26.sept.2026
Mismunur á greiðslum frá Tryggingastofnun eftir því hvaðan tekjur koma
Frítekjumark greiðslna TR vegna tekna frá Lífeyrissjóði eru 43.658 á mánuði
Frítekjumark greiðslna TR vegna tekna frá atvinnu á almenna launamarkaðinum eru 210.400 á mánuði
Ef við hugsum okkur dæmið sé um einstakling sem í öðru dæminu hefur 250.000 krónur á mánuði frá Lífeyrissjóði
Og í hinu dæminu 250.000 krónur vegna tekna sem hann vinnur fyrir á almenna launamarkaðinum.
ALLAR UPPHÆÐIR ERU FYRIR SKATT
Sá sem fær tekjur frá lífeyrissjóði fær greitt frá TR krónur 272.738 á mánuði fyrir skatt
En sá sem fær tekjur vegna tekna á almenna launamarkaðinum fær greitt frá TR 365.592 á mánuði fyrir skatt
Samtals eru heildarlaun þess sem fær tekjur sínar frá Lífeyrissjóði krónur 522.738 á mánuði fyrir skatt
Samtals eru heildarlaun þess sem fær tekjur frá almenna vinnumarkaðinum krónur 615.592 fyrir skatt.
Mismunurinn er 615.592 mínus 522.738 = 92.854 sem sá sem enn er á vinnumarkaðinum fær meira frá TR, en þetta eru tölur fyrir skatt
Hvernig urðu tekjur frá Lífeyrissjóði til?
Jú þegar fólk var að vinna áður en það fór á ellilífeyris aldurinn borgaði það ákveðna prósentu af launum sínum og var það sett í lífeyrissjóð ásamt framlagi atvinnuveitandans.
Þegar atvinnutekjur voru taldar fram fyrir skatt var talið fram samtals heildarlaun og svo í öðrum dálki greiðslur í lífeyrissjóði og var stofn til skatts =Heildarlaun mínus framlag í lífeyrissjóð
Skattur af þessu framlagi í Lífeyrissjóð var og er svo greiddur þegar launþeginn fór a eftirlaun!
Sem sagt: Af þessum prósentum var frestað að greiða skatt og er hann greiddur þegar lífeyristekjurnar eru greiddar þegar á eftirlauna aldurinn er komið
Þetta þýðir á einföldu máli sem allir ættu að skilja, að greiðslur úr lífeyrissjóði eru laun sem viðkomandi vann fyrir þegar hann var á vinnumarkaðinum, sem sagt partur af atvinnutekjum og ætti að vera með sömu skerðingarmörk og atvinnutekjur þegar greiðslur TR eru reiknaðar!
Tryggingastofnun og löggjafinn líta ekki þannig á málið.
Tryggingastofnun túlkar málið á sinn hátt og ríkið gerir ekki athugasemd við það!
Björn Leví hefur skrifað um þetta og talað um þetta aftur og aftur þegar hann var á þingi.
Hann skrifaði um málið fyrir stuttu og getur fólk fundið þau skrif.
Björn Leví hefur endalaust reynt að fá þingheim til þess að hlusta og alltaf fyrir daufum eyrum.
Frú FF hefur ekki gert athugasemd við þetta mál. Kannski veit Hún ekki eða hreinlega skilur ekki hvað málið er alvarlegt. Ef hún hefði brennandi áhuga gæti hún auðveldlega haft samband við Björn Leví og hann sagt henni hvernig málið er vaxið
Ég hef nokkrum sinnum í gegnum árin skrifað um þetta og stundum sent bréf til þingmanna.
Það er eins og að berja hausnum við staur að reyna að koma þingheimi í skilning um einföldustu hluti, finnst mér oft á tíðum.
Mér finnst þó að frú FF sem endalaust talar um fólkið hennar ætti að taka af skarið og leiðrétta ósköpin.
Hulda Björnsdóttir
