18. júlí 2025
Eftirfarandi upplýsingar um hvernig örorkulífeyrir verður eftir 1.september 2025, tekinn af vef TR
“Ef þú er með gilt örorkumat 31. ágúst 2025 eða lengur, færðu varanlegan rétt til örorkulífeyris frá og með 1. september 2025.
Þú þarft hvorki að sækja um né fara í nýtt mat við þessa breytingu, en getur óskað eftir samþættu sérfræðimati samkvæmt nýju kerfi.
Fyrir hverja
Einstaklinga sem geta ekki sinnt störfum á vinnumarkaði vegna þess að geta þeirra til virkni á vinnumarkaði er metin 0 – 25% samkvæmt samþættu sérfræðimati.
Með gilt örorkumat til 31. júlí 2025 eða skemur
Þarftu að senda inn umsókn um endurmat fyrir 1. september 2025 ef þörf er á áframhaldandi örorkulífeyri. Þá fer fram hefðbundið endurmat samkvæmt núgildandi kerfi. Verði endurmatið samþykkt færðu varanlegar örorkulífeyrisgreiðslur samþykktar frá og með 1. september 2025.
Berist umsókn um endurmat eftir 1. september 2025 fer umsækjandi í samþætt sérfræðimat samkvæmt nýju kerfi.
Með gilt örorkumat 31. ágúst 2025
Færð þú greitt frá 1. september 2025 samkvæmt nýju kerfi í samræmi við tekjur þínar. Langstærsti hluti þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri í núverandi kerfi fá hærri greiðslur í nýja kerfinu.
Eftir 1. september 2025 getur einstaklingur með rétt til örorkulífeyris óskað eftir samþættu sérfræðimati til að færast yfir á hlutaörorkulífeyri. Ef það kemur ver út fyrir viðkomandi er hægt að draga umsóknina til baka.
Fjárhæðir og frítekjumörk
Langflest sem fá greiddan örorku- eða endurhæfingarlífeyri samkvæmt gildandi kerfi munu fá hærri greiðslur í nýju kerfi frá 1. september 2025. Rétt er að benda á að mismunandi þættir hafa áhrif á greiðslur hvers og eins, til dæmis aldur, búseta, hvort þú búir ein/n, eigir börn, hvaða tekjur þú hefur og fleira. Tryggingastofnun mun veita upplýsingar um greiðslur til hvers og eins á Mínum síðum TR samkvæmt nýju kerfi um leið og slíkt er mögulegt.
Fullur örorkulífeyrir frá 1. september 2025 er:
- 396.340 krónur á mánuði fyrir skatt án heimilisuppbótar.
- 462.049 krónur á mánuði fyrir skatt með heimilisuppbót.
Örorkulífeyrir er tekjutengdur, sem þýðir að aðrar skattskyldar tekjur hafa áhrif til lækkunar.
Almennt frítekjumark fyrir örorkulífeyrisgreiðslur í nýju kerfi verða 100.000 krónur á mánuði. Það tekur til allra tekna sem áhrif hafa á greiðslur hjá Tryggingastofnun, þar með talið atvinnutekna, lífeyrissjóðstekna og fjármagnstekna. Áhrif tekna er 45% til lækkunar af tekjum yfir frítekjumörkum.
Ekki er um að ræða sérstakt frítekjumark atvinnutekna vegna örorkulífeyrisgreiðslna.”
Ef ykkur vantar fleiri upplýsingar eru þær aðgengilegar og vel uppsettar hjá TR
Hulda Bjornsdottir
