Skrípasker í vanda

20. október 2024
Það er einkennilegt að horfa á hvernig stjórnmálin eru að ærast á Íslandi.

Straumur frá einum flokki til annars og sumir raka saman meiru en aðrir.

Húsaleigurstyrkur kemur upp og þar er eitt og annað sem kemur á óvart, finnst mér.

Hvernig getur það verið að FF fólk sé að raka saman aurum fyrir 2 falda búsetu þegar þetta fólk býr rétt hjá vinnustaðnum?

Gerir þetta FF trúverðugann?

Ekki fyrir mig en álit mitt skiptir svo sem ekki máli þar sem ég bý ekki á landinu.

Ég er ekkert hissa á sjalla frúnni og miðflokks gaurnum, að þau séu að nota þessa holu en flokkur sem segist berjast fyrir kjörum þeirra lægst launuðu koma mér í opna skjöldu með þessari græðgi.

Þau hefðu getað lægt þessa öldu reiði sem geysar í hjartanu á mér, einfaldlega með því að leggja fram frumvarp þar sem þessum ósóma er breytt og komið í veg fyrir svona rugl.

En nei, FF notar matarholurnar rétt eins og allir aðrir.

Ekki geri ég ráð fyrir að neitt breytist þó þessar skyndi kosningar séu að skella á.

Það verður sama sukkið og nýliðarnir sem nú streyma inn breyta engu. Þeir þurfa að minnsta kosti fjögur ár til þess að læra á plottið og þangað til gera þau bara það sem forystan segir þeim að gera. Þannig eru jú stjórnmál á Skríðaskeri.

Ég á auðvitað að skammast mín og halda kj þar sem ég hef ekki einu sinni kosningarétt á skerinu!

Sumir kunna ekki að skammast sín, ég viðurkenni það fúslega.

Ég er í þeirri stöðu að hafa alltaf unnið og borgað í lífeyrissjóð og skatta til skrípaskers og finnst mér koma það við hvernig ríkið stelur af mér lífeyrissjóðnum í hverjum einasta mánuði.

Ofboðslega er ég þakklát fyrir að þurfa ekki að kjósa og þar með ekki bera neina ábyrgð á næstu spillinga stjórn, sem er handan við hornið.

Hulda Bjornsdottir

Unknown's avatar

Author: hulda98

I do blog about different matters that interest me.

Leave a comment