og hefur verið þar í áratugi.

Hún var að segja frá því hvernig líf hennar er, aðeins vegna þess að hún er ekki innfæddur íslendingur þó hún hafi búið á landinu í áratugi.

Þetta er hörku baráttu kona sem ég dáist að, en því miður fær hún óþverran yfir sig á hverjum degi.

Mér finnst líklegt að margir þeir sem valta yfir hana þyrðu ekki að gera það augliti til auglitis og þar kemur inn þessi ógnar þróun sem samfélags miðlar nútímans valda.

Hvert og eitt okkar getur breytt þessu.

Þessi frábæra kona er sett í kassa, rétt eins og ég. Hún er ung og falleg og bráð vel gefin og klár en samt treður fólk henni í kassa fordóma og haturs.

Það verður eitthvað að gera til þess að heimurinn glatist ekki vegna heimsku fárra og þáttöku margra.

Tökum kassana í burtu og ræktum fallegt opið samfélag hvar sem við erum í heiminum.

Hulda Björnsdóttir

See less

Unknown's avatar

Author: hulda98

I do blog about different matters that interest me.

Leave a Reply